Það er nú nokkuð gaman að rúlla í gegnum þetta allt hér...
http://web.archive.org/web/20030603184248/www.framfarir.net/alyktanir.htm
bió skrifaði 05.02.06 20:17Já, skemmtilegar ályktanir. Þetta kallast nú held ég bara "mainstream" skoðanir í dag.
Teitur skrifaði 05.02.06 22:58Hjörtur komst meira að segja í stólinn í Silfur-Egils þar sem hann kynnti flokkinn og hvað hann stóð fyrir, skömmu eftir stofnun hans. Agli þótti hann óvenju "málefnalegur", miðað við róttæka stefnu..
Einar skrifaði 07.02.06 20:46Ég þakka BIÓ kærlega fyrir linkinn. Hann er mjög áhugaverður.
Einar, var það fyrir, eftir eða á meðan hann kallaði sig Hjört J. Hjartar?
Ókosturinn við internetið er að menn geta auðveldlega afmáð allar slóðir sínar, góðar og slæmar. Þess vegna var gott að fá linkinn frá BIÓ. Menn geta þá rifjað upp hvaða boðskap Framfarasinnar stóðu fyrir. En líkt og fleiri áhugamannafélög á hægrijaðrinum virðast forystusveinarnir iðulega gefast upp fljótt og eru komnir inn í landsfundarnefndir áður en þeir vita af, svo framarlega auðvitað að þeir sýni prúðmannlega, "málefnalega" framkomu.
Það reyndar er alveg rétt, á svipuðum tíma dúkkaði FÍÞ upp og voru Framfarasinnar auðvitað prestslegir í útliti við hliðina á arísku kynbótarmönnunum, sem þó náðu að halda a.m.k. einn fund á - að mig minnir - Hótel Loftleiðum. Atvikaðist einhvern veginn þannig, að sögn gárunganna, að nógu margir þeirra voru í landi til að halda fund.
Á meðan Þjóðernissinnarnir fóru aftur á sjóinn fóru Framfarasinnarnir aftur í Flokkinn.
"Where even Richard Nixon has got soul."
Ágúst skrifaði 07.02.06 21:36Þurfti þennan Framfaraflokk nokkuð lengur? Eru ekki ríkisstjórnin búin að taka upp flest það sem þeir framfarasinnar töluðu fyrir?
Teitur skrifaði 09.02.06 03:53