Glósur! Glósur! Glósur!
Ágúst Flygenring

- semsagt.net


2002/01/26

Ríkið
Þegar maður rennir í gegnum vörulista víninnflytjenda, t.d. Lindar, þá sér maður skýrlega hvernig "embættismenn" ÁTVR hafa ægisvald yfir því hvaða tegundir eru seldar og hverjar ekki í Ríkinu. Svona hefur það verið í áratugi. Þetta hefur í för með sér að hundruðir vörunúmera frá tugum innflytjenda eru á biðlista um að komast í sölu. Markaðslögmálið ræður ekki, duttlungar, náð og miskunn starfsmanna Ríkisins gera það (þó auðvitað eigi þetta að vera í takt við að Ríkið er hf. í eigu ríkisins og lúti því eðlilegum reglum markaðarins).
Hvað um það, lands(ó)lög banna sérverslanir með áfengi, þá á ég við verslanir sem huga að þörfum viðskiptavinarins. Hægt er að sérpanta vín en hver nennir því. Auk þess er ekki hægt að prufa flösku af þessu og hinu í gegnum sérpöntunina.
Í sumar talaði ég við einn af mestu vínspecialistum landsins, sem reyndar starfar sem verkfræðingur, hann hefur stofnan lítið innflutningsfyrirtæki og reynir að koma hinum og þessum tegundum inn í ríkið með dræmum árangri. Vissulega fylgi fyrirtækinu mikið hagræði fyrir hann sem sérlegan áhugamann um rauðvín, þar sem hann getur flutt sjálfur inn "prufur".
Ég hef heyrt að á biðlista ÁTVR séu um 1.500 vörunúmer! Sel það ekki dýrara en ég keypt'að. Eitt þúsund og fimm hundruð - fimmtán hundruð vörunúmer. Venjulegt útibú íslenska Systembúlagsins býður upp á ca. 400 tegundir (170 á landsbyggðinni). Heiðrún er svo með mesta úrvalið, kjarnann plús allar prufutegundir og "fjöldi tegunda í sérpöntunarflokki". (þess má geta að úrvalið á léttvínum í Hfj. hefur oft verið til skammar finnst mér, þrátt fyrir allur kjarninn eigi að fást þar)
Annað athyglisvert við Ríkið er að það gerir mjög strangar kröfur um hvernig áfengi berst til þeirra, sjá bls. 7 í Reglu 622/2001. Þeir sem muna eftir B-deginum muna að þá voru 8 bjórtegundir seldar. Meðal þeirra var Kaiser, sem datt síðar út, en t.d. Heineken fékkst ekki seldur, því - að því er sagan segir - Hollendingarnir pökkuðu honum ekki skv. reglum í gámana og því tók Ríkið hann ekki í sölu.

Lesefni fyrir áhugasama:
Átvr.is: Regla 622/2001 um áfengiskaup
Átvr.is: Vöruúrval

>23:37 (-1 klst.)

2002/01/25

Suicide is painless
Svo hljómaði textinn við aðallag myndarinnar MASH, sem þættirnir voru síðar gerðir eftir.
Þessi frétt, Former Enron Exec. Found Dead, minnir mig á rökræðu okkar Þóris, hvort sjálfsmorð væri einhvern tímann fyrirgefanlegt. Ég held því fram, hann er ekki sammála.

>19:26 (-1 klst.)

Obb bobb bobb
Guðni Ágústsson, hvað á að gera við menn einsog þig?

Guðna finnst hundakjötsát bera vott um lágt þróunarstig.

>18:43 (-1 klst.)

Hvuttakjöt
Mig langar, í fúlustu alvöru, rosalega að prufa hundakjöt. Það ætti hverjum að vera ljóst sem fylgist með hreyfingum sumra hunda að þetta eru gangandi grillsteikur. Heita hunda á diskinn minn!

>16:12 (-1 klst.)

