maí 24, 2003
Langdregnasta auglýsing í heimi
Ég er ekki frá því að ég hafi verið að horfa á einhverja allra langdregnustu auglýsingu sem ég hef séð.
"Lengsta auglýsing í heimi" frá Brimborg, svona fyrir þá sem átta sig ekki á því um hvaða auglýsingu ég er að tala.
Posted by Agust at
07:00 EH
|
Comments (0)
mars 20, 2003
Fríverslunarsamningar EFTA
Í nýjasta eintaki
Stikla, vefrits viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir frá því að samkomulag hafi náðst milli Egypta og EFTA um viðskipti. Egyptar höfðu fram að þessu neitað að opna markaði sína fyrir fisk en í samningnum, sem gert er ráð fyrir að ljúka við fyrir áramót, náðist samkomulag um fisksölu til Egypta, en á móti þurftu EFTA-löndin að slaka á hindrunum með innflutning á landbúnaðarvörum frá Egyptalandi.
Á síðasta ári var seldur fiskur til Egyptalands frá Íslandi fyrir tæpar 50 milljónir en flutt inn frá Egyptalandi vörur fyrir 21 milljón.
Fyrir hafa
fríverslunarsamningar verið gerðir við Ísrael, Palestínu (PA), Jórdaníu, Tyrkland og Marokkó. Eistrasaltsríkin þrjú, Pólland, Tékkland, Slóvakíu, Ungverjaland, Slóveníu, Króatíu, Búlgaríu, Rúmeníu og Makedóníu af gömlu Austantjaldslöndunum. Auk þess eru fríverslunarsamningar við Mexíkó (frá 2001) og Singapore (frá upphafi ársins í ár).
Þá hafa verið gerðar yfirlýsingar, "Declarations on Co-operation", við nokkur ríki: Alsír, Egyptaland (sem nú er verið að gera fríverslunarsamning við), GCC (Bahrein, Kúveit, Khatar, UAE, Óman og Saúdí-Arabía), Líbanon, Túnis, MERCOSUR-löndin (Brasilía, Uruguay, Paraguay og Argentína), Albaníu, Serbía og Svartfjallaland og Úkraínu.
Posted by Agust at
04:24 EH
mars 07, 2003
Baugur
Án þess að ég nenni að tjá mig frekar um Baugs-fárið, þá verð ég að segja að þessi frétt kemur mér ekki á óvart:
Guðfinna og Þorgeir segja sig úr stjórn Baugs
Ég veit ekki til þess að Þorgeir í Odda hafi verið þekktur fyrir annað en að vera heiðarlegur (en harður) í viðskiptum og ekki fyrir neitt bullshit. Guðfinnu er að sjálfsögðu ekki sætt í stjórninni, verandi rektor háskóla sem leggur mikið upp úr
siðareglum í viðskiptum sínum.
Það kemur svosem ekkert á óvart að Norðmaðurinn sitji áfram, enda eiga þeir frændur stóran hlut í fyrirtækinu og þurfa að standa vörð um hann (og ættu því aldeilis að vera ósáttir eftir atburði síðustu daga). Jóhannes situr auðvitað áfram, af skiljanlegum ástæðum.
Sá trúnaðarbrestur sem átt hefur sér stað innan stjórnarinnar, með birtingu Fréttablaðsins á upplýsingum úr samskiptum stjórnar, er mun athyglisverðari en sá lágpólitíski skrípaleikur sem mann hafa staðið í undanfarið.
Hvernig nokkuð traust eigi að vera borið til þeirra sem stóðu í þeim birtingum skil ég ekki. Ég skil allavega ekki hvernig nokkur með almenna siðgæðisvitund ætti að geta setið í stjórninni áfram. Því hefði það komið mér verulega á óvart ef þessi frétt af útgöngu Þorgeirs og Guðfinnu hefði ekki borist. Sér í lagi í ljósi þess hvaða einstaklingar eiga í hlut.
Skemmtileg tilviljun að nú hengir þessi frétt inni á Moggavefnum:
Jón Ásgeir tekur sæti í stjórn Flugleiða
Posted by Agust at
05:33 EH
febrúar 24, 2003
Heimildamynd um Grameen bankann
Ég mæli með að áhugasamir horfi á hollensku heimildamyndina
Framfaraspor (Signature of Change) á
RÚV kl. 20:50. Myndin fjallar um
Grameen banka í Bangladesh sem lánar fátæklingum fé, allt niður í 1-2 dollara. Viðskiptavinir bankans eru nær eingöngu fátæklingar, mest konur. Mjög merkilegt.
Ég heyrði af þessum tiltekna banka hjá Jóni Ormi, en fleiri slíkir bankar eru starfræktir víðsvegar um heiminn. Þessi þykir einkar vel heppnaður. Hann er líkt og svo margir aðrir sambærilegir bankar sem lána til fátæklinga, stofnaður af hugsjónamanni, prófessor Muhammad Yunus. Ég bíð því spenntur að sjá þessa mynd.
Posted by Agust at
06:47 EH
febrúar 22, 2003
Sprengingin í NY
Skv.
Platts, fréttaveitu olíuiðnaðarins, þá brunnu um 100 þús. tunnur í sprengingunni í NY í dag. Tveir fórust og einn slasaðist. Töluvert eignatjón varð. Í yfirlýsingu ExxonMobile segir að sprengingin átti sér stað þegar prammi (barge) var að afferma cargo skip. 100 þús. tunnur eru um 14 þús. tonn (16 milljón lítrar). Það er umtalsvert magn en engu að síður smotterí þegar það er t.d. sett í það samhengi að mér reiknast til að þetta sé framleiðsla Saúdi-Araba í 18 mínútur!
Endu er eignatjónið meira en tapaða olían. Mér reiknast til að m.v. barges-verðið í Ameríku (NYH) síðustu vikur á unld. gasoline þá séu þessi 14 þús. tonn ekki nema rétt 4 milljóna dala virði.
Mesti skaðinn er auðvitað að tveir menn létust.
Posted by Agust at
12:47 FH
febrúar 21, 2003
You've been Googled
Hvernig byggir maður upp 2 milljarða brand án þess að auglýsa fyrir krónu?
The Making Of A $2 Billion Brand (Forbes Mag.)
Önnur frétt um Google, eða öllu heldur Blogger, frá Forbes:
Blogging By Wireless. Nú verður hægt að blogga í gegnum sms.
Að sjálfsögðu var fjallað um kaup Google á Blogger í vikunni:
Google Goes Blog-Crazy
Posted by Agust at
10:11 EH
febrúar 19, 2003
Írska ævintýrinu lokið?
Athyglisvert:
Ireland, Once a Celtic Tiger, Slackens Its Stride
Posted by Agust at
10:20 EH