ágúst 31, 2002

Jórdanía

Jórdanía, land án olíulinda en með kóng með karisma - eða þannig var það. Síðan dó kóngurinn og sonur hans tók við ríkinu, Abdullah hefur ekki sama karismann og faðir hans en konan hans er þeim mun glæsilegri.
Jórdanía er land í vanda, miklum vanda. Abdullah hefur reynt að módernæsera landið og laða erlenda fjárfesta að landinu. Í næstu vikunni birtist grein um Abdullah og Jórdaníu í Forbes, Monarch on a Mission, sem er nú að nokkru leyti fullmikil lofræða að mér sýnist, en engu að síður gaman að heyra af ýmsum umbótum sem "óvænti kóngurinn" stendur fyrir. Enn er þó óralangt í land, hvort sem það er í efnahagslegu eða pólitísku tilliti. Hagvöxtur hefur verið sæmilegur, 4-5% (3% fólksfjölgun), ólíkt rauðum tölum nágrannaríkjanna, gerður hefur verið free-trade samningur við Bandaríkin og viðskipti öll hafa aukist, m.a. vegna breytinga á skatta og tollaumhverfi.

Í beinu framhaldi má geta þess að Rania drottning er 32 ára í dag. Sjá frétt í The Jordan Times:
Her Majesty Queen Rania turns 32 on Saturday. Born in Kuwait on August 31, 1970, Queen Rania earned a bachelor's degree in business administration from the American University in Cairo. She was married to His Majesty King Abdullah in 1993. Their Majesties have three children, Their Royal Highnesses Prince Hussein, Princess Iman and Princess Salma. Queen Rania, whose major interests include family welfare, child development and women's empowerment, in April launched the National Council for Family Affairs. The council looks to empower the Jordanian family, building up on its strengths and addressing the needs of the individual. On April 9 this year, Her Majesty led more than 2,000 people on a solidarity march to the headquarters of UNICEF in Amman in support of Palestinian families under siege by Israel and presented a petition to the head of the agency addressed to the UN secretary general. In the aftermath of the Sept. 11 attacks on the US, the Queen visited “ground zero” in New York. She addressed the American people in an interview after her visit and urged them to seize the opportunity to promote international dialogue and understanding
Ekki aðeins ber drottningin af í glæsileika og fegurð heldur hefur hún sinnt sínum eigin frama innan konungsfjölskyldunnar, tekið að sér mörg verkefni og situr m.a. í stjórnum alþjóðlegra ráða. Þar lætur hún óhrædd álit sitt í ljós. Auk þess er hún yfirleitt klædd fötum að vestrænni fyrirmynd, bæði innanlands og erlendis. Sést hún einungis klædd hijab þegar hún ferðast til landa á borð við Íran og við einstök tilefni, þegar annað þykir ekki við hæfi. Hún er sannarlega glæsilegur fulltrúi breytinga í Arabaheiminum.
Agust skrifaði kl. 22:30
Flokkun: Mið-Austurlönd

Vandræði S-Ameríku

But it is just too simple to blame all of this, as many do, on the supposed failure this past decade of the region's experiment in “neoliberal” economics. For one thing, there has been no such experiment; none, anyway, as uniform as the caricaturists say.

Take two examples. Chile is one of the region's more successful economies. But it has kept a giant copper firm in public ownership and was slow to relax curbs on the right of foreigners to buy shares in Chile's firms. In Brazil, President Fernando Henrique Cardoso has pursued a social democratic policy, not a “neoliberal” one. Government spending in Brazil accounts for around 40% of GDP (compared with 33% in the United States), and spending on education and health has risen.
Sjá: A backlash against the free market?

