febrúar 17, 2001

Að leggja sig í vinnunni

Nú eru Svíar að spá í að lögleiða hálftíma kríu í hádeginu. Ég held að þetta geti verið til bóta í sumum störfum, t.d. stjórnunarstarfa eða erfiðra skrifstofustarfa - framleiðslustörf eru ekki vel til þessa fallin vegna ofmikils óhagræðis.
Hinsvegar er þetta eitthvað sem viðkomandi vinnuveitandi og starfsmaður eiga að semja um sín á milli. Bandarísk fyrirtæki prufuðu þetta fyrir nokkrum árum í einhverri tilraun. Mig minnir að meira en helmingur hafi tekið fyrirkomulagið upp til frambúðar. Það voru mestmegnis meðalstór eða lítil skrifstofufyrirtæki. Í sömu rannsókn kom fram að til að krían skilaði sér í bættum afköstum þyrfti hún að vera 5-25 mín. en alls ekki lengri en hálftími, þá ná flestir djúpsvefni sem gerir fólk þreyttara sé svefninn svo skammur. Þetta er þó mismunandi eftir einstaklingum, sumir ná djúpsvefninum fyrr og ekki er gott ef fólk er útkeyrt, þá gerir þetta ekki sama gagn.
Best kom þetta fólki sem var undir miklu álagi, þar jukust afköstin mest. Síesta Miðjarðarhafslandanna er ekki svo vitlaust eftir allt saman, hver veit nema við Íslendingar munum taka svona lagað upp einhvern tímann á næstu árum.
Þó verður svona lagað að vera samkomulag milli vinnuveitanda og starfsmanna - ríkið á ekki að setja lög sem neyðir fólk til að leggja sig í vinnunni.
Agust skrifaði 17.02.01 12:21

Flokkun: Hagfræði