Að stilla fólki upp við vegg
Stebbi Páls skrifar pistil á Múrinn í dag með þessu heiti, reyndar gæti pistillinn allt eins heitið "Ég er ekki pólitísk hóra". Á honum verður ekki annað skilið en að ekki séu allir Vinstri-grænir sáttir við kynninguna á vorframboði R-listans - hvað þá hvað liggur fyrir, sem er lítið og lélegt.
Staðreyndin er hinsvegar sú að framboðið mun verða samþykkt af "hugsjónafólkinu" í Vg, því eitt á það sameiginlegt með öðru fólki, þegar kemur að völdum og áhrifum, þá eru hugsjónirnar fljótar að fljúga út um gluggann.
Sjálfur vona ég auðvitað að Vinstri-grænir séu sjálfir sér samkvæmir og láti það markmið ekki vera öllum öðrum æðra, hvað svo sem það kostar, að halda völdum í borginni. Tilvist R-listans hefur frá upphafi verið að ná/halda völdum, ekki idealógísk. Ætlar allt "hugsjónarfólkið" að kyngja samfylkingarælunni og beygja sig fyrir Alfreð Þorsteinssyni og Ingibjörgu Sólrúnu og öllu þeirra hyski? Ég vildi að ég hefði meiri trú á hugsjónum í pólitík, en verum bara raunsýn, Vg fá sín embætti og sætta sig við lítið, selja sig ódýrt, því þeir vita að það er eina leiðin til að koma í veg fyrir að Björn taki borgina. "If you can't beat them - join them".

>09:27 (-1 klst.)

2002/01/24

Gamli Tosh
Ég var að reikna það út, eða slumpa á það ölluheldur, hvað ég væri búinn að nota fartölvuna mína mikið. M.v. 5 klst. notkun per dag (sem er ekki fjarri lagi) í 2 1/4 ár (keypt í byrjun nóv. 1999), þá er ég búinn að nota hana í 4.000 klst. Það eru margar samverustundir. Hún hefur dugað vel og mun þjóna mér fram á haustið a.m.k.
Þess má geta að gripurinn hefur aldrei klikkað og eina uppfærslan sem ég hef keypt í hana er 128 mb. innraminni, þá jukust afköstin um helming og hef ég ekki þurft að kvarta undan henni síðan. Reyndar myndu nýjustu tölvuleikirnir ekki virka á henni, en það er ekki vandamál í mínu tilfelli (það er nóg að Civ 1 virki á henni:)

>11:25 (-1 klst.)

Rúnturinn
Ég er búinn að breyta og bæta "tenglasafninu" til hægri á síðunni. Nú er þetta meira í takt við minn "daglega rúnt" á morgnanna.
Þetta kom til af því að ein ágæt skólasystir til fimm ára spurði mig hvernig og hvar ég kæmist yfir allar þessar upplýsingar sem ég væri alltaf að vitna í. Ég átti hálfpartinn erfitt með að svara þessari spurningu. Ég komst nefnilega að því að ég les alveg fáránlega mikið á internetinu (það er örugglega yfir 80% þess sem ég les) og tíminn sem fer í það er ansi drjúgur. Núna er að finna svona það helsta sem ég les daglega (flest af þessu) auk ómissandi tóla á borð við Google og Dictionary.com

>02:33 (-1 klst.)

Fundur Vöku
Ég mætti á fund Vöku um málefni Palestínu í dag. Ágætis hádegisfundur. Sleppti Stjórnun & rekstri og sé ekkert eftir því, en samt kom ekkert fram sem ég hafði ekki heyrt áður. Kannski það komi stundum að því að maður græði voða lítið á að hlusta á svona almenna fyrirlestra, einsog voru á fundinum í dag, um málefni sem maður hefur kynnt sér töluvert. Eða hvað? Ég veit það ekki, veit maður einhvern tímann nóg um eitthvað?* Jú, ef maður er verkfræðingu :-)
Án gríns, þá held ég að ég eigi eftir að nýta sumarið að einhverju leyti undir Palestínu og íslömsk fræði. Mig langar að lesa mér betur til í sögu Pakistans, þar sem þróunin þar næstu misserin á eftir að vera mjög áhugaverð.
Eftir fyrirlesturinn mætti ég í seinni hálfleik S&R. Þar hittist hópurinn minn og leggst það allt bara vel í mig. Niðurstöður Belbin-prófsins voru áhugaverðar, meira um þær kannski síðar.
* að vita og að skilja er tvennt ólíkt.

