júní 19, 2001

Til hamingju með daginn!

Já, í dag er mun merkilegri dagur en sá sem var í fyrradag, því í dag eru 86 ár liðin síðan konur fengu kosningarétt (til Alþingiskosninga).
Þó verð ég að segja að enn er, því miður, mikið til í orðum Magnúsar Stephensens, þá þingmanns og fyrrv. landshöfðingja, þegar hann sagði við umræðuna um kosningarétt kvenna, að mikilvægara væri að jafna launakjör þeirra, svo þær fengju jöfn laun á við karla fyrir sömu vinnu. Engu að síður er þetta mikilvæg dagsetning í jafnréttisbaráttu landsins.
Agust skrifaði 19.06.01 08:28

Flokkun: Jafnréttismál