maí 16, 2003

Klane Haserl haben kurze Naserl

Ég ætla sko svo sannarlega að kjósa austurríska lagið í Eurovision. Það er næsta víst!
Lagið með Birgittu verður löngu gleymt áður en lag nr. 2 verður búið. Alveg hreint týpískt eurovision-lag, m.ö.o. leiðinlegt.
Ef Birgitta syngi ekki þessa froðu, hefði Botnleðja unnið. Það hefði verið frábært. Fyrst Botnleðja (með sitt skemmtilega lag) og svo austurríski ruglukollurinn þar á eftir að syngja um öll dýrin. Þá hefði maður horft á Eurovision!
Ég verð samt skv. þessum nýjustu upplýsingum að horfa á a.m.k. fyrstu tvö lögin. Sjá hvernig froðan hennar Birgittu kemur út (*geisp*) og svo syngja með "Die Hosn leben im Woid / Die Kotzn in da Wiesn / Und die Kakerlaken / Die leben hinter die Fliesn". Je!

Þó svo að ég sé orðinn assgoti ryðgaður í þýskunni, þá sýnist mér þetta ekki aðeins vera austurrísk mállýska heldur grunar mig að það sé töluvert um orðatilbúning og þó svo að maður geti skilið sum orðin í laginu, er ég nokkuð viss um að þau séu ekki alveg rétt skrifuð. En aðalatriðið er líka að hafa gaman að þessu :-)
Agust skrifaði 16.05.03 00:06

Flokkun: Menning
Comments
Skrifa comment









Muna persónulegar upplýsingar?