júlí 17, 2002

beefolk

Þar sem ég var að linka á músíksíðu Muzaks, rak ég augun í link á síðu Heavy Metal Bee Folk, sem reyndar heitir í síðunni beefolk (I'm a bit confused). Ég hef séð marga minnast á þetta band á netinu, aðallega þó þá sem hafa síðu á klaka.net og stóð ég í þeirri trú þetta hefði eitthvað með "heavy metal" að gera.
Þetta er hinsvegar tónlist sem þú gætir gefið ömmu þinni í jólagjöf (ef amma þín á geislaspilara). Ætli ég verði ekki að játa á mig for-dóma í garð hljómsveitarinnar, þetta er bara fín tónlist, jazz, sem ég þori þó ekki að skilgreina alveg, því þessi þrjú lög sem ég er búinn að hlusta á eru nokkuð misjöfn (fjölbreytt). Sumt er polki en annað í nútímalegum stíl - en öngvin er ég tónlistargreinir.
Þetta virðist vera svona ekta tónlist sem mér hlusta á þegar ég er að vinna í tölvunni eða er þreyttur eftir erfiðan dag.
Agust skrifaði kl. 17:34
Flokkun: Menning