salam
Ágúst Flygenring

- semsagt.net


2003/04/17

Viðbrögð al-Qaeda við falli Bagdad
"With guerilla warfare, the Americans were defeated in Vietnam and the Soviets were defeated in Afghanistan. This is the method that expelled the direct Crusader colonialism from most of the Muslim lands, with Algeria the most well known. We still see how this method stopped Jewish immigration to Palestine, and caused reverse immigration of Jews from Palestine. The successful attempts of dealing defeat to invaders using guerilla warfare are many, and we will not expound on them. However, these attempts have proven that the most effective method for the materially weak against the strong is guerilla warfare..."
Þetta stóð m.a. á síðu al-Qaeda (sem ekki er hægt hægt að linka á, því henni er alltaf fljótlega lokað og slóðin breytist á nokkra daga fresti) 9. apríl, eftir að Bagdad var fallin.
Sjá nánar: MEMRI.

>18:08

Jafnrétti og jafnrétti
Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir hefur oft skrifað af viti um jafnréttismál. Ég hef oft lesið hugleiðingar hennar á ýmsum vettvangi um jafnrétti, femínisma og fleira í þeim dúr og fundist hún nálgast málin yfirleitt á mjög "heilbrigðan" hátt.
Þessi pistill eftir hana á Frelsi er engin utantekning, Jafnrétti meðal jafnaðarmanna, þar sem hún segir m.a.:
Samfylkingin virðist sannfærð um að áhugi kynjanna á stjórnmálum sé jafn mikill og þá jafnframt að framboð af efnilegum stjórnmálamönnum af báðum kynjum sé ætíð nokkuð jafnt. En ég leyfi mér að efast um það í ljósi eigin reynslu af áhugaleysi kvenna á stjórnmálum. Mig grunar einmitt að kynjahlutföll á listum Sjálfstæðisflokksins endurspegli þennan mun, alveg eins hlutfall kynjanna sem gegna embættum formanna og varaformanna innan stjórna Ungra jafnaðarmanna. Persónulega þykir mér skynsamlegra að fara í kjölinn á hugsanlegum ástæðum þess að konur hafi minni áhuga á stjórnmálum en karlar, heldur en að reyna bara að jafna hlut þeirra kvenna og karla sem sitja á Alþingi.
Þetta segir ungur femínisti sem starfaði áður innan Bríetar.

Svo bætir hún um betur í pistli á Tíkinni.is í dag, Jöfnuður er ekki jafnrétti, þar sem hún segir m.a.:
Ég skilgreini jafnrétti aftur á móti sem jafnan rétt einstaklinganna fyrir lögum, og að einstaklingarnir séu metnir að verðleikum án þess að bakrunnsbreytur á borð við kynferði leiði til réttindaskerðingar. Ég hef engar staðreyndir til að styðja þá kenningu að ójöfn kynjahlutföll þýði sjálfkrafa að réttur þess kyns sem á hallar, hafi verið fótum troðinn. Komist einstaklingur hins vegar ekki áfram á eigin verðleikum, til dæmis á grundvelli kynferðis, standa lögin, dómstólarnir og réttarkerfið í heild honum til verndar. Þegar hins vegar reynt er að þvinga fram þróun í átt að jöfnum hlutföllum er hætta á að einstaklingarnir verði ekki metnir að verðleikum heldur einmitt af þessum bakrunnsbreytum.
Fyrst ég er farinn að vitna svona mikið í Helgu, er ekki úr vegi að vísa á einhvern skemmtilegasta pistil um femínisma sem ég hef lesið - og er einmitt eftir hana: Æ, þetta helv.. jafnréttiskjaftæði

>15:29

Typpi
Mér finnst pistill Andra Óttarssonar, Jafnrétti kynfæranna, góður. Á svipuðum nótum og stutt hugleiðing sem ég skrifaði fyrir rúmu ári í tengslum við myndina Tillsammans.

Merkilegt að þetta skuli hafa verið bannað. Aftur á móti var ekkert sagt við því þegar Egill Sæbjörnsson fróaði sér fyrir framan vídjókameru á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Allt í þágu listarinnar. Typpaleikhúsið er aftur á móti óæðra art form í augum íslensku lögreglunnar (dómsmálaráðuneytið leiðrétti þá vitleysu). Merkilegt.