Mannfjöldi

Alveg stórmerkileg forsíðugrein í síðasta Economist (24. ágúst), Half a billion Americans?, um mannfjöldaspár fyrir Evrópu og Bandaríkin (sjá einnig leiðara). Spár gera ráð fyrir því að á næstu áratugum að Bandaríkin muni ná Evrópu ("This article uses the US Census Bureau's definition of “Europe”, which includes all countries that were not communist during the cold war") hvað mannfjölda varðar. M.v. núverandi tölur þýðir það að þá muni bandaríska hagkerfið verða þriðjungi stærra en það evrópska. Auk þess gera spár ráð fyrir því að Evrópumönnum muni fækka á næstu öld, bæði vegna lágrar fæðingatíðni og færri innflytjenda en í Bandaríkjunum. Auk þess spilar inn í að helsti innflytjendahópurinn í USA, "latínóar" hafa núna fæðingatíðni upp á næstum 3, sem er hærra mörg þróunarlönd (svipað og Perú og Egyptaland) - þó víst megi telja að fæðingatíðinin hjá þessum hópi muni lækka verulega. Svo og er fæðingatíðni almennt í Bandaríkjunum mjög há m.v. önnur vesturlönd eftir að hafa hækkað mikið á 9. áratugnum eftir lækkun á þeim áttunda.
Áhugaverð grein um málefni sem flestar framtíðarspár eiga reyndar það sameiginlegt að vera háðar miklum breytingum og standast sjaldnast. Engu að síður mjög áhugaverð pæling. Mannfjölgun mun hafa mikil áhrif á stöðu heimsmála í framtíðinni og ef þessi spá gengur eftir munu Bandaríkin halda stöðu sinni bæði betur og lengur en Evrópa - hvaða hlutverk Kína, Indland og fleiri mannmörg lönd munu öðlast í framtíðinni mun framtíðin ein leiða í ljós, það verða engu að síður miklar breytingar á næstu 30-50 árum, það er líklegast það eina sem við getum fullvissað okkur um í þessum efnum.
Agust skrifaði kl. 21:53
Flokkun: Hagfræði , Mannlíf á jörðu , Meðmæli

Heilbrigðiskerfi þriðja heimsins

Heilbrigðiskerfi þriðja heimsins eiga flest tvennt sameiginlegt, þau skortir fé og þau skortir rétta stjórnun. Í Tanzaníu hefur verið reynt að bæta þetta síðara, með góðum árangri. Um þessa endurskipulagningu fjallar special report (og einnig leiðari) í The Economist 15. ágúst: For 80 cents more
Agust skrifaði kl. 21:15
Flokkun: Afríka , Development , Meðmæli

Endurskoðendur

Certainly the interest in what people did showed a change from his Monty Python line that all accountants are dull. . . "Yes," says Cleese, "but we left out the fact they all seem to be dishonest now too." (úr viðtali FT við John Cleese)
Ég var að horfa á Monthy Python's Flying Circus um daginn og sá þetta endurskoðanda-atriði (eða voru þau kannski fleiri, veit ekki) og það var virkilega virkilega fyndið.
Agust skrifaði kl. 21:08
Flokkun: Viðskipti

Ameríkanar og bílarnir þeirra

Á BBC-vefnum skrifar correspondentinn í Washington pistil um bílamenningu Bandaríkjamanna. Þar segir m.a.:
There are environmentally aware Americans - they mostly wear beads and live in Seattle. The rest of the nation drives past them hardly noticing their presence.
Dulítið kaldhæðin sýn á Bandaríkjamenn. M.a. er minnst á mótmæli íbúa sýslu í Karólínu við fyrirhuguðum almenningssamgöngum, "We're not that kind of community" er haft eftir einum íbúanna.
Agust skrifaði kl. 18:25
Flokkun: Ameríka , Meðmæli

ágúst 29, 2002

"Sometimes it's good to be a king"

sagði Mel Brooks í History of the World. Einhvern veginn datt mér þessi tilvitnun í hug þegar ég las circa hálfs mánaðar gamla frétt Independent um ferð Fahds al-Saúd Saúdi-Arabíu konungs til Malaga. Karlinn á ekki eftir og allskonar ráðstafanir eru í gangi, t.d. flaug "sjúkrahúsflugvél" samhliða einkaþotu hans hátignar. Byggður hefur verið fullkominn spítali við villuna sem hann býr í á Malaga o.s.frv. o.s.frv. Eyðslan er ótrúleg, nóg er af peningum fyrir allskyns vitleysu fyrir kóngafólkið á meðan þorri þegnanna hefur hvorki viðunandi skóla eða heilbrigðisþjónustu.
A local florist is to supply €1,500 of fresh flowers to the palace daily during the royal visit. Five hundred mobile phones have been ordered, the palace will receive 50 specially ordered cakes a day and a direct line of credit has been set up with the nearest branch of a leading department store, which is to remain open round the clock to satisfy instantly every royal whim.
Ailing Saudi king on £4m a day vacation
Agust skrifaði kl. 20:00
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

semsagt

semsagt.net mun komast aftur í gagnið á allra næstu dögum.
Agust skrifaði kl. 19:05
Flokkun: Internetið

ágúst 28, 2002

Er ég háður internetinu?

Já.
Agust skrifaði kl. 18:03
Flokkun: Daglegt líf

ágúst 27, 2002

Hjálp!

