september 11, 2001
11.09.2001
Allir eiga eftir að muna eftir þessum degi. Ég er eflaust búinn að horfa á sjónvarpið í a.m.k. 8 klst.Andrúmsloftið inn í Viskuherbergi í dag var þungt í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Í eftirmiðdaginn horfðum við Jói og Þórir á helstu fréttstöðvarnar hérna heima og í kvöld hefur maður ekkert annað gert en legið yfir fréttunum.
Hvar var ég þegar ég frétti af árásinni á World Trade Center? Ég var að lesa inn á safni þegar Atli Rafn sagði mér að tveimur flugvélum hefði verið flogið á WTC. Mér var brugðið en meðtók samt fréttirnar strax. Hélt svo áfram að lesa í hagfræðibókinni. Eftir ca. hálfa mínútu rann það upp fyrir mér, það hafði verið ráðist á WTC, aftur, það versta sem menn hafa getað hugsað sér. Eitthvað sem maður hélt að gæti ekki gerst nema í bókum og bíó - þó svo absúrd að maður myndi ekki trúa því þetta gæti átt sér stað. Þegar ég gerði mér grein fyrir að þetta var að gerast hljóp ég upp í Viskuherbergi þar sem útsending RÚV var í gangi. Allt var troðið af fólki, nemendum og kennurum. Flestir trúðu ekki sínum eigin augum. Þegar fréttir bárust síðan af því að Pentagon stæði í björtu báli, þá vissi maður ekki hvort maður ætti að búast við að sjá morgundaginn.
200 slökkviliðsmenn eru taldir af og 78 lögreglumanna er saknað. Það eitt eru fleiri fórnarlömb en í Oklahoma. 266 fórust um borð í flugvélunum fjórum. Það er eitt einnig fleiri en í Oklahoma.
Ég trúi ekki að þarna hafi verið "main-stream" hryðjuverkamann á ferð. Þarna er augljóslega á ferð lokaður hópur öfgamanna, líklegast klofningshópur. Engin "samtök" standa að baki svona löguðu, þetta er smáhópur.
Að lokum vil ég taka undir margt sem Már segir hér.
Mestar áhyggjur núna hef ég af áhrifunum sem þetta (og nornaveiðarnar sem fylgja í kjölfarið) mun hafa á milljónir saklausra borgara, sem hafa ekkert illt gert. Eru einungis sömu trúar og hugsanlegir gerendur í þessu voðaverki. Bandarískir fjölmiðlar sýna káta Nablus-búa fagna tíðindunum. Þó tugir eða hundruðir fólks sem búið hefur við gífurlega kúgun árum saman, sérstaklega síðustu mánuði þýðir ekki að allir arabar, eða Palistínu-Arabar, séu kátir yfir tíðindunum. Meirihluti fólksins er hófsamur og óttast hvaða áhrif þetta mun hafa á ástandið í Palestínu. Bandaríkjamenn hafa skapað Frankenstein í formi öfgahópa sem nærast á afleiðingum gjörða þeirra og bandamanna þeirra - sér í lagi í Palestínu og í kalda stríðinu (sbr. Bin Laden). Nú hefur Frankenstein látið til skara skríða.
Við skulum bara vona að Bandaríkjamenn fari ekki að smala fólki í fangabúðir á grundvelli þjóðernis, rétt einsog þeir gerðu við Japani eftir Pearl Harbour. Við skulum vona að Kristalsnóttin verði ekki endurtekin - gegn Aröbum. Já, við skulum vona það besta.
Agust skrifaði 11.09.01 23:17
Flokkun: Ameríka , Daglegt líf , Fréttir , Mið-Austurlönd , Saga , Stjórnmál