>02:39

2003/04/16

The Hobbesian Dick Cheney and the Oedipal struggle of the Bushes
Stundum er ekki annað hægt en að brosa út í annað þegar maður les pistlanna hennar Maureenar Dowd.
The Washington Post reported on Monday [31/3] that moderate Republicans were trying to do an intervention with the president to show him that hawks were giving him "bum advice."
The article was clearly referring to the Bush I realpolitik crowd of James Baker, Brent Scowcroft, Lawrence Eagleburger and Mr. Powell and his acolytes at State. These pals of Poppy Bush are alarmed that the Hobbesian Dick Cheney - who has been down in his undisclosed locations reading books about how war is the natural state of mankind - the flamboyantly belligerent Rummy and the crusading neo-cons have mesmerized the president with their macho schemes.
[...]
One former senior Republican official noted: "The only one who can reach the president is his father. But it is not timely yet to talk to him." This raised the odd specter of the president's being dragged off from running a war and taken to Kennebunkport for a Metternichian outing in the family cigarette boat. Mr. Scowcroft and Mr. Eagleburger could pin W. down while Bar steered and Poppy explained the facts of international life.
The Oedipal struggle of the Bushes - a father who was an ambassador to the U.N. and an envoy to China, a globe-trotting vice president and an internationalist president, and a son who was a Texas governor with little knowledge of the world - was bound to be aggravated by an invasion of Iraq not sanctioned by the U.N.
[...]
Bush 43 is busy trying to do something his dad thought he'd done. The title of Bush 41's book: "A World Transformed."
Warring Tribes, Here and There, 2. apríl, ©New York Times.

>01:08

Next stop: Syria?
It is a tribute to Hafez al-Assad's reasonableness as a diplomat and irresponsibility as a leader that Syria is the only country called a sponsor of terrorism by the State Department that has diplomatic relations with the United States.
Úr leiðara New York Times í dag.
New York Times bendir á alla þá augljósu ókosti sem stjórnvöld í Sýrlandi hafa, hvernig þau skjóti skjólshúsi yfir terrorista og séu hugsanlega með efnavopnaprógram í gangi. Aftur á móti, einsog Sun Tzu sagði, "Þekktu óvini þína betur en sjálfan þig" og í lok leiðarans segir:
War against Syria, however, makes no sense. The United States has its hands full in Iraq. More important, Washington will only live up to the worst expectations of the Arab world if it now adopts a belligerent military approach to every nation in the region that it dislikes. It may be possible, however, to use the threat of diplomatic or economic sanctions to encourage Damascus to reconsider its hostile policies in the wake of the fall of Mr. Hussein.
Ég bara neita að trúa því að þessar kenningar um "Írak í dag, Sýrland á morgun" plan Rumsfelds séu réttar, þ.e.a.s. að Sýrland sé næsta "frelsun" á dagskrá bandaríska hersins. Ef svo er, þá er ég endanlega algjörlega hættur að skilja nokkuð í neinu hvað gengur á milli eyrnanna á þessum skrattakollum í Washington!

>00:19

2003/04/15

Fyrirsagnir, þinn eigin stríðsherra og amerísk tómatsósa
Nú er fyrirsögn fréttastofu RÚV "Átökin í Írak" í sjónvarpsfréttunum. Áður var það "Innrásin í Írak". Prentútgáfa Morgunblaðsins talar enn um "Stríð í Írak". Nú er fyrirsöngnin "After Saddam" bæði á CNN og Sky News. Áður var það "War On Iraq" hjá CNN en "War In Iraq" hjá Sky. Sama fyrirsögnin var í dag á BBC minnir mig "Iraq - War". Enn er talað um "War On Iraq" á enskri útgáfu al-Jazeera.
Fréttamönnum Sjónvarpsins er bent á að fæðingarbær Abrahams heitir Úr, ekki Ur, sbr. 11. kafla 1. Mósebókar (arabískur ritháttur: alef-va-ra).

Það er ekki laust við að manni verði óglatt að lesa þessa frétt um að nú sé hægt að fá sér Bagdad sem umhverfi Command and Conquer stríðsleiki.