Hef verið að færa sumt af gögnunum mínum yfir á lappann aftur. Gekk allt vel. Hinsvegar gengur lappanum eitthvað hálf brösulega að komast á netið í gegnum borðtölvuna (sem er með adsl-tengingunni).
Ég fæ mbl.is upp, ég gat uppfært xp-kerfið í gegnum microsoft.com og fékk m.a.s. simnet.siminn.is upp líka en ég get t.d. ekki fengið visir.is, ru.is eða mi.is - hvað er málið? Ef einhver getur hjálpað, vinsamlegast veri viðkomandi svo góð(ur) og senda mér póst :)
Agust skrifaði kl. 22:04
Flokkun: Daglegt líf

Nýstraujuð

Jæja, þá er laptoppinn kominn í fínt lag (virðist allavega vera). Straujaði diskinn í gærkvöldi, eftir að hafa loksins náð að færa göngin yfir á heimatölvuna til geymslu. Nú er bara að endurheimta dótið sitt á digital formi. Þar sem ég er með söfnunaráráttu á digital formi verð ég víst að velja ansi mikið og hafna, því 4GB diskurinn er ekki alveg að þola allt þetta rusl, einsog ritgerðir aftur í 10. bekk og ýmis gögn sem eru á netinu en ég geymi, skýrslur og dót sem ég ætla að lesa þegar ég hef góðan tíma (sem virðist aldrei vera).
Næsta mál er að setja Officepakkann upp og þá er tölvan orðin nothæf fyrir a.m.k. þessa önn, ef heppnin er með mér get ég sparað mér tölvukaup eitt ár í viðbót... þriggja ára gömul but still going strong :)

ps. Áðan var fyrsti tíminn hjá Jóni Ormi, þessi alþjóðaviðskiptakúrs er að leggja MJÖG vel í mig :) Held að fjármálamarkaðir verði líka skemmtilegur kúrs, en erfiður.
Tölfræðin virðist ekkert vera eins skaðleg og ég hélt en aðferðafræðin er ekki aaalveg að gera sig. Greining ársreikninga er bókhaldskúrs. Bókhald er bókhald. Svo einfalt er það.
Agust skrifaði kl. 16:09
Flokkun: Daglegt líf

Gíbraltar

Pistill dagsins á frelsi.is...
Agust skrifaði kl. 10:57
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

ágúst 26, 2002

2003

Nú hef ég síðasta rúma klukkutímann verið að lesa í bókinni sem ég á að lesa í fjármálamarkaðakúrsinum á þessari önn. Fyrst þurfti maður aðeins að einbeita sér aukalega, þar sem tungutaks-prógrammið var ekki alveg í hausnum á manni. Ég hef lítið lesið af fjármálatengdu efni í sumar og því þarf maður að dusta svolítið rykið af hugtökum og ýmsum staðreyndum. Ég komst hinsvegar að því í sumar þegar ég þurfti að eiga samskipti við Kandamann vegna vinnunnar hversu óhæfur ég er í að tjá mig um bókhald á ensku, það hafðist samt. Það var vandamálið að maður kunni ekki hugtökin, heldur hefur maður einfaldlega aldrei þurft að tala um bókfærslu á ensku. Eins er það að byrja aftur núna, maður er kominn úr allri þjálfun - tveir kaflar á viku ættu að kippa því í liðinn.
Annar höfundur þessarar blessuðu bókar hefur frekar skondið nafn, Mishkin. Mér finnst það frekar tengjast Dostjóvejskí en fjármálum.
Annað merkilegt við þessa bók er að hún kostar rúml. $100 í USA en ég keypti hana á 5.300 í Bóksölu stúdenta (með staðgr.afsl.)
Ég undra mig líka á því, hvernig geti staðið á því, að bókin sem ég er að lesa geti verið copyright 2003. Hvernig ég get lesið útgáfur næsta árs í ágústmánuði er jafnvel furðulegra en að ég fái oft Fréttablaðið (þegar það kemur á annað borð) daginn áður en það kemur út. Alveg stórmerkilegt!
Agust skrifaði kl. 0:31
Flokkun: Daglegt líf

ágúst 25, 2002

Á meltunni

Hálft kíló af grillkjöti, hálf skál af grænmeti og þrír humrar í forrétt. Var búinn að borða glás af olívubrauði með pestósósu milli mála í dag. Ekki laust við að ég sé saddur núna. Svo skil ég ekkert í því að ég komist í sífellt færri buxur í fataskápnum mínum... hmm.
Frekar írónískt að hlusta á Kastljósið um hugursneið í sunnanverðri Afríku á meðan á þessu of-áti stóð. Í dag kláraði ég svo bókina um Suðrið, las kaflana um hungur, þróunaraðstoð og mannfjölda.
Jæja, ég ætla að leggjast á meltuna.
Agust skrifaði kl. 20:16
Flokkun: Daglegt líf

