desember 28, 2002

Sleeper

Var að mála til miðnættis. Kláraði allt saman, voðalegur dugnaður. Þegar ég kom heim, dauðþreyttur, fór ég ekki að sofa einsog skynsamur maður, heldur fór ég út í búð og keypti heila kerru af sundurlausri matvöru - sem markaðist af því ég var svangur, aldrei að fara svangur út í búð, það er dýrt.
Í stað þess að fara að sofa þegar ég kom úr búðinni horfði ég á eina af mínum uppáhaldsmyndum, Slepper með Woody Allen. Þvílík snilldarmynd! Keypti hana á VHS á Amazon fyrir skömmu. Maður tekur alltaf eftir einhverju nýju í myndum Woodys Allen. Einsog núna:
She thinks I'm a pervert because I drank our waterbed
Þetta er frumraun Woodys sem leikstjóra frá 1973 og skartar Diane Keaton í aðalhlutverki ásamt honum sjálfum. Tónlistin er skemmtileg, spiluð m.a. af The New Orleans Funeral Ragtime Orchestra, frekar fyndið heiti á hljómsveit. Myndin er ærslafull og ber flest höfundareinkenni Woodys Allen en myndin gerist 2173 og "framtíðarhúmorinn" er á köflum sjúklega fyndinn fyrir þær sakir að hann lýsir einhverju "fáránlegu" sem engu að síður er orðið staðreynd nú 30 árum síðar.
Allavega, mæli með myndinni, Woody Allen er (næstum) alltaf góður :-)
Posted by Agust at 03:15 FH | Comments (0)