Af innlendum vettvangi er það einna helst, utan frétta af atkvæðauppboðinu í vor, að Ástþór Magnússon mætti fyrir dómara í dag. Hann neitaði að fá verjanda og sagðist ekki ætla að vinna með honum, þegar honum var skipaður verjandi. Ekki var honum skipaður geðlæknir að svo stöddu.

>22:39

Þvílík sóun
Það var ekki laust við að hrollur færi um mann fyrir helgi, þegar Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar bárust inn um bréfalúguna og maður opnaði blöðunginn. Opnumynd, sem minnti mann á plakötin sem fylgdu ABC (og Æskunni) þegar maður var lítill, af jarðgöngunum fyrir austan. Þvílík sóun. Þvílík sóun!!

>20:39

Glötuð menningarverðmæti
Dr. Magnús Þ. Bernharðsson, kennari í nútímasögu Mið-Austurlanda og sérfræðingur í sögu Íraks, skrifar pistil í bandaríska dagblaðið Newsday í dag: [Grieving Over Loss of Civilian]...and Cultural Life in Iraq
Newsday þykir frekar íhaldssamt en birti pistil Magnúsar án athugasemda á Op-Ed-síðu sinni. Pistillinn fjallar um hina ægilegu eyðileggingu sem átti sér stað í Bagdad og aðgerðaleysi bandaríska hersins, sem þó sá ástæðu til að standa vörð um olíumálaráðuneytið og skjölin sem þar eru geymd. Þjóðminjasafnið, sem hefur (hafði) að geyma ómetanleg menningarverðmæti frá öllum fornu stórveldunum sem byggðu Mesapótemíu, var rænt og lagt í rúst. Kveikt var í ríkisbókasafninu og ómælanlegt magn skjala og upplýsinga glötuðust einnig annars staðar. Bandaríkjamenn bjuggust við þessu - og gerðu ekkert til að koma í veg fyrir þetta. Olíumálaráðuneytið varð aftur á móti ekki fyrir tjóni.

>15:48

2003/04/14

Af mér
Ég kláraði síðasta prófið á laugardaginn. Kíkti í lítið partý um kvöldið og svo til Siggu. Þar sá ég bíómynd með Peter Ustinov sem kemst tvímælalaust a.m.k. á topp tíu listann hjá mér - yfir verstu bíómyndir sem ég hef séð. Hún heitir Charlie Chan (1981) og er bara hörmung í einu orði sagt.

Skv. IMDb.com er Charlie Chan karaketer sem um 40 myndir voru gerðar um á 4. og 5. áratugnum. Einnig voru gerðir sjónvarpsþættir '57 og ein sjónvarpsmynd '79. Upprunalegi Charlie Chan var leikinn af sænskum leikara á fjórða áratugnum og eftir það voru það bandarískir leikarar sem léku hann. Í sjónvarpsmyndinni '79 var hann leikinn af Pólverja. Það lá því beinast við að fá annálaðan breskan leikara til að leika hann, eða hvað? En einsog ég sagði, skelfilega léleg mynd.

Gærdagurinn fór svo í fjölskylduboð og aðrar skyldur en svo kom Sigga í heimsókn að ræða lífsins gagn og nauðsynjar.

Í dag var svo byrjað í verkefnavinnu vorsins. Nú er það stefnumótun, lítur ágætlega út, spenntur fyrir framhaldinu.

Ég á eftir að lesa heilan helling af efni sem ég hef ekki komist yfir vegna prófa og annarra anna. Dagurinn í dag og næstu tveir dagar munu líklegast fara í aðrar skyldur en skemmtilestur og verður sjálfsagt enn bið á uppfærslum á þessari síðu þangað til um helgidagana.
Vonast til að geta lesið eitthvað í þessum 7-8 bókum sem ég er með á náttborðinu núna, svo á ég vænan bunka af tímaritum og útprentuðum greinum sem bíða mín, fyrir utan allt internet-efnið sem ég hef ekki komist í að lesa síðastliðinn hálfan mánuð. Nóg að gera, en ég get ekki beðið að sökkva mér í þetta :)

Nú er ég aftur á móti á leiðinni í klippingu, nokkuð sem hefur setið á hakanum alltof lengi!

>17:43

Niðurstaða Afstöðu.net
Skemmtilegt test á Afstaða.net.

>17:33

Powered by Blogger

© Agust Flygenring 2000-2003