Saúdar, wahabisminn og olían

Í dag skrifar Thomas Friedman pistil í New York Times um Saúdi-Arabíu, wahabismann, olíu, arabísk lýðræði og Pentagon.
[T]he Saudi ruling family stays in power not by a democratic vote from these progressives. It stays in power through a bargain with the conservative Wahhabi Muslim religious establishment. The Wahhabi clerics bless the regime and give it legitimacy — in the absence of any democratic elections. In return, the regime gives the Wahhabis oil money, which they use to propagate a puritanical version of Islam that is hostile to the West, to women, to modernity and to all non-Muslim faiths.

This bargain suits the Saudi rulers well. If they empowered the secularized, pro-American Saudis, it would not be long before they demanded things like transparency in budgeting, accountability and representation. The Wahhabi religious establishment, by contrast, doesn't care how corrupt the ruling family is in private — as long it keeps paying off the clerics and gives them a free hand to impose Wahhabi dogma on Saudi society, media and education, and to export it abroad.

So while there are many moderate Saudis who do not threaten us, there is no moderate Saudi ruling bargain. The one that exists does threaten us by giving huge oil resources to the Wahhabi conservatives, which they use to build mosques and schools that preach against tolerance, pluralism and modernity across the Muslim world — and in America. And it is our oil addiction that keeps us from ever confronting the Saudis on this. Addicts never tell the truth to their pushers.
Drowning Freedom in Oil (C) The New York Times Company 2002

Í sama blað skrifar James Baker, utanríkisráðherra Bush eldri, grein sem er athyglisvert að lesa. Hann er ekki á þeim buxunum að drífa í að ráðast inn í Írak, nema þá að mjög vel athuguðu máli: The Right Way to Change a Regime
Agust skrifaði kl. 17:13
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

ágúst 24, 2002

Oh so true

Two weeks ago I was [...] watching CNN, when on came President Bush talking about the need to deal with the threat from Iraq. I had no problem with what the president was saying. What bothered me, though, was that he was saying it in a golf shirt, standing on the tee with his golf clubs. Up to now Mr. Bush has conducted the war against terrorism with serious resolve. But he shows real contempt for the world, and a real lack of seriousness, when he says from the golf tee, as he did on another occasion: "I call upon all nations to do everything they can to stop these terrorist killers. Thank you. Now watch this drive."
Thomas Friedman, Bush's Mideast Sand Trap í New York Times.
Agust skrifaði kl. 20:38
Flokkun: Ameríka , Meðmæli

Lög og réttur í USA

Ég hef áður bent á pistla eftir Bob Herbert, þar sem hann segir annars vegar frá sérstæðu máli í Tulia í Texas og hinsvegar frá máli sem er komið upp í Choctaw-sýslu í Alabama, þar sem þroskaheft fólk hefur verið dæmt fyrir morð á barni sem ómögulegt er að hafa verið til. Nú halda báðar sögurnar áfram:
When Justice Is Mocked, Bob Herbert lýsir samtali við Robert Keahey, saksóknara á svæðinu.
A Confused Inquiry segir svo frá helstu fréttum af Tulia-málinu.
Agust skrifaði kl. 20:08
Flokkun: Ameríka , Lög&réttur , Meðmæli

Stjórnendur og stock optionir

Tvær ágætar greinar um málefni sem margir hafa rætt undanfarna mánuði, kaup stjórnenda, eftir Paul Krugman úr The New York Times: The Outrage Constraint (23/8)
Clueless in Crawford (13/8)
Agust skrifaði kl. 19:35
Flokkun: Meðmæli , Viðskipti

Evrópskir múslimar

Las áðan loksins special report í The Economist 8. ágúst s.l. sem ber yfirskriftina Muslims in Western Europe - Dim drums throbbing in the hills half heard (hægt að lesa ókeypis á netinu). Þar kemur þessi skýring á hluta af vandamálum ungra múslima í V-Evrópu frá þingmanni frá Oldham:
Phil Woolas, a local MP, says Islam's ban on alcohol was a significant contributor, along with testosterone, to last year's riots. If you're an unemployed youth, with dim prospects, sharing a bedroom with five brothers and forbidden by your parents to go out with girls or have a drink, and along come some provocative white racists, you're tempted to take them on.
Ýmsar athyglisverðar staðreyndir koma þarna fram, t.d. um atvinnuleysi Tyrkja í Þýskalandi, stöðu múslima í Frakklandi, mismunandi stig samruna fólks frá ólíkum löndum í Bretlandi o.fl. o.fl.
Sannarlega eitthvað fyrir áhugasama um íslam, múslima, innflytjendur og alþjóða-/hnattvæðingu. Niðurstöður greinarinnar eru þessar:

Lesa áfram

Í gær

...fékk ég "framlengingu" í vinnunni um viku. Mun vinna nokkra hálfa og heila daga í næstu viku í sérverkefni. Fínt, peningur er alltaf vel séður.