>01:23 (-1 klst.)

Araba rabb
Þegar ég las grein Friedmans frá því í dag, Run, Osama, Run og síðan á sunnudaginn, Pakistan's Constitution Avenue, þá rifjuðust upp fyrir mér tvær aðrar greinar úr N.Y. Times. Annars vegar In Pakistan, It's Jihad 101 e. Friedman og hinsvegar Yes, This Is About Islam, e. Salman Rushdie, báðar frá því í byrjun nóvember.

>01:15 (-1 klst.)

Málsvarar djöfulsins
Á Deiglunni er grein um lögfræðinga, Málsvari djöfulsins í dag. Þar segir m.a.:
Starf lögmanna og lögfræðinga hefur þann ókost að störfin snúast að mestu leyti um deilur milli manna og afbrot. Þetta þýðir að kynni flestra af lögmönnum og lögfræðingum eru tengd neikvæðri lífsreynslu í einhverri mynd. Leiðir það til þess að lögfræðingastéttin er ein sú óvinsælasta á jarðkringlunni.
Reyndar get ég alveg komið með aðra skýringu á þessum óvinsældum, en þar sem ég svo marga lögfræðinema, þá læt ég það vera:)

>00:11 (-1 klst.)

Þórir
Ég var að skoða síðuna hans Þóris og hann segir meðal annars um emmerr-emmhá keppnirnar: "Það vantar alla skemmtilega karektera og smá skemmtun í þættina."
Tók hann ekki eftir stigaverðinum, Katrínu Jakobs? eða Davíð Þór? Sverri sólheimasmælara? o.s.frv.
Það er aldrei vöntun á skemmtilegum (lesist: furðulegum) karakterum í Gettu betur. Smá skemmtun er alltaf af hinu góða, þættirnir þurfa að loosen up aðeins, orðnir svolítið sterilæseraðir, það mætti alveg lengja þá og poppa aðeins upp. Skemmtilegu karakterarnir eru alltaf til staðar - þess vegna horfir öll þjóðin.

Óska eftir Gettu betur keppninni '88 og '89 ef einhver á þær á spólu (Þórir?). Góð sál sem á þær á spólu má senda mér póst.

>00:08 (-1 klst.)

2002/01/23

Sorglegt en satt
Ef emmerr vinnur í ár í Gettu betur, sem ólíklegt verður að teljast, allt tekur enda og allt það, þá munu á næsta ári krakkar vera í skólanum sem fæddust sama ár og G.b. keppnin hófst. Þau voru jafnframt 6 ára þegar annað lið en emmerr vann síðast.
The Evil Empire has to be stopped!
Helv... emmerr emmerr emmerr, andsk... emmerr emmerr emmerr, djö... emmerr emmerr emmerr - endalaust!

>23:56 (-1 klst.)

Bergmann
Ég trúi ekki að ég hafi séð Gulla félaga minn Bergmann með tagl á næstfremsta bekk MH megin. Gulli minn, það er gott að þú ert búinn að klippa pony-tailið.

>23:48 (-1 klst.)

Sólheimar
Engir fagna einsog emmerringar.
Engir eiga hvítar buxur, nema emmerringar.

>23:39 (-1 klst.)

Vottar
Ég er ofsóttur af Vottum Jehóva - á þriggja mánaða fresti.

>19:52 (-1 klst.)

Tyco splittað upp
Hver ofurfréttin á fætur annarri koma nú frá Wall Street. Ein stærsta fyrirtækjasamsteypa heims, Tyco, mun verða skipt upp í fjórar einingar. Er það stærsta fyrirtækið í sögunni til að vera skipt upp. Sjá frétt FT.

>11:04 (-1 klst.)

