febrúar 13, 2001
Litla hóruhúsið
Stefán Pálsson ritar grein á Múrinn í dag um vændi á Íslandi.Þar furðar hann sig að menn einsog Egill Helgason skuli setja spurningarmerki við það þegar samtök einsog Stígamót taka undir tölur "frá Norðurlöndum" um að hér séu ein vændiskona á hverja eitthundrað karlmenn.
Það setja, held ég, allir spurningarmerki við svo háa tölu, svo framarlega sem þeir hugsa örlítið úr í hana. Ef við gerum ráð fyrir að þjóðin sem fullkomlega skipt, þá er m.ö.o. verið að segja að 2% allra kvenna á Íslandi stundi vændi. Ef við gefum okkur einnig að 1/3 hluti karlmanna séu ómögulegir viðskiptavinir vændiskvenna, vegna ungs aldurs, elli o.s.frv. þá þýðir það að hver vændiskona er með 67 mögulega viðskiptavini. Ef við hugsum okkur svo að þeir séu ekki nema að meðaltali 10 sem leita til þeirra á annað borð fáum við út af 1 af hverjum 7 karlmönnum leiti reglulega til vændiskvenna. Er einhver skynsemi að setja svona upplýsingar fram? Ætlast fólk til að þessum tölum sé trúað?
Vændi hefur ekki verið kölluð elsta starfsgreinin fyrir ekki neitt. Enginn ætti að efast um að hér séu stundað vændi, rétt einsog annars staðar í heiminum. Spuringin er hinsvegar hvernig við skilgreinum vændi og hvort allt vændi sé í raun og veru ólöglegt, eða ætti að vera það. Er það vændi að aka sér upp við málmsúlu? Er kjöltudans vændi? Er það að giftast vellríkum milljóner, þrátt fyrir að vera sjálf(ur) á besta aldri, vændi? Er daður til að auka önnur viðskipti vændi?
Mismunandi menningarheimar hafa mismunandi sýn á hvað sé vændi og hvað ekki. Talibanar eru nefndir til sögunnar, vegna þess að þeir álíta lausan hárlokk ósiðsaman. Öfga-femínistar eru ekkert skárri þó þeir komi frá Norðurlöndunum og ekki ætti að taka mark á þeirra skilgreiningu og statík á meðan samfélagið í heild sinni hefur allt aðra skilgreiningu á vændi. Ef tölurnar væru réttar, væri íslenskur almenningur þá ekki meðvitaðari um vandann. Sé Reykjavík að verða evrópsk Bankok þá ættum við sem í henni búum og störfum að taka eftir því. Skárra væri það nú!
Agust skrifaði 13.02.01 13:02
Flokkun: Jafnréttismál