maí 04, 2000
Jæja...
Jæja, klukkan 3:17 í tölvunni og Leonard Cohen diskurinn búinn að syngja sitt síðasta í þriðja sinn í röð. Ég er orðinn alltof þreyttur, þarf að vakna til þýskunáms í fyrramálið og sé ekki fram á mikinn árangur ef ég næ mér ekki í nokkurra klukkutíma svefn.Þetta blogg er algjör draumur í dós! Ég hvet alla (sér í lagi Sigríði Reynisdóttur) til að fá sér blogg. Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum um bloggið þá er bara eitt að gera: smell sér á blogger.com!! Einfalt, fljótlegt, þægilegt. Sumir setja upp rosa síðu í hringum þetta blogg sitt, t.d. Björgvin og Geir sem eru mennirnir á bak við hrekkjusvin.is enda þekktir fyrir að vera örgustu hrekkjusvín, eða eitthvað! Hvað um það, þeir eru einmitt íhlaupakennarar í Verzló en það er einmitt skólinn minn. Þar læri ég m.a. þýsku einsog fram kom. Þýskuprófið er einmitt á föstudaginn og ég er þess vegna að fara að sofa til að vakna til að læra undir það. Af hverju er ég að segja ykkur þetta, jú vegna þess að þetta blogg virðist ná ágætum tökum á manni, þannig ég hvet alla þá, um leið og ég hvet alla til að kynna sér blogg, sem hafa hug á að setja upp bloggsíðu að gera það EFTIR prófin, þegar nægur tími er til að gleyma sér algjörlega við þetta.
P.S...
Aðeins er hægt að setja upp blogg á ftp-server, ég notast við þjónustu þess ágæta fyrirtækis tripod.com sem er hluti af lycos.com-veldinu. Bara svona svo að örugglega allt sé á hreinu, þá kostar bloggið ekki krónu og er eina skilyrðið að þú setjir blogger-lógóið á síðuna einhver staðar, hún er neðst á þessari síðu minni og með að smella á hana lendið þið á blogger.com...
góða nótt!
Agust skrifaði 04.05.00 03:23
Flokkun: Internetið