september 22, 2002
Juana la Loca
Í gær fór ég á myndina Juana la Loca, Jóhanna brjálaða, sem sýnd er á spænskri kvikmyndahátíð.Kvikmyndin segir frá Jóhönnu brjáluðu, einsog nafnið gefur til kynna, sem er erfingi Spánar um 1500 og giftist Filipusi, syni Austurríkiskeisara.
Hann heldur fram hjá henni (og auðvitað er eina rauðhærða hirðmey Jóhönnu sú sem svíkur hana) og það ítrekað. Hún verður hysterísk yfir þessu öllu og virðist hafa ýmsa "óviðeigandi" tendensa. Foreldrar hennar deyja síðan og þau taka við Spáni. Filipus heldur uppteknum hætti, fær sér fryllu sem stundar kukl og gerir hana að hirðmey Jóhönnu. Jóhanna verður sífellt brjálæðari og Filipus lætur gera hana valdalausa af þingi aðalsmannanna. Jóhanna má ekki vera að því að hugsa um það, því hún er að reyna að finna út hver sé að halda við karlinn hennar. Svo tekur Filipus sótt eftir að hafa gert Jóhönnu valdalausa og drepst. Jóhanna verður aldrei heil á geði eftir það og býr í klaustri (eða einhverju álíka) það sem eftir er ævinnar, lætur opna kistu Filipusar endrum og eins til að heilsa upp á hann.
M.ö.o. snýst myndin um klassísk viðfangsefni kóngafólksins; kynlíf, svik og geðveiki.
Fókusinn í myndinni var aldrei til friðs, allavega náði það að fara í taugarnar á mér. Ýmis smáatriði voru að fara í taugarnar á mér, auk þess sem mér fannst skýringin á "geðveikinni" í Jóhönnu heldur aldrei vera útskýrð á annan hátt en þann, að karlinn hélt fram hjá henni og hún var obsessed á því. Fabio-tvífarinn sem leikur Filipus er oft hálf hlægilegur á köflum.
Ég varð allavega fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa mynd, leyfði mér að búast við mun meiru. Hún á allavega ekki eftir að vera eftirminnileg í minningunni, nema ef væri fyrir það að ekki einu sinni enski textinn var alltaf í fókus! Myndatökunni var auk þess ábatavant.
Þetta gerði það líka að verkum að maður fór að efast um hversu vandað handritið væri m.v. upprunalegu söguna.
Niðurstaðan, ég myndi helst ekki gefa henni meira en tvær og hálfa stjörnu af fimm mögulegum, tvær ef miðað er við fjögurra stjörnu kerfið.
Agust skrifaði 22.09.02 14:53
Flokkun: Menning