september 28, 2001
f.u.s. Hafnarfirði
Það var búið að bjóða mér í eitthvert kokteilboð vegna opnunar á heimasíðu Stefnis, f.u.s. í Hafnarfirði. Ég er svo ónýtur eftir veikindi og svefnleysi að ég sé mér ómögulega fært að mæta. Mér finnst það fúlt því ég er svolítið forvitinn að sjá þessa síðu og líka fólkið sem starfar í Stefni, því ég hef ekkert verið viðriðinn starfsemi félagsins. Ég tippa samt á að síðan heiti stefnir.is, því það domain virðist a.m.k. verið skráð og það geta nú ekki margir aðrir hafa áhuga á þessu domaini. Ég hugsa að mín verði nú ekki beinlínis sárt saknað en leiðinlegt að þetta skyldi vera akkúrat núna.Agust skrifaði 28.09.01 13:51
Flokkun: Internetið