Varð StarWars Enron að falli?
Já, alltaf heyrir maður eitthvað nýtt í sambandi við Enron-gjaldþrotið.
But most of the restatement, he said, came from a bigger one, called Chewco (after Chewbacca: one of Enron’s quirks was to name these outfits after Star Wars characters in the hope, perhaps, that the force might save them when financial gravity reasserted itself). (heimild)
Ljósið í þessu öllu er e.t.v. það að umræðan um þátt stóru endurskoðunarfyrirtækjanna mun líklegast hafa þær afleiðingar að vinnureglur þeirra verða hertar (og þau fara jafnvel að endurskoða það sem þau eiga að endurskoða).

>10:21 (-1 klst.)

Palestína
Ég stefni á að fara á fyrirlestur/fund sem Vaka stendur fyrir um Palestínu. Reyndar á ég að mæta í tíma klukkan eitt (og hurðinni er læst svona 13:05) þannig ég verð líklegast að hverfa frá svona tíu mínútur í en það verður bara að hafa það... nema maður sleppi bara Stofnun og rekstri, hópaskiptingin er komin, þannig í sjálfu sér ekkert sem maður "verður" að vita í tímanum, kíki bara á glærurnar á netinu... ætti að geta smyglað mér inn í kaffihlénu.
Annars er ég tiltölulega sáttur við hópinn minn, ég er með Ármanni fyrrv. verðandi læknisnema, Palla frænda mínum Borg og þremur stelpur, sem ég veit einhver deili á öllum. Virkar bara fínn hópur, reyndar væri gaman að vita hvernig "karakter" ég mældist í Belbin-prófinu.

Rosalega er bókhald lítið heillandi fag. Kennarinn á vorönn er þó mun betri en sú sem kenndi á haustönn, maður nennir allavega að mæta í tímana hjá þessum - og maður helst vakandi.

>08:49 (-1 klst.)

2002/01/22

K-mart
Það er ekki aðeins fréttin um hagnað amazon.com sem vekur athygli í dag á Wall Street. Gjaldþrot K-mart kemur mörgum á óvart. Það hefur verið ljóst lengi að fyrirtækið væri verulega veikt og um helgina las ég grein á Forbes (How Kmart Blew It) sem birtist á föstudaginn. Þar var fyrirtækinu gefið hálft ár. En risarnir falla líka og þessi risi er greinilega fallinn. Risi segi ég, K-mart hefur allt frá 1980 átt við slæma heilsu að stríða og má segja að allt hafi verið á niðurleið síðan. Þeir sem lesa greinina munu eflaust furða sig á því hvernig svona stórt fyrirtæki getur verið svona illa rekið. Þessi kökusamanburður fylgdi greininni:
Ef myndin fyrir 1980 væri þarna líka væri K-mart með stærri sneið en Wal-Mart. Gjaldþrot K-mart mun án efa auka söluna hjá Wal-Mart. Í margnefndri grein segir m.a.:
...Santa passed Kmart by in December, the crucial holiday-shopping month, when same-store sales were down 1% from the previous year. In contrast, Wal-Mart and Target (nyse: TGT - news - people) saw increases of 8% and 2%, respectively. Kmart will likely lose $1.3 billion on revenue of $36 billion for the fiscal year that ends this month...

...A Kmart store typically suffers a sales drop of 5% to 15% for up to three years after a Wal-Mart moves in nearby, says Darrell Rigby, head of the worldwide retail practice at consulting firm Bain & Co...

...Currently Wal-Mart turns over each store's inventory about eight times per a year. Target does about seven turns. Kmart? Only 3.6 times...
Að lesu um stjórnunar- og stefnumarkandi mistök stjórnenda K-mart síðustu 10-15 árin er ótrúlegt. Það hreinlega mistókst allt sem gat mistekist. Þar að auki hættu vörurnar að höfða til neytenda, tölvukerfið var í molum, birgðakerfið var algjörlega í rúst og fjárfestingastefnan svelti búðirnar á meðan peningum var eytt í misheppnaða diversification yfir í bygginga-, íþrótta- og ritfangabransann svo eitthvað sé nefnt.

>18:22 (-1 klst.)

Þetta er rosalegt!!
Ég er nú bara staddur hérna í heimsókn uppi í Breiðholti þegar ég sá fréttina um að Inga Jóna væri búin að draga sig til baka.. Ég varð svo hissa að ég öskraði nú einfaldlega. Þetta er alveg hreint rosalegt! Ég dauða mínum átti ég von en ekki að Inga Jóna drægi sig til baka og amazon.com myndi skila hagnaði - sama daginn! Undur og stórmerki.

>15:53 (-1 klst.)

Frétt ársins í viðskiptalífinu?
Á dauða mínum átti ég nú von, en ekki að amazon.com myndi fara að skila hagnaði!

>14:52 (-1 klst.)

Áhrif blóðskammar á samfélög
Vísir.is greinir frá því hvað áhrif langvarandi blóðskömm getur haft á samfélög, sjá frétt frá Norfolk-eyju við Ástralíu.

>13:20 (-1 klst.)

2002/01/21

Sjónvarpsmessa
Framundan eru tveir af þeim ca. fimm sjónvarpsþáttum sem enn eru framleiddir sem ég reyni helst ekki að missa af. Þetta eru eðalþættirnir The Practice og CSI, sem báðir eru sýndir á Skjá(ei)num, hvar annars staðar. Nýjar seríur byrja í kvöld og bíð ég auðvitað spenntur. Svo fer Ally McBeal að byrja aftur og vonandi komur ný sería af Cold Feet með vorinu. That 70's Show er svo ástæðan fyrir því að fleiri halda upp á fimmtudaga en bara Þórir. En CSI er að byrja...

>20:59 (-1 klst.)

Porter
Er nema von að svona menn verði hálfguðir í lifanda lífi.

Mig langar í þessa bók: The Competitive Advantage of Nations : With a New Introduction eftir Porter. Verst að hún er álíka þykk og símaskráin, sem þýðir að ég þyrfti að sýna ótrúlega þrautseigju. Bækur eiga almennt ekki að vera lengri en 250 bls. Vonandi að þessar 896 blaðsíður séu með stóru letri og fullt af skemmtilegum myndum. Þá legg ég kannski í hana ef hún er til á bókasafninu.

>17:02 (-1 klst.)

Réttindi stríðsfanga
Maður skilur svosem að Bandaríkjamenn neiti að líta á fangana á Kúbu sem stríðsfanga (sjá myndir), enda myndi aðbúnaður þeirra væntanlega brjóta í bága við Genfar-sáttmálann um réttindi stríðsfanga:
Part III - Section II - Chapter I General observations
Article 22
Prisoners of war may be interned only in premises located on land and affording every guarantee of hygiene and healthfulness. Except in particular cases which are justified by the interest of the prisoners themselves, they shall not be interned in penitentiaries.
Prisoners of war interned in unhealthy areas, or where the climate is injurious for them, shall be removed as soon as possible to a more favourable climate.
The Detaining Power shall assemble prisoners of war in camps or camp compounds according to their nationality, language and customs, provided that such prisoners shall not be separated from prisoners of war belonging to the armed forces with which they were serving at the time of their capture, except with their consent.

Part III - Section VI - Chapter III Penal and disciplinary sanctions - III. Judicial proceedings
Article 105
The prisoner of war shall be entitled to assistance by one of his prisoner comrades, to defence by a qualified advocate or counsel of his own choice, to the calling of witnesses and, if he deems necessary, to the services of a competent interpreter. He shall be advised of these rights by the Detaining Power in due time before the trial.
Failing a choice by the prisoner of war, the Protecting Power shall find him an advocate or counsel, and shall have at least one week at its disposal for the purpose. The Detaining Power shall deliver to the said Power, on request, a list of persons qualified to present the defence. Failing a choice of an advocate or counsel by the prisoner of war or the Protecting Power, the Detaining Power shall appoint a competent advocate or counsel to conduct the defence.
The advocate or counsel conducting the defence on behalf of the prisoner of war shall have at his disposal a period of two weeks at least before the opening of the trial, as well as the necessary facilities to prepare the defence of the accused. He may, in particular, freely visit the accused and interview him in private. He may also confer with any witnesses for the defence, including prisoners of war. He shall have the benefit of these facilities until the term of appeal or petition has expired.
Particulars of the charge or charges on which the prisoner of war is to be arraigned, as well as the documents which are generally communicated to the accused by virtue of the laws in force in the armed forces of the Detaining Power, shall be communicated to the accused prisoner of war in a language which he understands, and in good time before the opening of the trial. The same communication in the same circumstances shall be made to the advocate or counsel conducting the defence on behalf of the prisoner of war.
The representatives of the Protecting Power shall be entitled to attend the trial of the case, unless, exceptionally, this is held in camera in the interest of State security. In such a case the Detaining Power shall advise the Protecting Power accordingly.
Article 106
Every prisoner of war shall have, in the same manner as the members of the armed forces of the Detaining Power, the right of appeal or petition from any sentence pronounced upon him, with a view to the quashing or revising of the sentence or the reopening of the trial. He shall be fully informed of his right to appeal or petition and of the time limit within which he may do so. (heimild)
Ég er enginn lögfræðingur en ég get ekki betur séð en mannréttindi fanganna séu ansi takmörkuð. Sorglegt að sjá Bandaríkjamenn koma svona fram, þó það væri ekki nema bara að bjóða upp á þessa gagnrýni.
Ég hvet jafnframt áhugasama að kynna sér ofangreinda kafla betur, auk þess sem sáttmálinn er athyglisverður að ýmsu leyti.
Að lokum skal það tekið fram að auðvitað hef ég ekki lesið sáttmálann í heild sinni og er þar að auki ekki löglærður að neinu leyti. Athyglisverðar upplýsingar er að finna hér:
BBC - Q&A: Al-Qaeda prisoners' rights
BBC- Life in a Guantanamo cell (m.a. teikning af "klefunum")

>12:58 (-1 klst.)

Hálf-þrjú-speki dagsins
There is only one thing in the world worse than being talked about, and that is not being talked about.
- úr The Picture of Dorian Gray eftir Oscar Wilde

>02:59 (-1 klst.)

Gamalt gull
Stundum rekst maður á gamalt (gleymt og grafið) gull á netinu. Þegar ég var að leita að allt öðru á leit.is, þá dúkkaði upp Náttfari, sem virðist hafa verið "ungliðafylgirit" Vef-þjóðviljans á sínum tíma. Athygli mína vakti hverjir stóðu á bak við Náttfara. Ritstjórn skipuðu Þórlaug Ágústsdóttir, Hjálmar Blöndal (fyrrv. formaður NFmh og blaðamaður), Halldór Bjarki Christensen og Baldur Kristjánsson.

>00:56 (-1 klst.)

2002/01/20

RE: Djöfladýrkendur
Ég fékk svar frá Jóni Svan vegna pælinga minna um djöfladýrkendur o.fl. Hann skrifar:
Gothic er ekki tónlistarstefna sem slík, heldur tilvísun í tungumálið gotnesku sem var töluð í eystri hluta evrópu einhverntíman fyrir árþúsundaskipti (nákvæmari tímasetningu veit ég ekki) og þeim lífstíl sem þeir sem töluðu málið voru álitin hafa (hversu mikið er satt í því veit ég ekki).

Gotneskur byggingarstíll er drungalegur og meðal annars er kastali fyrirmyndar drakúla byggður í þessum stíl. Þegar sjokkrokkararnir (Cooper, Osborne, Manson og jafnvel skáldskapar persóna Bowie's: Stardust) komu fram með sviðsframkomu sína og vitnuðu í hina og þessa höfunda hryllingssagna, myndaðist ný kynslóð "djöfladýrkenda" sem voru meira í þessu til þess að mótmæla stéttaskiptingu og ranglæti. Þessir pólitísku djöfladýrkendur urðu síðan fyrirmynd pönksins og skoðanna pönkaranna. Íslenskir pönkarar er sorglegt lið því við höfðum engan sameiginlegan óvin til að mótmæla, eins og bretarnir höfðu.

Manson reif svo upp aftur þetta goth/pönk eftirminnilega hér á landi, en eftir að hann sveik áhagnendur sína 3 ár í röð með því að fremja ekki sjálfsmorð á nýársdag eins og hann hafði lofað, svo og útgáfa commercial plötunnar mechanical animals, þá leystist þessi hópur upp því hann sá að Manson var ekki sú fyrirmynd sem þeir vildu. Síðan þá hefur þetta að mestu leyti legið niðri hjá þeim sem eru ekki í þessu af einhverri alvöru.

Þess má geta að öfugur kross er táknleysa því að Ozzie Osborne var sá fyrsti sem notaði þetta merki af einhverri alvöru. Margir bókstafstrúarmenn í BNA og annarsstaðar stimpla þá sem ekki trúa á guð kristinna manna sem djöfladýrkendur, því skv. boðorði eitt áttu ekki að hafa aðra guði en hinn eina guð (egóistar þessir heittrúarmenn).
Jón Svan er með heimasíðu: svan.blogspot.com

>22:10 (-1 klst.)

Mósaík
Það kemur fyrir að ég horfi á Mósaík. Eitt af því sem mér finnst mjög flott við þessa þætti er myndatakan í "bókmenntahorninu". Reyndar er það ekkert "horn" því stórt svið er undirlagt af sviðsmynd sem ekkert hefur verið til sparað við að gera. Full lítið sparað, einsog svo oft áður hjá Sjónvarpinu. Umgjörðin verður stundum of mikil að hún fer að keppa við innhald þáttarins. Einföld sviðsmynd gerir oft alveg sama gagn. Hvað um það, nú eru eflaust einhverjir ósammála mér. Það sem mér finnst hinsvegar svo flott við Mósaík er myndatakan. Þegar gefin eru tvö sjónarhorn með að nota sjónvarpsskjá inn í myndinni. Þá er tekin loftmynd og skjár sýnir closeup mynd af viðmælandanum. Þetta finnst mér alveg ótrúlega flott útfærsla, sem er í senn einföld og frumleg. Allavega hef ég ekki séð þetta í öðrum þætti.

>16:24 (-1 klst.)

Silfrið
Mér finnst hálfleiðinlegt að fylgjast með Ástu Möller í Silfrinu núna. Eyþór Arnalds kom áðan og stóð sig ekkert illa. Ég fór fyrir forvitnissakir á heimasíðuna hans til að athuga hve gamall hann væri. Hann er fæddur '64 og því 38 ára. Reyndar komst ég líka að því að hann er ræðismaður Botsvana á Íslandi. Það finnst mér frekar fyndið. Botsvana er reyndar nokkuð athyglisvert afríkuríki, því efnahagsástandið hefur ekki verið jafn slæmt þar og annars staðar í Afríku.
Ég missti af byrjuninni en það var ánægjulegt að sjá að Egill er farinn að bjóða aftur áhugapólitíkusum í þáttinn. Þannig var það áður, ungliðar og aðrir áhugasamir komu oft með skemmtileg sjónarmið og var það styrkur þáttarins. Mér finnst Egill hafa fengið full mikið af atvinnumönnunum í vetur.

>14:08 (-1 klst.)

Hálf-þrjú-speki dagsins
Atli er ekki Börkur
- íslenskur málsháttur

>02:36 (-1 klst.)

Eyþór
Eyþór.is opnaði í kvöld. Ég fékk einmitt boð um að mæta í eitthvað útgáfuteiti en mætti ekki.
Í fyrsta lagi þá veit ég ekki hvernig hann komst yfir netfangið mitt og í öðru lagi þá veit ég ekki af hverju mér var boðið, þar sem ég bý ekki í Reykjavík!
Annars las ég stuðningsmannalistann hans, full mikið af Verzlingum finnst mér.
Ég spái Eyþóri 5-7%, þ.e.a.s. ef hann heldur þetta út og dregur framboðið ekki til baka.

>01:19 (-1 klst.)

Powered by Blogger