maí 04, 2000

Alltaf jafngaman að búa á Íslandi! Var að uppgvöta það að tíminn á blogginu hjá mér er 1 klst. í plús, þ.e.a.s. klukkan eitt er hún tvö á bloggernum. Þetta er að sjálfsögðu út af sumartímaruglinu, þar sem okkar skaðræðisland hefur ekki sumartíma (síðan sextíuogeitthvað) þá þurfum við vesælir Íslendingar að breyta öllum klukkum einu sinni á ári, þ.e.a.s. þeim sem eru það "fullkomnar" að þær breyta sér sjálfar. Ef þetta er ekki gert getur það valdið misskilningi og óþægindum, nokkuð sem framleiðendur tölvubúnaðar hvers konar, hvort sem það er í fartölvu eða faxtæki, ætluðu sér að koma í veg fyrir með því að útbúa tækin með þeim hætti að þau breyta tímanum sjálf þegar svo ber undir. En þökk sé sérstöðumaníu íslensku þjóðarinnar þá er nú ekki svo að við getum notið þessa tækniundurs sem sjálfstillingin er, einsog örfáar þjóðir á borð við, að mig minnir, Alaska (ef þjóð skal kalla), Argentína og fyrrv. Sovésk ríki (enda yfirleitt á -istan), og gott ef ekki Japan er svona spes líka. En talandi um spes tíma, Íran og Afganistan, að mig minnir, hafa einmitt tímabelti sem er x klst og 30 mín. frá GMT, m.ö.o. þeir eru á milli tveggja tímabelta, furðulegir þessir íslamsklerkar, finnst ykkur ekki. En tími svefnsins er löngu kominn, svona eiga menn ekki að haga sér í prófum, en gera þó!
Agust skrifaði 04.05.00 01:42

Flokkun: Internetið