apríl 29, 2002
Fiskalíf
Skrápflúra og spærlingur, þetta er ljótu nöfnin! Fróðleik um þessa lítt-áhugaverðu fiska með fáránleg nöfn er að finna á Íslandsvefnum: Skrápflúra og spærlingur.Merkilegt að skrápflúran er skrifuð (og borin fram) með F-i, ólíkt frænkum hennar langlúrunni og þykkvalúrunni, sem eru lúrur með L-i. Ekki veit ég hvernig stendur á þessu. Allt eru þetta kvótaskyldar tegundir og flatfiskar. Þrátt fyrir að nöfnin gefi til kynna mjög líka fiska, þá eru þessar þrjár tegundir nokkuð ólíkar í útliti, en allar jafnasnalega ljótar, einsog aðrir flatfiskar.
Getur hinsvegar einhver latínudeildinni (eða sjávarútvegsdeildinni) sagt mér hvernig stendur á "anarhichas" í latneskum heitum steinbítsins (Anarhichas lupus), hlýrans (Anarhichas minor) og blágómans (Anarhichas denticulatus) (sem allt eru hræðilega ljótir og grimmilegir fiskar af borra-ætt). Þá er ég ekki að meina skýringuna sem liggur beinast við, að heiti steinbítsfjölskyldunnar á latínu er Anarhichadidae, heldur hvaða "anarkí" er þetta í heitinu. Nú veit ég að an-arkí er gríska, sem hefur þaðan komist í öll evrópsku tungumálin, hinsvegar hef ég aldrei lært latínu og hjálpartæki internetsins eru til lítillar aðstoðar í þessu tilfelli. Kannski steinbíturinn fái þetta fyrir anarkískt atferli, ég veit ekki.
Annars eru nöfn fiska á hinum ýmsu tungum á köflum skemmtileg stúdía, á norsku er steinbítur gråsteinbit, hlýrinn flekksteinbit og blágóminn blåsteinbit. Á ensku heitir steinbíturinn catfish eða wolf fish (enda lupus=úlfur), blágómi jelly wolf/catfish og hlýrinn spotted wolf/catfish. Langlúran, sem getið er hér að ofan, nefnist witch á ensku!
Ósamræmi í nöfnum er nokkuð algengt, t.d. heitir tunglfiskur (Mola mola), stærsti beinfiskur heims, ocean sunfish á ensku. Moonfish á ensku er aftur á móti guðlax (Lampris guttatus), þó nefnist hann einnig opah á ensku en guðlaxinn er af kóngaætt (Allotrignathi). Annar líttþekktur fiskur, Lúsiferinn (Himantolophus groenlandicus), sem skartar "ljóskeri" frá náttúrunnar hendi, slær samt öllum við í enskri útgáfu: Atlantic footballfish!
Þessi pistill minn er farinn að minna óþægilega á Stefán Pálsson fánabana...
Jamm :)
Lögin við vinnuna
Jæja, búinn að taka "b-flokkinn" fyrir og skrásetja allar nauðsynlegar upplýsingar (takk Fiskistofa og Skerpla, án ykkar fengi ég engan svefn). Annars er síðasti diskur kvöldins/dagsins að renna sitt skeið og því kominn tími til að fara heim að horfa á upptökuna af Silfri Egils fyrir hátinn. Hinsvegar eru þetta diskarnir sem ég hef verið að hlusta á í kvöld og dag, lögin við vinnuna (segið svo að ég skrifi bara um hagfræði og pólitík): Dionne Warwick: Dionne Warwick sings the Bacharach & David songbook, Frank Sinatra: Gretest Hits Vol. 2, Pink Floyd Dark Side of the Moon, Bob Dylan: Time Out of Mind, Trúbrot: ...Lifun, Rolling Stones: The best of the Rolling Stones - Jump Back - '71-'93, The World of Jazzhits & Evergreens og gríski sjóræningjadiskurinn Best of Cinema. Ætlar einhver að halda því fram að ég hafi eðlilegan tónlistarsmekk? Hélt ekki.apríl 28, 2002
Höfum þetta á hreinu
Það er ekki pólitískt skoðun að þykja Halldór Laxness ekkert spes rithöfundur. Ekki frekar en það er ekki pólitísk skoðun mín að Bob Dylan sé einhver merkilegasti tónlistarmaður sögunnar.Það er heldur ekki pólitísk skoðun að telja Halldór Laxness dusilmenni. Þá skoðun mína byggi ég á vitnisburði fólks sem kynntist honum, skyldmennum og óskyldum. Þetta er ekki pólitísk skoðun frekar en að segja að Woody Allen sé pervert. Reyndar er Woody Allen án efa einn mesti snillingur hvíta tjaldsins, en hann er samt pervert.
Heilagur Laxness (2. jan.)
Smá um Laxness (3. jan.)
apríl 16, 2002
Nokkur orð um fóstureyðingar
Frjálshyggjumenn eiga núna í smá orðaskiptum á netinu um lögmæti fóstureyðinga. Ég verð að segja að ég skrifa undir það sem Björgvin segir um málið. Annars ætla ég ekki að hafa fleiri orð um þetta en að benda áhugasömum að lesa eldri skrif mín um fóstureyðingar, bæði á þessari síðu (þarna er líka nokkrir tenglar um efnið) og nær sama pistil á Frelsi.isRökin gegn fóstureyðingum eru ekki sprottin af hugmyndafræðilegum toga, heldur trúar- eða siðferðislegum. Þegar umræðan í löndunum þar sem þær eru bannaðar er skoðuð sést hve smituð hún er af trúarkreddu. Í íslömsku ríkjunum þarf ekki að taka fram að bannið er af trúarlegum toga. Í kaþólsku ríkjunum, t.d. Írlandi og Portúgal, er það kaþólska kirkjan sem er fremst í flokki að berjast gegn afnámi bannsins, sama kirkja og berst gegn gegnaðarvörnum, samkynhneigð og óvígðri sambúð svo eitthvað sem nefnt.Í stuttu máli sagt: Ég er á móti banni við fóstureyðingum.
Í Bandaríkjunum er umræðan ekki síður smituð af trúarkreddu. Þeir sem kalla sig frjálshyggjumenn og berjast um leið fyrir banni við fóstureyðingum eru mikið nær því sem kallað er kristnir íhaldsmenn. Það er því sorglegt þegar hundheiðnir frjálshyggjumenn detta í fúlan pytt íhaldsemi og trúarkreddu og lepja upp rök bandarísku kristnu-konservatívanna. - Þeir hafa veikan málstað, enda berjast þeir fyrir hann aðallega í hljóði hér á landi.