apríl 10, 2003

Corcorde 1969/76-2003

Í dag er greint frá því að dagar Concorde flugvélanna er taldir. Það kemur svosem ekkert verulega á óvart. BBC greinir frá, Concorde grounded for good.
BBC minnist einnig allra milljarðanna af bresku og frönsku almannafé sem fóru í verkefnið á sjöunda og áttunda áratugnum og hvernig flugvélarnar hafa í raun aldrei náð að standa undir sér - og hvers vegna flugvélar miða að því að koma fólki sem ódýrast á milli staða, en ekki á sem skemmstum tíma, Why economists don't fly Concorde.
Posted by Agust at 01:01 EH | Comments (0)

apríl 01, 2003

Floppy disk R.I.P.

Á BBC-vefnum er "minningargrein" um floppy diskinn.
Ég nota ennþá floppy disk - í einum tilgangi - til að færa skjöl frá fartölvunni yfir í borðtölvuna (eða öfugt).
Ég man ennþá hvað það pirraði mig að vélritunarkennarinn minn í Verzló talaði aldrei um diskettur, heldur skífur. "Jaáááá... þið þurfið að skila skífunum ykkar með verkefnunum..." Hljómar einsog það sé rosalega langt síðan... sem það er.
Ég á ennþá eftir ca. 10 stk. af floppy diskettum þannig ég þarf ekki að örvænta. Ég á líka einhverra hluta vegna óupptekinn kassa með 5 1/2" mjúkum floppy diskettum. Sá er heldur betur kominn til ára sinna. Reyndar voru litlu disketturnar búnar að ryðja sér til rúms. Aftur á móti voru þær bara 720 kb. þegar ég byrjaði að fikta við tölvur. Þá áttum við Makkintoss tölvu sem var með svart/hvítum ca. 8" skjá en með hörðum diski og prentara. Það var merkilegt tæki.
Posted by Agust at 02:52 EH | Comments (0)