...horfði ég líka á brot af Indiana Jones. Handritshöfundar þáttanna hafa greinilega ENGA sómatilfinningu. Ég slökkti þegar hann var að brjótast inn í einhverja prentsmiðju, eftir að hafa reynt að binda enda á fyrri heimstyrjöldina og tekið þátt í rússnesku byltingunni. Svissaði nokkrum sinnum yfir á Rúv, þar sem verið var að sýna einhverja ofur-gelgjumynd... allavega endaði eitt atriðið á að allar sögupersónurnar (sem voru auðvitað 50/50 kynjaskipt) kysstust, þ.e.a.s. hvert "par". Setning sem mér fannst yndisleg í myndinni var "The UK will never negotiate with terrorists". Auðvitað var svo aðalsöguhetjan valin besti ræðumaðurinn (þetta snérist um einhverja SÞ-ræðu-eitthvað-keppni) og lið stelpnanna (bandarísku), UK, vann. Ljóti lordinn sá svo að sér, því hann var búinn að reyna að koma í veg fyrir að þær unnu... blablablabla... ég trúi ekki að ég hafi náð "söguþræðinum" svona vel. Sá samt bara helminginn af myndinni, og helminginn af ævintýrum Indiana Jones... rosalega var "kökuskiptingaratriðið", þar sem hann var að ræða kommúnisma og kapítalisma við kommana, fyndið.
Það sem ég segi, handritshöfundar kunna ekki að skammast sín! (og íslenskar sjónvarpsstöðvar ekki heldur, að sýna þetta rusl!)
Agust skrifaði kl. 15:15
Flokkun: Daglegt líf

ágúst 22, 2002

Tölvukennarinn talar

Ég held ég [...] verði bara eins og álfur út úr hól hvað tölvukerfið varðar, treysti svo bara á að Toni reddi mér þegar á þarf að halda.
Þetta segir maðurinn sem mun þyggja laun af Verzlunarskólanum fyrir tölvukennslu! :-P
Agust skrifaði kl. 22:49
Flokkun: Daglegt líf

Lesi lesi lesi

Þetta er skemmtilegur pistill: Forsendur frekari þróunar (lesist: burt með Framsóknarflokkinn!)
Þetta er skemmtilegur pistill: Hugsið smátt. Og umfram allt: ekki græða! (lesist: burt með Framsóknarflokkinn!)

Mér fannst líka svolítið skondið að lesa þessan pistil, þar sem ég lendi reglulega í "deilum" við kvenfólk (sem í mínum huga er af "gamla skólanum") um það hvort það sé "sjálfsagt" að konur geti "valið" að vera heima "að sinna börnunum" o.s.frv. Fyrir mér er þetta hámarks contra-femínismi, skrefið aftur stigið inn í eldhúsið... allavega, ég get látið þessa afstöðu pirra mig frekar mikið. Á móti skilja húsmóðurlega þenkjandi konurnar ekki að mér finnst þetta hálfpartinn metnaðarleysi og uppgjöf. Hvað um það, nenni ekki að tuða um þetta núna.
Samt skemmtilegt hvað þessum "húsmæðrum" finnst það alltaf fjarlægð hugsun að karlar geti "valið" að vera heima "að sinna börnunum".

Svo ég haldi áfram að vísa í Tíkina, þá er forsíðu-voffið núna að nígerísk kona hafi verið dæmd til dauða og eigi að verða grýtt fyrir að eignast barn utan hjónabands (eldgömul frétt). Ég heyrði frétt um það á BBC fyrr í kvöld að stjórnvöld í Abuja (eða öllu heldur dómsm.ráðh. landsins) hafi tekið afstöðu gegn dóminum. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig framhaldið verður, því hin íslömsku norður-héruð munu ekki taka þessu þegjandi og hljóðalaust.
Ef norðanmenn verða með einhver læti, þá er háttvirtur Olusegun Obasanjo svosem ekki þekktur fyrir að vera aðdáandi ólátaseggja.
Agust skrifaði kl. 22:18
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál