september 30, 2002
"Why do you sound like a Magic 8 Ball, teacher?"
Frekar fyndin frásögn af litlum prinsi og ráðgjafa hans, sem minna óneitanlega á Bush og Rumsfeld, sem Maureen Dowd skrifar í NYT í gær. Why? Because We Can.september 27, 2002
Singapore
Í Washington Post birtist grein eftir David Ignatius, Ready to Rumble In Singapore, um Lee Kuan Yew, manninn sem stjórnaði Singapore í áratugi. Byggði þar upp land sem er eitt merkilegasta markaðshagkerfi í heiminum en er nær alræðisríkjum að vissu leyti en vesturlöndum, því ekki er of miklu lýðræði fyrir að fara í landinu þar sem tyggjó er bannað.Prentvillupúkinn
Skemmtileg prentvilla á Mbl.isKæmi mér mjög á óvart að Uday væri að messa yfir berlínskum stúdentum :)
Frelsi til að lifa - og deyja
Skv. frétt á BBC-vefnum er nú verið að kanna lögleiðingu líknardráps á Guernsey, einni Ermasundseyja, sem þrátt fyrir að vera breskar tilheyra ekki Sameinaða konungsveldinu Bretlandi, heldur eru sér "ríki" út af fyrir sig, bara undir breskri stjórn.Það hljóta að teljast góðar fréttir, því hver einstaklingur hefur rétt til að lifa - og deyja.
Annars skrifaði ég einu sinni pistil um málið á Frelsi.is
Af ljóskum og rauðhausum
Þetta hlýtur að vera föstudagsfrétt dagsins: Blondes 'to die out in 200 years' (BBC)Fyndnast fannst mér setningin
The researchers also believe that so-called bottle blondes may be to blame for the demise of their natural rivals.Þetta er víst ekkert grín. Þetta er samt ein af þessum niðurstöðum sem virðast helst benda til að rannsakendurnir ættu að anda að sér meira að fersku lofti.
They suggest that dyed-blondes are more attractive to men who choose them as partners over true blondes.
Í fréttinni er vísað á aðra ljósku-frétt, þess efnis að ljóskur séu (enn) álitnar heimskar. Þar stendur líka að dökkhærðar séu álitnar feimnar.
Ég held reyndar að hluti af skýringunni með ljóskurnar er að við efumst mörg ómeðvitað um vitsmuni fallegs fólks. Kannski þetta sé allt Marilyn Monroe að kenna en persónulega veit ég líka með sjálfan mig, að ósjálfrátt véfengi ég vitsmuni fallegs fólks. Á sama hátt og ég geri ósjálfrátt ráð fyrir því að lúðalegt fólk sé vel gefið og vel upplýst. Auðvitað er fólk, fallegt og lúðalegt, jafn misjafnt og það er margt, en engu að síður tek ég eftir þessum vægu fordómum hjá sjálfum mér.
Annars er kannski með þetta einsog okkur rauðhausana. Í grein sem ég las í sumar um DV, og var reyndar mjög óvísindalega unnin og mikil froða, þá var niðurstaðan um rauðhærða sú, annaðhvort fer það illa með sjálfsmynd fólks, eða styrkir hana og gerir það sannfært um eigið ágæti. Svona dæmi um, "ef það drepur þig ekki, styrkir það þig". Kannski þar sé komin skýringin á ímynd rauðhærða karla að þeir séu skapstórir og rauðhærða kvenna að þær séu brjálæðir elskhugar, hvort tveggja þá afleiðing rauðhærðrar sannfæringar um eigin ágæti.
Svona rugl-vísindi eru auðvitað tóm þvæla og eiga hvergi heima nema í Cosmopolitan og helgarblaði DV, en það er samt skemmtileg pæling hvaða áhrif háralitur hefur á fólk. Kannski dökkhærða fólkið sleppi betur en við rauðhausarnir og ljóskurnar blessaðar, enda meirihluti mannkyns dökkhærður. Hver veit, ef Sting hefði t.d. fæðst rauðhærður, þá hefði hann kannski sungið "I'm a red-haired man in New York".
En einsog ég segi, þessi umræða er á afskaplega miklu kerlingablaðaleveli. Gleðilegan föstudag!
Uppfært: Neyðarlegt að skrifa "Marilyn Monroe" vitlaust í texta um ljóskur :)
Just DON'T do it!
Nicholas Kristof er staddur í Írak og skrifar grein í NYT í dag:"Sometimes the American Awacs planes warn us on the radio," explained an Iraqi pilot who was amused at my anxiety. "They say, `You are entering a no-fly zone and must turn around.' We reply, `This is Iraqi air space and we're going to fly through it.' "Annars ætla ég að reyna að útvega mér eintak af NYT í gær, þ.e.a.s. prentútgáfunni. Auglýsingin sem minnst var á í fréttunum á RÚV virðist einnig vera birt á vef Cato Institute, en rökin setti Ivan Eland, "director of defense policy studies at the Cato Institute", fram í grein á Cato-vefnum í ágúst: Top 10 Reasons Not to "Do" Iraq
[...]
Instead of protecting its borders, Iraq will hide its army within its cities, where air strikes are effective only at an unacceptable (for America) cost in civilian deaths.
[...]
Our last experience with street-to-street fighting was confronting untrained thugs in Mogadishu, Somalia. This time we're taking on an army with possible bio- and chemical weapons, 400,000 regular army troops and supposedly seven million more in Al Quds militia.
[...] Most Iraqis seem to have no love for Saddam, and the great majority will probably spend the war hiding under their beds. But if even a tiny proportion of the braggarts are serious, then look out. Moreover, some tribes are armed with mortars and large-caliber machine guns, so that even if they could not stop tanks rolling through to Baghdad, they could seriously hurt an American army of occupation.
september 26, 2002
Ó, mig auman
Ég byrjaði á að horfa á umræðu stjórnmálahöfðingjanna í Kastljósinu en gafst upp. Þvílík leiðindarumræða. Tilbreyting að sjá Davíð mæta í settið en senda ekki baunateljarann fyrir sig.Eva María, sem er yfirleitt sæt og fín, var í einhverju skelfingar dressi núna. Rauða bindið hans Össurar ætti líka að fjúka. Rauð bindi eru einkenni bandarískra stjórnmála og ættu íslenskir stjórnmálahöfðingjar því að forðast þau.
Það sem er hinsvegar mun jákvæðara er að ég fór í fiskbúðina í vikunni og mér til mikillar ánægju voru þau með súran hval til sölu. Keypti mér bita á tæpan þrjú þúsund kílóið. Sé ekki eftir því, enda var súr hvalur eitt það besta sem ég fékk þegar ég var lítill. Ég fékk að smakka í fiskbúðinni, hafði ekki smakkað hann síðan ég var polli; dejavu-móment. Þegar ég var lítill var venjulega keypt hvít plastfata af súrum hval á þorranum. Þá voru jólin hjá Gústa litla :)
Sama reglan gildir um súran hval og hárkarl: Því hvítari, því betri.
Uppfært: Prentvilla löguð. Geir er víst baunateljari, ekki beinateljari.
september 25, 2002
Jordanian Wedding
Ættflokkar hittast í brúðkaupi. Annar ættflokkurinn móðgar hinn. Maður liggur valnum. Hvað gerist?Outraged over the murder, the source continued, a group of his family members headed to the homes of the other clan “setting their houses on fire, and destroying some of their cars.”Er þetta ekki svipað og skóggangur í íslenska þjóðveldinu? Kannski ekki alveg það sama en svipað.
“Armed with cloths soaked in a flammable material, the group broke down doors and windows setting [homes] ablaze,” the source added.
The assailants' families, explained the official, were exiled from their homes following the shooting incident, which he added meant no one was injured.
Exile is a form of punishment exercised by Jordanian tribes, which requires five generations of an individual who commits murder to evacuate their homes.
Tribal exile is an attempt to avert extended blood feuds by tribes, minimising material loss, punishing the culprit and separating concerned parties.
©Jordan Times
Yfir á rauðu ljósi
Skondið, þekktasta ævisaga Ariels Sharon á hebresku nefnist Hann stoppar ekki á rauðu ljósi. (src)Viðeigandi.
Annars fjallar pistill Friedmans í dag um hversu hættulegur Ariel Sharon sé og hversu sorry Bandaríkjamenn eiga eftir að vera, þegar hann verður endanlega búinn að koma þeim í öngstræti.
september 24, 2002
Írak eftir Saddam
Ég hef enga samúð með Saddam Hussein, en ég óttast aftur á móti mjög hvað muni gerast þegar hann verður farinn frá völdum. Í landi þar sem minnihluti hefur kúgað meirihluta íbúanna (og það með mjög brútal aðferðum oft) - og það tvær minnihluta þjóðir, frekar en eina - þar óttast ég hvað gerist þegar harðstjórinn er farinn. Þar hef ég litla trú á að verði ekki borgarastyrjöld. Þar hef ég litla trú á að lýðræði komist á og þar hef ég litla trú á að Bandaríkjamenn muni halda rétt á spilunum. Þar hef ég enga trú á að komist á friður.Afganistan er enn tiltölulega friðsamt land í dag. Ef þar verður friðsamt og þróun í rétta átt eftir tvö ár, þremur árum eftir fall Talibananna, þá skal ég trúa því að þar geti komist ekki varanlegur friður, ekki fyrr. Annars trúi ég því ekki fyrr en ég hef séð það, að varanlegur friður og lýðræðisþróun taki við í Afganistan - en auðvitað útiloka ég það ekki.
Í Írak er hinsvegar við allt annan veruleika að eiga. Af ótal ástæðum, pólitískum, menningarlegum, theológískum, geografískum o.fl., munu vandamálin við "stjórnarskiptin" vera önnur og fleiri í Írak en í Afganistan. Í dag er þar að auki mjög erfitt að sjá að fræðilega sé mögulegt að fara út í þessar aðgerðir, öðruvísi en að allt fari rass yfir haus. Ég ætla ekki að spá öðru Víetnam, en sumir í Washington gætu fundið sig í kunnuglegum aðstæðum.
Lesa áfram
Rambo Airlines
Dr. Bob Rajcoomar, a U.S. citizen and former military physician from Lake Worth, Fla., found himself handcuffed and taken into custody last month in one of the many episodes of hysteria to erupt on board airliners in the U.S. since the Sept. 11 attacks."Í High-Altitude Rambos rekur Bob Herbert sögu fyrrverandi indversksættaðs læknis í hernum, Rajcoomar að nafni, sem var handtekinn að tilefnislausu. Hann var farþegi í flugvél, þar sem annar farþegi, alveg óviðkomandi lækninum, lét illa og tveir marshallar úr bandaríska hernum tóku sig til og færðu hann (ókyrrláta farþegann) í handjárn og bendu að honum byssu. Því næst sögðu þeir öllum farþegunum að sitja í sætum sínum og ekki einu sinni fara á klósett.
Bæði farþeginn ókyrrláti og læknirinn voru handteknir eftir lendingu og færðir í varðhald. Hvorugur var kærður. "A spokesman offered the absurd explanation that Dr. Rajcoomar was detained because he had watched the unfolding incident "too closely."
Úrena
Þegar ég var stopp á rauðu ljósi á leiðinni heim áðan, sá ég mann standa fyrir aftan strætóskýli og var í undarlegum stellingum. Hann var að kasta af sér vatni. Einsog svo mörg önnur strætóskýli í dag var þetta úr gleri.Maður sér þetta ekki á hverjum degi.
"the guillotine was certainly in the family"
"You must never give the guy time to think. Because if you do he starts moving his head around, and that's when you have the mess-ups. The blade comes through his jaw, and you have to use a butcher's knife to finish it off."Fernand Meyssonnier, sem vann sem böðull í Alsír í 21 ár frá 1947. Hann er nú að gefa út endurminningar sínar og segir sögur úr böðulsbransanum. Hann afreiddi 200 fanga, aðallega Araba í Alsírstríðinu. Böðulsbissnissinn var bara aukavinna, einsog gefur að skilja. Hann byrjaði sem aðstoðarmaður föðurs síns en þess utan var hann vert á bar og kommúnisti.
Alþjóðvæðingin
Á sunnudaginn var birtist grein eftir Thomas Friedman í NYT, Globalization, Alive and Well. Þar segir m.a.:"Globalization fatigue is still very much in evidence in Europe and America, while in places like China and India, you find a great desire for participation in the economic expansion processes," said Jairam Ramesh, the Indian Congress Party's top economic adviser. ". . . Even those who are suspicious now want to find a way to participate, but in a way that manages the risks and the pace. So we're finding ways to `glocalize,' to do it our own way. It may mean a little slower growth to manage the social stability, but so be it. . . . I just spent a week in Germany and had to listen to all these people there telling me how globalization is destroying India and adding to poverty, and I just said to them, `Look, if you want to argue about ideology, we can do that, but on the level of facts, you're just wrong.' "Alþjóðavæðing er vissulega ekki eina forsendan fyrir hagvexti landa en það er óvéfengjanleg staðreynd að þau lönd sem beita sér gegn henni sitja eftir. Aðrir þættir geta vissulega haft mikil áhrif, t.d. stjórnarfar og stríðsrekstur, en út af fyrir sig bætir alþjóðavæðingin kjör fólks, þó einstaka hópar geta orðið tímabundið útundan, því verður ekki neitað. Fórnirnar eru aftur á móti smávægilegar (og í langflestum tilfellum tímabundnar) m.v. ávinninginn sem hlýst af aukinni alþjóðavæðingu.
23. september
Gleymdi að geta þess í gær að 23. september er þjóðhátíðardagur Saúdi-Arabíu. Konungsfjölskyldan keypti heilsíðu auglýsingu í síðasta tbl. The Economist til að auglýsa að ríkið væri á móti hryðjuverkum, kjarnorkuvopnum í Mið-Austurlöndum, o.fl. Frekar skondin auglýsing að sjá (hér má sjá textann).Konungsríkið Saúdi-Arabía var stofnað 23. september 1932 og voru því 70 ár liðin frá stofnun ríkisins í gær.
september 23, 2002
Arabíska, 1. tími
Fyrsti tíminn í arabískunámskeiðinu mínu var í kvöld. Þetta leggst MJÖG vel í mig allt saman. Tíminn í kvöld fjallaði um stafrófið, hljóðin sem stafirnir mynda o.s.frv. Komumst ekki alveg í gegnum allt stafrófið, enda það arabíska að nánast öllu leyti frábrugðið því latneska.Ég held að þetta verði bara mjög skemmtilegt námskeið, allavega bíð ég bara spenntur eftir næsta tíma.
Alltaf jafn skemmtilegt þegar eitthvað gjörsamlega óskiljanlegt byrjar aðeins að meika sens fyrir manni. Bara það að geta greint stafina í sundur breytir heilmiklu, þetta er þá allavega ekki algjörlega óskiljanleg tákn.
Tisbah(i) al Kheer!
The Disturbing “Rise” of Global Income Inequality
Á föstudaginn kláraði ég að lesa meginhluta greinar Xaviers Sala-i-Martin, The Disturbing “Rise” of Global Income Inequality (sjá einnig grein í Economist um hana). Hún kemur inn á ýmis mjög áhugaverð atriði (ef manni finnst hagþróun og skipting auðs í heiminum heillandi viðfangsefni), en til að segja frá niðurstöðunum fáum setningum, þá eru niðurstöður Sala-i-Martin þær, að misskipting auðs í heiminum er ekki að aukast. Þvert á móti eru fleiri og fleiri farnir að búa við betri kjör, t.d. stærri hluti Kínverja og Indverja, eftir að löndin opnuðu markaði sína í auknu mæli. Aftur á móti standa í sumum tilfellum heilu Afríkuþjóðirnar í stað (t.d. Kóngó (Zaire) og Tansanía), sem er meiri höfuðverkum, en að þeir fátækustu séu að dragast frekar aftur úr. Málið er nefnilega að þeir ríku verður ríkari, fleiri verða ríkari, en enn eru einstaka þjóðir fastar í sárri fátækt. Fátækum fer engu að síður fækkandi og því er misskipting auðs minni en áður.Sala-i-Martin kemst svo að orði (p.39):
Lesa áfram
Arabíska
Apríl á arabísku er "nissan". Ætli Nissan noti Datsun-merkið í Arabaheiminum?3. persóna fleirtölu í arabísku (þeir) er "homma".
Orðasambandið "ekkert mál" (no problem) útleggst á arabísku "mish mushkila", sumsé borið fram einsog "Miss Mushkila". Svo er líka "ekkert" frekar skondið orð, "wallahagga". Aftur á móti virðist ekki vera "mish".
Var að skoða síður með svona basic-orðum, þar sem ég er svo spenntur að ég get ekki beðið. Námskeiðið byrjar eftir klukkutíma, jibbíjei!
Alveg óþolandi
...að mæta í skólann það seint að maður kann ekki við að mæta í tíma, ákveður að bíða eftir næsta tíma og kemst þá að því að kennarinn er veikur, þannig það er ekki tími fyrr en eftir tvo klukkutíma! Þannig var þetta í morgun. Sérstakleg pirrandi að ég hefði getað verið heima að klára verkefnið sem ég þarf að skila fjögur. Kom heim, þar sem ég á bæði mat og gott kaffi. Svo er ég líka pirraður yfir því að ég skuli hafa fengið 7,5 fyrir fyrsta verkefnið í aðferðafræði. Af hverju? Hún var að fetta fingur út í að ég skuli nota skammstafanir!!! Síðan hvenær var bannað að skrifa "t.d." og "m.a."?? Er ekki allt í lagi með fólk?!!Besta athugasemdin finnst mér:
*** Auglýsing um greinamerkjasetningu 5. gr:Jájá, gott.
„Milli aðalsetn. og aukasetn. skal aldrei setja kommu.“
(undantekn.: Innskotssetn. + setningarunur)
Gott af því að vita að íslenskulögfræðingar leynast víða.
Mannfræðirannsóknir
Mannfræðirannsóknir á gelgjum geta verið áhugaverðar. Sérstaklega ein hérna, göngulagið er mjög skondið og allir tilburðirnir við tal. Hún situr á næsta borði við mig. Nú fór hún og sótti sér hnífapör - til að borða kleinuhringinn sinn með.Áðan var hún að tala um einhvern sem ég náði ekki hvort væri kærastinn eða vonandi-verðandi-kærasti. Þessi nær alveg 12 "Ó-mæ-gad"-um á mínútu, sem er mjög gott og töluvert yfir meðaltali. Nú setur hún á sig lúffurnar sínar og stendur upp, vinkona hennar fer með henni, fylgir henni einsog skugginn. Sú er hálf strákaleg í útliti og hengir sig greinilega mikið á hina. Ég þori að veðja þúsundkalli að þessi strákalega hafi byrjað að reykja í 9. bekk - til að vera cool. Þær sátu á sér borði, borðið við hliðina á þeim var þéttsetið af genjúín verzlógelgjum. Ég var ekki í aðstöðu til að fylgjast með þeim.
Hin vinkona okkar gæti aftur á móti verið litla systir einnar stelpu sem ég þekkti í Verzló, er það samt ekki, bara tvífari. Skyldi þessi líka vera úr Mosó? Vinkona hennar var pottþétt úr Grafarvoginum eða Breiðholtinu, án þess að ég hafi nokkuð fyrir mér í því.
A-ha!
Nú veit ég, fjöldinn af gelgjum hefur aukist í svona 25-30 stk. Auðvitað er þetta krakkar úr Verzló, því tvær stofur uppi eru leigðar út til Verzlunarskólans. Hlaut að vera, ég hélt að ég væri að verða geðveikur.Hjúkket!
Hvað svaf ég eiginlega lengi??
Hvað er að gerast? Ég gæti verið pabbi sömra krakkanna í kringum mig hérna í kaffiteríunni í HR. Hvað er málið??Ég er ekki alveg að skilja.
september 22, 2002
Silfrið
Silfur Egils er byrjað aftur og er það auðvitað fagnaðarefni. Vona að Egill taki sig á í vali á viðmælendum. Nú er alræmdur kosningavetur og því hætta við að hann fari að bjóða of mikið af atvinnupólitíkusum í þáttinn. Þá nenni ég ekki að horfa, því það eru undantekningar þegar slíkt fólk segir eitthvað af viti í svona prógrömmum. Ef maður vill horfa á Sjálfstæðisþingmenn verja Davíð eða Samfylkingarþingmenn dásama Össur sem leiðtoga, VG-þingmenn setja plöturnar hans Steingríms á fóninn eða yfirhöfuð sjá nokkuð af Framsóknarþingmönnunum, þá getur maður horft á Kastljósið eða kosningasjónvarpið í vor. Hver vill t.d. hlusta á Jónínu Bjartmarz ótilneyddur? Ekki ég! Nú, eða mannvitsvatnsdalshólinn Jón Bjarnason? Eða konung leiðindanna, Andrés Magnússon? Pant ekki!!Þátturinn í dag var faktískt séð ekkert sérdeilis skemmtilegur, þýsku kosningarnar voru reyndar nokkuð áhugaverðar, þar sem ég veit svo gott sem ekkert um þær.
Síðasta haust fékk ég pólitískt óþol. Ég veit ekki hvort ég er farinn að finna fyrir því aftur.
Eftir bíóið
...fórum við Þórir á Ara í Ögri, þar sem ungir alræðissinnaðir öreigar höfðu safnast saman eftir UVG-þingið.Þar var Óli Njáll í ófremdarástandi og fór mikinn. Átti spjall við Stefán Pálsson en sökum sundlaugarbarspíanóleikara dauðans og mikils hávaða á staðnum, heyrði ég ekki nema helming þess sem hann sagði. Var orðinn svo þreyttur á að öskra HA! við annarri hverri setningu sem hann sagði að ég jámkaði bara kinkaði kolli í takt við House of the Rising Sun og hvað píanóglamrarinn var að spila. Hvað er málið með að troða tónlistarflutningi inn á svona lítinn stað, þar sem allir eru hvort eð er bara að spjalla yfir áfengum veigum? Náði engu að síður sögunni á bak við Turk 182, sem segir margt um íslenskan húmor.
Svo bíð ég spenntur að sjá hvort Stefán standi við stóru orðin ;-)
Síðan rötlum við Þórir á Bæjarins beztu (nema hvað) og fengum okkur pulsu(r). Þar með var þeirri bæjarferð lokið.
Juana la Loca
Í gær fór ég á myndina Juana la Loca, Jóhanna brjálaða, sem sýnd er á spænskri kvikmyndahátíð.Kvikmyndin segir frá Jóhönnu brjáluðu, einsog nafnið gefur til kynna, sem er erfingi Spánar um 1500 og giftist Filipusi, syni Austurríkiskeisara.
Hann heldur fram hjá henni (og auðvitað er eina rauðhærða hirðmey Jóhönnu sú sem svíkur hana) og það ítrekað. Hún verður hysterísk yfir þessu öllu og virðist hafa ýmsa "óviðeigandi" tendensa. Foreldrar hennar deyja síðan og þau taka við Spáni. Filipus heldur uppteknum hætti, fær sér fryllu sem stundar kukl og gerir hana að hirðmey Jóhönnu. Jóhanna verður sífellt brjálæðari og Filipus lætur gera hana valdalausa af þingi aðalsmannanna. Jóhanna má ekki vera að því að hugsa um það, því hún er að reyna að finna út hver sé að halda við karlinn hennar. Svo tekur Filipus sótt eftir að hafa gert Jóhönnu valdalausa og drepst. Jóhanna verður aldrei heil á geði eftir það og býr í klaustri (eða einhverju álíka) það sem eftir er ævinnar, lætur opna kistu Filipusar endrum og eins til að heilsa upp á hann.
M.ö.o. snýst myndin um klassísk viðfangsefni kóngafólksins; kynlíf, svik og geðveiki.
Fókusinn í myndinni var aldrei til friðs, allavega náði það að fara í taugarnar á mér. Ýmis smáatriði voru að fara í taugarnar á mér, auk þess sem mér fannst skýringin á "geðveikinni" í Jóhönnu heldur aldrei vera útskýrð á annan hátt en þann, að karlinn hélt fram hjá henni og hún var obsessed á því. Fabio-tvífarinn sem leikur Filipus er oft hálf hlægilegur á köflum.
Ég varð allavega fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa mynd, leyfði mér að búast við mun meiru. Hún á allavega ekki eftir að vera eftirminnileg í minningunni, nema ef væri fyrir það að ekki einu sinni enski textinn var alltaf í fókus! Myndatökunni var auk þess ábatavant.
Þetta gerði það líka að verkum að maður fór að efast um hversu vandað handritið væri m.v. upprunalegu söguna.
Niðurstaðan, ég myndi helst ekki gefa henni meira en tvær og hálfa stjörnu af fimm mögulegum, tvær ef miðað er við fjögurra stjörnu kerfið.
september 20, 2002
BS nám í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðasamskipti - HÍ
Ég heyrði af þessu nýja námi s.l. vor og var nokkuð spenntur að sjá hvernig það yrði, þar sem mér vitandi hefur ekki verið boðið upp á heilsteypt nám í alþjóðasamskiptum/viðskiptum fyrr í HÍ. Boðið hefur verið upp á diplómanám í einhvern tíma í "markaðs- og útflutningsfræðum".Ég var að skoða lýsinguna á náminu og varð fyrir töluverðum vonbrigðum, því miður.
Svona er framvinda námsins: Á fyrsta ári eru teknir grunnkúrsar, nákvæmlega einsog á öðrum viðskiptafræðinámsleiðum; Rekstrarhagfræði I og II, Reikningshald I og II, Stærðfræði A, Þjóðhagfræði I, Stjórnun I, Aðferðafræði, Upplýsingatækni og Tölfræði IA.
Þegar kemur fram á haustönn 2. árs eru fjögur námskeið af fimm eins á allur leiðum; Reikningshald III, Tölfræði B, Fjármál I og Markaðsfræði I. Þá er eitt val tungumál fyrir nemendur á alþjóðasamskiptaleið.
Á vorönn 2. árs eru kúrsar í Rekstrarstjórnun I, Markaðsfræði II, Stjórnun II og Tjáningu og samskiptum, alveg einsog á öllum öðrum leið viðskiptafræðináms við HÍ en en svo eru sérkúrsinn á alþjóðasamskiptaleið "Tungumál AII", sumsé framhaldskúrs í tungumálinu fyrrnefnda.
Þriðja árið er skiljanlega frúbrugðnasta árið. Á haustönn er Viðskiptaenska I og Lögfræði A skilda. Skil lögfræðina en að kenna viðskiptaensku sem skildukúrs á öllum leiðum finnst mér fáránlegt, þetta ætti að vera valkúrs, en hvað um það, ekki mitt vandamál. Nú er tveir tungumála kúrsar enn fyrir alþjóðasamskiptanema, þriðji kúrsinn í áðurnefndu tungumáli og Tungumál BI, auk Utanríkisverslunar (sem markaðsfræðinemar taka líka sem skildu) - loksins að það kom eitthvað viti.
Á vorönn halda vonbrigðin áfram, fjórði tungumálakúrsinn (Tungumál AIV) og annar tungumál-B-kúrsinn (Tungumál BII). Auk þess kennd Hagstefna Evrópusambandsins og svo er 6e. BS-ritgerð. (src)
Með öðrum orðum er leið C í viðskiptafræði HÍ, alþjóðasamskipti, tungumálanám og ekkert annað. Gætir allt eins tekið 60e. í viðskiptafræði og 30e. í einhverju tungumáli. Alveg fáránlegt finnst mér.
Auk þess skil ég ekki hvers vegna ekki er enn farið að kenna hnattvæðingarkúrsa upp í HÍ, nema í Félagsvísindadeild. Alveg furðulegt. Maður verður alltaf sáttari og sáttari við HR þegar maður skoðar námið í HÍ. Ekki það, að ég hefði aldrei farið í viðskiptafræði í HÍ, það kom aldrei til greina, enda alls ekki áhugavert nám að mínu mati - og ekki skánar það.
Ég verð samt að hrósa Viðskipta- og hagfræðideild fyrir að hafa tekið upp diplómunám í hagfræði, það finnst mér mjög sniðugt.
Á að drepa mann lifandi?
Það er komin einhver regla á að misbjóða manni með enn annarri mynd með þeim systrum Ashley og Mary Kate.Er til eitthvað amerískara en þessi viðbjóður um gelgjur dauðans þar sem allt gengur út á að vera vinsælust og sætust, þær enda alltaf á að kyssa sætustu strákana og feisa vonda karlinn/vondu stelpuna. Núna eru þær í Ástralíu, á flótta undan austur-evrópskri mafíu.
Handritin eru afrek, að geta komið svona mörgum lélegum frösum og fimmaurabröndurum fyrir á 90 mínútum er afrek.
Það hlýtur líka að vera afrek að ná þeim árangri sem þessar stelpur hafa náð (sjá biography á imdb.com) í að fjöldaframleiða þriðja flokks táningamyndir um mikilvægi þess að vera cool og vinsæl gelgja í magabol sem nær í flottasta strákinn og nár sér niður á vonda karlinum/vondu stelpunni. Þess má geta að í þessari mynd er greinilega samningur við Diet-Coke.
Já, og systir mín horfir á þessar myndir. Hún er líka markhópurinn, ekki ég, en ég hef séð of mikið af þessum myndum með því að vera í tölvunni í sama herbergi og hún horfir á sjónvarpið.
Rosalega er ég pirraður þessa dagana...
Kaupþing
Fór í vísindaferð áðan í Kaupþing. La-la tour, fín kynning hjá Manga, fínar veitingar en slapt rauðvín.Nennti ekki frekari útiveru. Ég er latur maður. Ég er þreyttur maður. Ég er innipúki.
Army Surplus
Hér geta Bandaríkjamenn (og aðrir) keypt sér ýmiskonar varning frá ísraelska hernum, allt frá plakötum til gasgríma fyrir ungbörn (reyndar getur maður skilið eftirspurn eftir gasgrímum meðal Ísraela)."Car stickers" sem bjóða upp á ýmis skilaboð fást þarna líka.
Allavega, ég fæ alltaf hroll þegar ég sé svona hernaðarhyggju-síður (þessi auglýsti á síðu The Jerusalem Post) - að það er líklegast ágætur bissniss í að selja Ameríkönum minjagripi frá ísraelska hernum. Ég var reyndar við því búinn að sjá enn vafasamari varning, enda nóg er til að brjálæðingum, í öllum þjóðfélögum.
Nema ég sé bara brjálaður friðarsinni að hafa óbeit á hernaði(?).
Neyðin kennir...
Svolítið skemmtileg frétt: Woman slugs Zarqa thugsThe witnesses said the young woman took off her Islamic dress, put it aside and surprised one of them with fast and skilful kicks to the face and chest. The first two landed on the ground, screaming in pain, while she dealt with their friend judo-style. She grabbed him and threw him down on top of his friends. A shopkeeper said that the trio were always harassing women in the area.Nokkuð myndræn lýsing, "The woman continued on her way while the crowd that had assembled cheered her", maður sér þetta alveg fyrir sér, einsog atriði úr The Karate Kid :)
Horfnir tenglar
Hinir stórmerkilegu tenglar Múrsins eru nú horfnir allsstaðar, nema í Eldra efni og Um Múrinn.Kennsla
Merkilegt hvernig sumir kennarar virðast halda að kennsla sé rétti vetvangurinn til að fá útrás fyrir bældar tilfinningar og frústrasjónir.Sumir kennarar eru hataðir fyrir að vera strangir og kröfuharðir, sumir einfaldlega fyrir að vera fasistar og svín.
Sumir kennarar líta á próf sem misgóða mælistiku á færni nemenda, sumir líta á próf sem svarta kómedíu fyrir kennarann.
september 19, 2002
Þjóðverjar og Bandaríkjamenn
Bandaríkjamenn hafa orðið sífellt skúffaðari yfir afstöðu Þjóðverja og hvernig vinstri- og miðjumenn í Þýskalandi reka kosningabaráttu á yfirlýsingum um að Þjóðverjar muni ekki bakka Bandaríkjamenn upp í fyrirhugaðri Íraks-innrás. Greinahöfundar stórblaðanna vestanhafs hafa ekki dulið vonbrigði sín yfir þessari afstöðu þýskra.Nýjustu ummæla dómsmálaráðherra Þýskalands, „Bush vill draga athyglina frá vandamálunum heima fyrir. Þetta er aðferð sem stjórnmálamenn grípa stundum til. Hitler gerði hið saman", munu án efa ekki bæta andrúmsloftið á milli landanna.
Þau ofurmenni sem lesa þýsku geta lesið umfjöllun Spiegel um málið, sjálfur skildi ég takmarkað.
september 18, 2002
Gullkorn
Þetta gullkorn sem Vera segir frá úr lögfræðinni minnti mig á eitt af mínum uppáhalds kommentum úr gamla bekknum mínum í Verzló.Bera beinin? af hverju voru þeir að bera beinin?Sérleg vinkona mín, Jóhanna, sagði þetta í sögutíma í 5. bekk. Man ekki nákvæmlega hvert tilefnið var.
Ef ég hefði fengið tíukall fyrir hvert skipti sem Jóhanna sagði mér að þegja, væri ég ríkur maður. Ég átti það oftast fyllilega skilið, því ég gerði í því að æsa hana, og hafði lítið fyrir því. Það voru samt aldrei nein leiðindi, enda ekki meiningin, þetta gat hinsvegar kryddað tilveruna.
Impact
Fyndið að skoða þessa síðu. Siggi "djamm" (einnig þekktur sem "Impact") býður sig fram til formanns Orators.Þess má geta að Sigurður Impact fílar Die Hard myndirnar og er flestum öðrum framar í bananaþreskjun.
Forvitinn sjúklingur
Áðan fór ég til læknis að láta fjarlægja blett, ekkert alvarlegt, "better save than sorry", einsog sagt er. Hann byrjaði á því að staðdeyfa mig (bletturinn var á bringunni). Hann ráðlagði mér að leggjast bara aftur og slaka á. Ég gat það auðvitað ekki, ég varð að fylgjast með öllu, hvernig hann bar sig að við að skera lítinn bút úr bringunni á mér, svo blæddi, svo saumaði hann. Fæstir vilja víst horfa á þetta og oft koma ósjálfráð viðbrögð líkamans um að þetta eigi að vera sárt (en maður finnur ekki neitt, nema rétt á meðan maður er deyfður) fólki úr jafnvægi ef það horfir á þetta. Ég hinsvegar gat ómögulega látið hann föndra við bringuna á mér án þess að fylgjast með, enda forvitni mín frekar takmarkalítil. Fyndið að sjá svona saumaskap með töngum. Svo var þráðurinn svartur, þannig þetta var svona í Frankenstein-stíl. Saumarnir verða svo teknir eftir 12 daga.Mér var svona einsog þegar maður var lítill og fylgdist með (og flæktist fyrir) smiðum, pípurum, málurum etc. hvernig þær báru sig að við vinnuna o.þ.h. Sama forvitnin, bara önnur starfsstétt.
Svo þegar þetta var búið bað ég hann endilega um að athuga betur hvort það væri ekki annar sem hann gæti tekið, svona fyrst ég var þarna. Hann tók blett númer tvö en ég gat ekki fylgst með þeim prósess. Þegar þetta var búið þakkaði ég honum fyrir og sagði að þetta hefði verið fagmannlega gert hjá honum. Ég fékk hinsvegar engin verðlaun, hvorki dót né sleikjó :(
Vitlaust samfélag
Þessi frásögn Gulla finnst mér fyndin. Fyndin, því stundum getur maður ekki annað en hlegið að því hvað samfélagið er vitlaust.Mér finnst líka fyndið að lesa skýringar verslunarstjórans sem fjarlægði bæklingana hans Sigga pönk. Helvíti og typpi eru greinilega stórhættulegir hlutir.
Ekki það að verslunarstjórinn er í fullum rétti, hver sem er á ekki að geta dreyft bæklingum í hvaða verslunum/kaffihúsum/etc. sem er. Það er þess sem rekur staðinn að ákveða hvað fær að vera og hvað ekki.
Það breytir því ekki að mér finnst skýring verslunarstjórans vera fyndin, því stundum getur maður ekki annað en hlegið að því hversu vitlaust fólk bregst við.
Nýji stíllinn Stefáns
Það er alveg augljóst að St. Pálsson hlýtur að hafa ráðið Þóri sem stílista, þegar hann valdi nýju litina á síðuna sína.Ég legg til að nafninu verði breytt úr Um tilgangsleysi allra hluta í Um smekkleysu allra hluta.
Annars sagði mér góður maður upphaflega nafnið hafi verið Um rafmagnsleysi allra hluta en yfirmenn Stefáns samþykktu það ekki.
The Empire Strikes Back
The Arabs tut-tut that America should focus on rebuilding Afghanistan, getting a state for the Palestinians and pursuing the war on terror.Frekar skondin lýsing hjá Maureen Dowd í Lemon Fizzes on the Banks of the Euphrates.
But the Bushies have gotten a taste of empire building in Afghanistan and they like it.
Karl Rove is building a Republican empire. Richard Perle, Paul Wolfowitz and Scooter Libby are building an ideological empire. Dick Cheney is building a unilateral empire. And Donald Rumsfeld is building a military empire.
As Henry Kissinger told Newsweek, Rummy wants "to beat back the attitudes of the Vietnam generation that was focused on American imperfection and limitations."
Besides, why should former C.E.O.'s Cheney and Rummy settle for mere Jack Welch-style perks when they can have the perks of empire?
They can restore civilization to the cradle of civilization. Lemon fizzes, cribbage and cricket by the Tower of Babel. A 36-hole golf course on the banks of the Tigris and Euphrates. ArabDisney in the hanging gardens of Babylon. Oil on tap at the Baghdad Hilton. Huge contracts for buddies in the defense and oil industries. Halliburton's Brown & Root construction company building a six-lane highway from Baghdad to Tel Aviv.
How long can it be before the empire strikes back?
september 17, 2002
Mikilmennskubrjálæði dagsins
frá og með deginum í dag munu Deiglupistlar koma að jafnaði út tvisvar á dag, þ.e. morgunútgáfa og síðdegisútgáfa.Það verður gaman að sjá hvað menn halda þessu lengi til streytu.
Annars eru breytingarnar á Deiglunni til góða. Allavega loksins komnir með alvöru domain - m.a.s. ég var á undan þeim :þ - samt koma sumir linkarnir undir www.deiglan.com (þrátt fyrir að vera með deiglan.com/blablabla...slóð), sem mér finnst afskaplega ófagmannlegt.
Maður á að sjá hvað maður á að lesa, t.d. finnst mér afskaplega asnalegt að ramminn deiglan.com sé ennþá, þegar ég er kominn á BBC að lesa um hreinsun Davíðs (e. Michelangelo), sem vísað er í á vefritinu.
Málfrelsið
Svona mál setja mann alltaf í ákveðinn skilgreiningarvanda. Einsog þetta lítur út hefur stelpan réttinn sín megin.N-Kórea á vefnum
Fyndið að skoða síðu n-kóreska ríkisins (sem Korean Friendship Association heldur úti). Þar er hægt að fá upplýsingar á ensku, kínversku, spænsku og norsku!Opinbera fréttastofan í N-Kóreu flytur fréttir til erlendra fréttastofa á ensku, rússnesku og spænsku.
Til að geta gerst félagi í Juche Idea Study Group of England þarf samþykki formanns og ritara félagsins, auk þess að "(1) support the Juche Idea wholeheartedly, (2) want to apply the Juche Idea in England, (3) love the DPRK, the WPK, Kim Il Sung and Kim Jong Il." Þetta síðasta er einkar skondið að sjá árið 2002, að þetta skuli enn vera til.
Hugmyndir um "juche" eða sjálfsþurftarbúskap þjóða virðist eiga enn upp á pallborðið hjá einhverjum radikölum úti í heimi, ef marka má lýsingar International Institute of the Juche Idea.
Merkilegt!
ps. Skv. þessari síðu tala 80 milljónir manna kóresku, merkilegt finnst mér á sjá hvað margir tala hana í gömlu sovét-lýðveldunum í Mið-Asíu, sérstaklega í Úsbekistan (183.000) og Kasakstan (103.000).
Í Mið-Asíu lýðveldunum búa nokkur þúsund Þjóðverjar veit ég, eða bjuggu a.m.k., sumir hafa flutt á síðustu árum. Þeir voru fluttir þangað af Moskvu-stjórninni í seinni heimstyrjöldinni.
Sumar fréttir eru bara of ótrúlegar
N Korea confesses to kidnappings"Heyrðu félagi Ding, okkur vantar einhvern til að kenna japönsku til að kenna njósnurum okkar."Hvernig er mögulegt að menn fái þessa hugmynd, að ræna bara nokkrum Japönum til að kenna njósnurum japönsku... ég bara skil þetta ekki. Enda kannski ekki hægt að ætlast til að maður skilji alltaf, þegar N-Kórea á í hlut.
"Já, ég veit, félagi Dong, við rænum bara nokkrum Japönum og látum þá kenna okkur!"
"Frábær hugmynd, gerum það!"
(ímyndað samtal)
Meira hér: Heartbreak over Japan's missing:
The suspicion is that young women were wanted as wives for Japanese already in North Korea, to help build a community of Japanese revolutionaries.Ótrúlegt!
Others may have been taken to teach Japanese language and customs to North Korean spies.
Fríverslunarsamningur
Skv. þessari frétt hefur EFTA gert fríverslunarsamning við Jórdaníu. Svolítið skondinn mórallinn í fréttinni, jú það er alltaf gott að gera fríverslunarsamninga við lönd og viðskiptabandalög (í þessu tilfelli eitt það minnsta í heiminum) en þetta skiptir engum sköpum fyrir neinn, því viðskiptin eru sáralítil á milli EFTA-landanna og Jórdaníu.Útflutningur (fob) frá Íslandi til Jórdaníu var 2,6 milljónir árið 2001 en innflutningur til Íslands nema 200 þús. krónum. Útflutningur til Jórdaníu árið 2000 var 12,8 milljónir (fob).
Hvernig skal eyða út borgum
Nicholas Kristof kynnir sér bókmenntir fyrir hryðjuverkamenn, sem eru útgefnar í Bandaríkjunum, af Bandaríkjamönnum, óáreittar: Recipes for Deathseptember 16, 2002
Með lögum skal land byggja
Úr Lagasafni 1954Lög um þyngd bakarabrauða 11/1917
1. gr. Bæjarstjórnum og sveitarstjórnum veitist heimild til að ákveða með samþykkt þyngd bakarabrauða, hver í sínum kaupstað eða sveit, og skal bökurum óheimilt að selja brauð með öðrum þunga en ákveðinn verður með téðri samþykkt. - Þó skal það ekki teljast brot á samþykktum þessum, þótt einstökk brauð séu 4% léttari eða þyngri en samþykktin tiltekur, en á þyngd 20 brauða má mismunurinn aðeins vera 1%. -- 2. gr. Samþykktir eftirlögum þessum öðlast ekki gildi fyrr en stjórnarráðið hefir staðfest þær, og skulu þær birtar í B-deild Stjórnartíðindanna. -- 3. gr. Í samþykktum þeim, er sattar verða samkv. lögum þessum, má meðal annars ákveða sektir 25-500 kr. fyrir brot. Sektir allar renna í bæjar- eða sveitarsjóð þar, sem brotið er framið. - Með mál út af brotum gegn samþykkt eftir lögum þessum skal farið sem með opinber lögreglumál.
Lög um sölu á eggjum eftir þyngd 21/1912
1.gr. Allir, sem egg selja, hvort heldur framleiðendur eða kaupmenn, skulu selja eggin eftir þyngd, þannig að verðið sé miðað við þyngdina...1) --2.gr. Brot gegn 1.gr. laga þessara varða sektum 5 til 50 kr. er renni í landssjóð. -- 3.gr. Mál út af brotum gegn lögum þessum skal með fara sem almenn lögreglumál.
Það skal tekið fram að bæði lögin hafa verið numin úr gildi en þessi eru í fullu gildi (með síðari tíma breytingum frá '52, '86 og '90): Lög um forgangsrétt kandídata frá háskóla Íslands til embætta. Óbreytt er 4. gr. um að "Læknisfræðingum, er sanna, að þeir hafi aflað sér nægrar þekkingar í læknisfræði á erlendum háskólum eða öðrum slíkum menntastofnunum, má og landsstjórnin veita leyfi til þess að stunda hér á landi lækningar, en leitað skal tillagna læknadeildar háskólans í hvert skipti áður en slíkt leyfi sé veitt".
Hægt er að fara enn lengra aftur til að finna tiltölulega heilleg lög sem eru enn í gildi, t.d. 14/1905 um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda, hélt að það væru til nýrri lög til um þessi atriði. Eins virðist margt standast enn í firmalögum skv. lögum 42/1903 um verslunarskrár, firmu og prókúruumboð.
Magnað!
Meira úr Middle East Times
Vikuleg útgáfa Middle East Times er einstaklega þægileg og aðgengileg lesning. Egypsk-breskt blað kemur út á föstudögum og flytur nokkuð hlutlausar fréttir frá Mið-Austurlöndum, Egyptalandi og heimspólitíkinni, auk þess sem sérstakur dálkur er helgaður konum í heimi islam. Ritskoðaðar fréttir (í Egyptalandi) fá líka sérstakan stað, svo eitthvað sé nefnt. Oft getur verið grátbroslegt að lesa reglulegan dálk sem nefnist "Only in Egypt", þar sem fluttar eru (ótrúlegar) fréttir, t.d. "A man was killed by electric shock as he was trying to catch fish in a small canal by electrocuting them." Oft mjög fyndnar fréttir, fengnar úr ýmsum egypsku fjölmiðlum, en sorglegar um leið.Meðal athyglisverðra frétta í METimes þessa vikuna, sem ratar ekki á vestrænar fréttasíður, er frétt sem greinir frá bágum aðstæðum súdanskra flóttamanna, sem flúið hafa borgarastríðið þar í landi til Egyptalands en eru beittir misrétti af lögreglu og skrimpta á litlu sem engu: Cold reception for Sudanese
Atlanta
Johannsson said about 20 percent of the company's income comes from the base in Jeddah. Air Atlanta transports the pilgrims from Asia and Africa to Saudi Arabia, and back again when they have performed their sacred duty.Frétt í The Middle East Times: Icelandic airline welcomes Muslim pilgrims
"He's not famous, he's infamous!!"
Mér datt þessi setning úr stórmyndinni Three Amigos í hug, í sambandi við setninguna sem ég kvótaði í hér áðan um hinn infamous George Soros.Steve Martin, Chevy Chase og Martin Short fá skeytið frá nauðstadda mexíkóska þorpinu, um að bjarga sér frá (eða skemmta með, einsog þeir taka því) frá hinum infamous El Guapo. Ned Nederlander (minnir mig), sem Martin Short leikur, útskýrir fyrir hinum hvað imfamous þýðir, sumsé að hann sé svo famous að hann sé infamous.
16. september
Í dag er ekki aðeins tíu ár síðan Bretar gengu úr ERM, því tuttugu ár eru í dag síðan fjöldamorðin Sabra og Shatila flóttamannabúðunum í Líbanon áttu sér stað.
But there will be no internationally-observed minute's silence for the innocent victims of Sabra and Shatila, or global news coverage about the survivors and their miserable existence at the scene of this evil crime.Eyewitness: Sabra and Shatila 20 years on
Ariel Sharon verður að heiman á afmælisdaginn en tekur á móti gestum í ísraelsku forsetahöllinni annan kvöld.
Black Wednesday
Í dag eru 10 ár frá "Black Wednesday", þegar breska pundið féll, Bretland gekk úr ERM og vextir voru hækkaðir tvisvar sama daginn, til að hindra fjármagnsflótta úr landi. Soros græddi einn milljarð dollara þennan dag, en atlaga var gerð að pundinu í gjaldeyrisviðskiptum, sem var mögulegt sökum peningamálastefnu þess tíma.Nokkrar greinar í breskum fjölmiðlum:
Bright side of a black day (Observer)
"The economics of that period seem almost unthinkable today. The policy regime introduced a fortnight later kickstarted a recession-proof decade of falling unemployment and inflation, leading economists to rebrand 16 September White Wednesday. And the experience of that day invigorates opponents of Britain's entry to the euro."
The day we threw away our trump card (William Hague)
"If the economic consequences of Black Wednesday were good for Britain, however, the political consequences were catastrophic for the Conservatives."
Lessons learned on 'Black Wednesday' (BBC)
"The fact that Britain had to follow German interest rates, combined with the fact that Germany needed tighter monetary policy than Britain at the time, meant the ERM prolonged an already painful recession in the UK."
Return of Black Wednesday (leiðari The Daily Telegraph)
"Mr Major, quickly absorbing the views that were then fashionable in the Treasury, made joining the ERM the central feature of his chancellorship. Knowing that Margaret Thatcher could not afford to lose a second chancellor so quickly after Nigel Lawson, he effectively blackmailed her into joining the system. His victory marked her defeat, and she was ousted from office the following month."
Soros made $1 billion and we were all better off
"We have much to thank speculators such as the infamous George Soros for. Their legacy is our current prosperity and the $1 billion that Mr Soros pocketed out of the Bank of England's foreign exchange reserves, 10 years ago today, was cheap at the price."
Fjármálaráðherra Breta á þessum tíma, Lord Lamont, skrifaði grein, Hoorah for Black Wednesday! It kept Britain out of the euro, í Telegraph um helgina, þar sem hann m.a. rekur rök gegn ýmsum "kenningum" um Svarta miðvikudaginn. Ansi athyglisvert og margt af því sem þar kemur fram nær því sem maður hefur áður lesið en propagandað sem má lesa um málið, m.a. í hinu conservatives-backing Telegraph.
Hann segir hinsvegar að lokum, sem er hárrétt: "Perhaps the most important point about September 16 is that it helped to keep Britain out of the euro. It demonstrated to people that a single monetary policy is unlikely to work well both for Britain and the rest of Europe."
Merkilegt hvað söguskoðunin fer mikið eftir því hvar menn standa í umræðunni um evruna í dag. Það er þó eitt sem menn eru almennt sammála um, að réttara heiti fyrir daginn væri White Wednesday, því þrátt fyrir augljósar fórnir, þá var þetta eitt það besta sem gat komið fyrir breska hagkerfið og peningamálastjórnun þar.
september 15, 2002
Simpson-fjölskyldan
Maður færi nú létt með þetta :)Svo er þetta nú ekki mikið mál fyrir alvöru Simpson-aðdáendur. Fékk fullt hús stiga :D
History Repeats Itself
Þessi mynd birtist í Sunnudagsblaði Moggans í dag. Hún er ansi skemmtileg í sögulegu ljósi - eða gæti a.m.k. orðið það.
Myndir Morgunblaðsins
Nú er Mogginn búinn að setja inn allar birtar myndir í blaðinu aftur til 1999. Þar má t.d. finna þessu skemmtilegu mynd, sem ber heitir "Hinir ósnertanlegu".Frá hægri: Kevin Costner (Eliot Ness), Sean Connery (Jim Malone) og Charles Martin Smith (Oscar Wallace).
Ritstjóradans Jóhannesar
Var að fara í gegnum myndamöppu heimasíðunnar og fann þessar líka yndislega skemmtilegu myndir af Jóhannesi stud.aluminium. Maður þarf ekki annað en að sjá myndir af ritstjóradansinum til að hlæja :-)Sjá fleiri myndir af ritstjóradansinum.
Á sama stað er líka hægt að sjá hversu gullfalleg fólk er í HR.
Þetta myndarfljóð er líka komið í HR.
Svona jólasveinar er hinsvegar (best)geymdir í lögbergi :-þ
Húha!! semsagt.net komið aftur í gagnið
Loksins! Loksins! Loksins! Eftir alltof mikla fyrirhöfn (þar sem ég háði t.a.m. frækilega baráttu við sjálfvirk símsvörunartæki í Bandaríkjunum) er semsagt.net aftur komið í lag, reyndar betur en nokkurn tímann fyrr, því nú er þetta alvöru domain, ekki bara einhver frontur með tripod-síðu á bak við. Semsagt.net er núna alvöru síða og mun síðan verða flutt fyrir fullt og allt af agflyg.tripod.com yfir á semsagt.net á næstu dögum. Vonandi að því verði lokið innan viku og þá get ég farið að velta fyrir mér möguleikum um ýmsar breytingar, t.d. er mig farið að langa virkilega í aðgangsstýrt kerfi samhliða þessu opna. Ég var ekki hrifinn af þesskonar tólum fyrst en nú er ég þess fullviss að ég ætti a.m.k. að pæla í þeim möguleika, enda farinn að sakna þess að geta látið dæluna ganga á netið án þess að þurfa að pæla í öllum þeim sem mögulega gætu lesið það. Einnig langar mig í nýtt útlit, sníða inn í síðuna lítinn glugga með ábendingum um lesefni, svona til að réttnefni síðunnar verði ekki endanlega "Hvað er merkilegast í dagblöðum heimsins í dag?".Hvað um það, ég er í góðu skapi, langri bið er lokið og semsagt.net aftur komið í lag :-) húha!
september 14, 2002
Spam
Í gær birtist leiðari í New York Times um það óþolandi fyrirbæri spam. Ég veit ekki hvað þetta er kallað á íslensku, en ruslpóstur er svosem ágætt heiti fengið úr landspóstsgeiranum.Í dag er svo birt grein eftir lektor í tölvunarfræði um sama hlut. Bara sem dæmi, þá fékk ég einn nígerískan póst í dag (milli klukkan fjögur í nótt og fjögur í dag), einn sem bað mig um að linka á "Hugh Grant e-cards" (með vísun í að ég minntist einu sinni á Hugh Grant - í sambandi við Bridget Jones's Diary - í febrúar 2001), svo var einhver sem bað mig um að skipta um líftryggingu og svo voru einhverjir Ný-Sjálendingar að reyna að fá mig út í einhverja vitleysu - með loforði um að allt að 70.000 dollara þóknun (spurning hvort það eru bandarískir eða ný-sjálenskir dalir).
Auk þess fæ ég a.m.k. annanhvern dag póst um erlend gjaldeyrisviðskipti, frá einhverjum sem vill gefa mér nýja tölvu, bíl eða eitthvað í þá veruna og ekki má gleyma blessuðu Nígeríu-prinsunum/forsetunum/höfðingjunum/hershöfðingjunum, eða afkvæmum/ekkjum þeirra, sem biðja um hjálp mína að meðaltali tvisvar-þrisvar sinnum í viku. Þar fyrir utan er ég með hotmail-addressu (fyrir MSN) og þar fæ ég á bilinu 30-50 stykki af allskonar vitleysu (mikið tengist klámi eða viagra), þrátt fyrir að hafa allar (meintar) spam-varnir hotmail virkar.
Greinarnar í NYT er að finna hér: Taking On Junk E-Mail og Fighting the Menace of Unwanted E-Mail.
Svo er spam frá fólki sem sendir manni (óumbeðið) brandara, myndir og allskyns drasl. Sjálfur stóð ég í slíku áður fyrr en vitkaðist fyrir nokkrum árum. Síðan er ég fasískur hvað þetta varðar, ef fólk sendir mér slíkan póst í einhverju magni get ég brugðist mjög illa við. Þetta var óheyrilega pirrandi þegar maður var enn með hæga módem-tengingu og var að slást við að hlaða niður heilum og hálfum megabætum af drasli, til þess eins að henda því.
Brandararnir sem ganga (og voru enn algengari finnst mér fyrir svona 4-5 árum) eru þeir sömu, maður fær stundum (eða fékk öllu heldur, þar sem þeir sem þekkja mig eru hættir að senda mér svona rusl) "keðjubréf" frá 4-5 aðilum og svo aftur álíka mörgum hálfum mánuði seinna. Fyndnast fannst mér þegar einhver sem var í sömu "To:"-línu og ég sendi mér sama keðjubréfið. Svo klikkar ekki ráðið við því ef fólk sendir ykkur eitthvað risastórt drasl, t.d. powerpoint-skjal með einhverjum (oft misjöfnum) myndum, að senda það til baka, helst tvisvar-þrisvar sinnum. Fólk verður þreytt á því að bíða eftir 2-3 mb. til þess eins að henda þeim.
Póstur kominn í lag
Jæja, þá get ég farið að sofa ánægður. Ég var að fara að sofa, þegar mér datt í hug að það væri kannski ekkert vitlaust að tékka á tölvupóstinum. Það endaði með því að ég fór að stússast í stillingunum á hostinum mínum nýja og fyrir vikið fæ ég aftur póst sem sendur er á agust "hjá" semsagt.net, eftir að það hefur legið niðri í tæpan mánuð.Ég fer því ánægður að sofa.
semsagt.net verður orðið virkt sem heimasíða á morgun - vonandi :)
september 13, 2002
BT(G)SM
Ég hafði ekki spáð í þessa skammstöfun fyrr en ég sá hana á venjulegum texta, sumsé ekki bara lógóið.Þegar maður sér hana skrifaða með venjulegu letri, þá lítur BTGSM ekkert svo vel út. Allavega hefði ég fundið betra nafn í þeirra sporum. Svo segi ég allavega alltaf BTSM, maður þarf að passa sérstaklega að segja G-ið, það er bara alls ekki nóg þjált.
Það slær samt ekkert Monday við í lélegu heiti á viðskiptaeiningu.
Það búa engir dvergar á Dalvík
Systir mín var að koma úr "skólabúðum" í Hrútafirði. Hún var þar með sínum skóla en með þeim var víst grunnskólinn á Dalvík.Henni fannst stórmerkilegt að allar stelpurnar frá Dalvík voru höfðinu hærri en hún, nema ein, "sem hét útlensku nafni". Systir mín er höfðinu hærri en hinar stelpurnar í sínum bekk. Þetta hlýtur að hafa verið merkileg upplifun fyrir hana.
Hella
Nei, ég er ekki á leið á málefnaþing á Hellu. Þar koma nokkur atriði til, en ég bara vildi ekki missa alveg þessa helgi úr. Annars hefði örugglega verið gaman að fara, alltaf stemning að koma út á land, nema hvað íslenskt haustveður er aldrei af hinu góða, sérstaklega ekki í bland við landsbyggðarlegan hráslagarleika.Ég held að umsjónin sé í góðum höndum, enda formaður FUS á staðnum, Ingvar Pétur, traustur maður - a.m.k. því sem ég þekki hann.
Hann er reyndar eini landsbyggðar-súsarinn sem ég þekki.
Við Ingvar Pétur eigum sameiginlegt áhugamál, íslenskan landbúnað. Munurinn er sá að hann er búfræðingur, ekki ég. Ingvar Pétur er núna að læra stjórnmálafræði í HÍ.
Lang-afi minn var búfræðingur. Hann var bóndi í þrjú ár, síðan rak hann útgerð í hálfa öld. Hann sá greinilega á hverju var að græða.
Meint hagkvæmni stríðs
Paul Krugman fer yfir það í nýjum pistli á NYT, Stock and Bombs, hvernig stríð koma hagkerfinu ekki til góða og hvernig árás á Írak myndi hafa neikvæð áhrif á olíuverð, sem gæti haft ófyrirséð áhrif á hagkerfi sem eru veik fyrir.Hann byrjar líka á að benda á hvernig stríðsklappstýrurnar hafa breytt rökunum fyrir árás á Írak: hann var á bak við 11. september, nei -> hann er að þróa kjarnorkuvopn, nja... -> hann er "evil", já en... -> það er svo gott fyrir hagkerfið! *andvarp*
Allavega, ef menn ætla að auka hagvöxt með stríði, þá erum við í frekar vondum málum. Þetta er svona álíka og drekka sjó við þorsta.
"Who would you rather spend a weekend with, Chelsea Clinton or the Bush twins?"
Skemmtilegt sjónarhorn á bandarísk stjórnmál, skrifað af demókrata: Party like a RepublicanMeikar ekki diff
Eitthvað hefur Rumsfeld verið að skrifa eftir minni þegar hann las upp úr Gettysborgarávarpi Lincolns - sjá frétt.Matur
Í hádeginu fór ég á Pizza Hut og keypti mér "stóra" pizzu á tilboði. Þar sem það var hálftíma bið, fór ég í 11-11 á Grensásvegi til að kaupa mér pasta, sem mig vantaði. Kom út með pasta og kúskús, sem ég ætla að gera einhverja tilraunastarfsemi með fljótlega. Fattaði þá að ég var staddur við hliðina á Gallerí kjöti og þar sem ég hafði nægan tíma, ákvað ég að kíkja þar til "bara til að skoða". Að komast í alvöru matvöruverslun er fyrir mig einsog fyrir kvenmann að komast í flotta skóbúð. Ég endaði á að fá að smakka á nær öllum áleggjunum og keypti að lokum reykta parmaskinku, piparsalami og hvítlaukssalami. Ætla að prufa þetta ofan á gott brauð með góðum osti og fara svo aftur, því það er tvær-þrjár tegundir sem ég þarf að prufa betur. Ég á pottþétt eftir að koma þarna aftur, þetta er ekki svona rándýr búð einsog ég hélt, ekkert ódýr en alls ekkert okur.Drullumall
Fyndið: Súr Múr...og fyrst ég er að vitna í Deigluna, þá verð þessi pistill - sem ég reyndar las ekki, skoðaði bara myndina - til að vekja áhuga hjá mér á tennis :-þ
Skólabúningar
Athylisverð frétt í N.Y.Times um hvernig mistókst að innleiða skólabúninga í USA: Plaid's Out, Again, as Schools Give Up Requiring Uniformsseptember 12, 2002
Spáð í spilin
Greinarhöfundur Jordan Times í dag spáir í spilin hvaða afleiðingar stríð við Írak getur haft. Hann spáir Tyrknesk-arabísku stríði ráðist Tyrkland inn í Kúrdistan til að koma í veg fyrir sjálfstætt ríki og hertaki Norður-Írak í kjölfarið. Einnig spáir hann því að Ísraelar muni hrekja fleiri Palestínumenn á flótta frá Vesturbakkanum og Gaza og það gæti kostað átök milli Ísraels og Araba.Ekki ætla ég að taka undir allt þetta, en þetta er vissulega sjónarmið, auk þess að í greininni rekur hann stríðsátök svæðisins síðustu 50 árin í stuttu máli, máli sínu til stuðning. Hann hefur líka greinina á frásögn af líbanskri konu sem hann þekkir og hvernig hún, sem ólst upp í Beirút fyrir tuttugu árum þegar Ísraelar gerðu árásir á landið á landi, láði og legi. Upplifun hennar var töluverð önnur, bara enn einn harmleikurinn vegna árásar.
Meðal annarra frétta er að í Jórdaníu er gert ráð fyrir 5% hagvexti á árinu. Fólksfjölgun er 3% í landinu og því 2% raunvöxtur. Landsframleiðsla er $3.400 (PPP=$4.000) sem þýðir að eftir 100 ár verður landsframleiðslan (að öðru óbreyttu) komin á svipað level og Vestur-Evrópa (m.v. það að Evrópa hætti alveg að vaxta og breytist ekki).
Katalónía
Katalónía hefur breytt domain-nafni sínu úr .es (Spánn) í hið fjölþjóðlega .net skv. þessari frétt.Í gær, 11. september, var einmitt þjóðhátíðardagur Katalóníu, en þann dag árið 1714 töpuðu Katalónar stríði við Filipus V. Spánarkonung. Þjóðhátíðardagur Katalóníu minnist því missis sjálfstæðis, ólíkt flestum öðrum þjóðhátíðardögum.
Hér má sjá nánari upplýsingar um þessa sögu, en Katalónar misstu sjálfstæðið í spænska erfðastríðinu, því sama og Gíbraltar lenti undir enskri stjórn.
al Saúd
Athyglisverð grein eftir William Safire um valdabaráttuna innan al Saúd konungsfjölskyldunnar. Þar takast á annars vegar fylgismenn Abdullah krónprins, sem er karlinn í brúnni þar sem Fahd konungur hefur ekki verið þessa heims síðustu misseri og hinsvegar fylgismenn Sultans prins, varnarmálaráðherra.Munurinn í mjög stuttu máli á þessum tveimur er að Sultan er bókstafstrúar wahabisti en Abdullah er ekki-alveg-eins-rosalegur bókstafstrúar wahabisti. Þegar læknarnir hætta að geta haldið Fahd lifandi mun fara mikil valdabarátta í gang, sem gæti farið illa, ekki aðeins vegna þess sem gerist innanhúss í konungsfjölskyldunni, heldur líka gætu slíkt skapað tækifæri fyrir byltingu í samfélaginu.
Chrouching Tigers?
Mér finnst þetta mjög góður titill á pistli dagsins á Frelsi.is"Ágúst Flygenring veltir fyrir sér sjálfsstjórnarbaráttu Tamíl tígra og samskiptum þeirra við stjórnvöld þar í landi".
semsagt.net
Skv. nýjasta tölvupóstinum mun semsagt.net komast í loftið innan 72 klst. Sjáum hvað setur.Þolinmæði mín er eiginlega löngu þrotin.
september 11, 2002
11. sept.
Today, 11 September, our newspapers and our television screens are filled with the baleful images of those two towers and their biblical descent. We will remember and honour the thousands who died. But in just five days' time, Palestinians will remember their September massacre of 1982. Will a single candle be lit for them in the West? Will there be a single memorial service? Will a single American newspaper dare to recall this atrocity? Will a single British newspaper commemorate the 20th anniversary of these mass killings of 1,700 innocents? Do I even need to give the answer?Robert Fisk í The Independent
Hvað ég var að hugsa fyrir ári síðan er hægt að lesa hér.
Old Friends
Old friends, old friends,Í dag hitti ég Binna - eða öllu heldur leyfarnar af honum, því hann hefur hlaupið um ein 25 kg - í fyrsta skipti í ár, þó ég hafi heyrt í honum nokkrum sinnum í millitíðinni. Fórum og átum saman. Hann er kominn í hagfræði og var sællegur að sjá, enda alþekkt hvað hagfræði fer vel með menn. Skrítið að hitta fólk svona, einsog hann, sem maður hitti á hverjum degi í tvo vetur, grallarinn sem gaf manni knús þegar maður var að krebera í stærðfræðitímum í 6. bekk, svo bara allt í einu er ár liðið síðan maður sá hann síðast. Svona getur maður verið lélegur í að hitta fólk sem maður hittir ekki í gegnum skóla, vinnu eða annað.
Sat on their parkbench like bookends
A newspaper blown through the grass
Falls on the round toes
of the high shoes of the old friends
Texti: Paul Simon
Ég hitti svo annan gamlan vin í dag, enn eldri, sem ég hafði ekki séð í ein tvö ár eða svo. Það er gaman, þótt stutt væri.
Gaman að hitta gamla vini aftur.
september 10, 2002
Kaffi er gott
Það er gott að heyra góðar fréttir til tilbreytingar:Coffee increases alertness and athletic performance, and may even help to fight cancer and Alzheimer's. But don't overdose on it.Sjá And now for some good news í The Times.
Mér fannst þetta líka nokkuð gott:
Is filter coffee better for you than instant coffee? Psychologically, yes. Blending, roasting and brewing all contribute to coffee’s complex chemical composition. [...] Hindmarch points out: “Instant coffee doesn’t have the same taste as brewed coffee and the taste can add a lot to the psychological effect. Drinking instant coffee is not like sitting down and having a latte.” He adds that some of coffee’s properties can be attributed to psychology. “We wouldn’t say: ‘Let’s go to the bar and have a caffeine pill’,” he says, concluding that coffee’s taste and its preparation all contribute to how we react to our daily brew.Eftir þennan lestur langar mig í kaffi. Best að fara fram og laga fína keníska kaffið mitt.
Indland eyðir 10x meira í niðurgreiðslu rafmagns en menntun
Ég er að lesa FT (prentuðu útgáfuna) uppi á bókasafni. Þar rak ég augun í mjög athyglisverða staðreynd í leiðara blaðsins í dag:Despite all this, some opinion polls suggest Indians support privatisation when presented with the facts. For example, each public sector manufacturing job needs an annual subsidy equal to twice average per capita income, while the government spends about 10 times more on electricity subsides than on education.Magnað.
Konur í Kyrgistan
Nokkuð athyglisverð frétt en um leið óþægileg: Islamists bolstered by female recruitsseptember 09, 2002
Spurt er um mann
Þar sem ég á það til að verða svo óvenju hagmæltur (haghaltur væri kannski réttara orð) þegar ég er að læra stærðfræði, þá skelli ég hér fram einni léttri og spyr jafnframt um hvern er ort?Breiðhyltari menn ei búa
fjallabyggðum í.
Því torvelt er að trúa
að tröllin unni því.
Til að forða sér frá fnyki
Ferrari of-notar.
Hans smekkur* safnar ryki,
siðferði'ann rotar.
*til að auðvelda lausn gátunnar skal það tekið fram að þarna er ekki á við matar-smekk, heldur smekk sbr. smekkvísi.
Lausn gátunnar sendist hingað.
Kynskiptir bekkir
Það er ekki laust við að ég verði dulítið pirraður þegar ég les þetta: More Teachers Bonding With Single-Sex ClassesLesa áfram
Mánudagur
Í morgun féll niður tvöfaldur tími og fórum við Kristófer í Bóksöluna að versla það sem okkur vantaði nauðsynlegast. Fyrir utan hittum svo Þóri, sem virkaði mjög illa sofinn. Kannski hann hafi þess vegna verið svona fúll út í mig fyrir að hafa sent honum sms hálf þrjú í nótt til að kanna hvort hann hefði svarið við þessum með sms-sendingar á öðrum stafrófum (sjá síðustu færslu). Síðan hittum við Gulla á hamborgarastað fátækasta mannsins, Brautarstöðinni.Gulli var hýr í skapi og sagði okkur m.a. frá því hvernig ESB dælir orðið peningum í homma og lesbíur einsog bændur væru. Allavega var mér ekki skemmt - en á móti var honum skemmt hvað mér var ekki-skemmt yfir þessu öllu - það hefur greinilega mjög marga kosti að vera hommi. Einsog ég benti honum á, þá borgar gagnkynhneigðin sig sannarlega ekki.
Eftir að hafa kvatt niðurgreidda hommann héldum við upp í skóla í þennan líka voðaspennandi fjármálamarkaðatíma. Hagfræðidoktorinn sem kennir þennan kúrs er bara nokkuð skemmtilegur.
Annars er ég alltof að hitta fleira og fleira fólk úr mínum árgangi sem var að byrja í HR í haust. Núna síðast hitti ég Huldu Hákonar. Ég held svei mér þá að allur F-bekkur sé kominn í HR, nema kannski fjórir :)
SMS
Í nótt fór ég að spá, hvernig ætli Arabar, Kínverjar, Indónesar, Rússar og aðrir sem nota ekki latneska stafrófið sendi sms sín á milli (?). Svör óskast.Keiko dópaður upp
Fyndnasta frétt dagsins: Keikó settur á pensilínkúrBest finnst mér þessi setning: "Keiko hefur verið hálf slappur síðustu daga og niðurstöður blóðrannsóknar, sem gerð var í dag, sýna að hann þjáist annaðhvort af streitu eða smávægilegu kvefi."
september 08, 2002
Múrverjar um víða veröld
Það getur verið mjög áhugavert að skoða síðurnar í tenglasafni Múrsins.Ætli frægustu félagar Múrverja á þessum lista séu ekki Sinn Fein á Írlandi og Verkamannaflokkur Kúrdistans, sem frægastur er fyrir foringjann, Abdullah Öcalan (sjá einnig nýja heimasíða samtakanna).
Meðal annarra skoðanabræðra eru t.d. PT í Mexíkó, sem ég veit ekki betur en hafi/hafði tengsl við þarlenda skæruliða (leiðréttið mig ef það er rangt).
september 06, 2002
The Nutty Professor
Sumir fræðimenn eru svolítið flippaðir. Xavier Sala-i-Martin, katalónskur Harvard-lærður hagfræðidoktor og prófessor við Columbia háskóla, virðist vera á meðal þeirra flippuðustu, ef marka má heimasíðuna hans. Hún er frekar psychedelic. Ég hvet sem hafa vott af nördahúmor í sér að skoða þessa síðu, t.d. kenningu hans um hvers vegna konur lifa lengur en karlar (klikkið á grafið til að fá svarið).Skoðun hans á theoristum er fyndin og hann útskýrir líka vandamálið við Keynesismann í stuttu (myndrænu) máli. Nördahúmor dauðans í gangi hjá þessum 16. mest ívitnaða (ný orð sem ég var að búa til) hagfræðingi 10. áratugarins (skv. þessum lista).
Hann spyr lesendur síðunnar álits á tveimur forsíðum fyrir næstu bók hans. Ég myndi velja choice 2 :)
Á síðunni er líka að finna þetta fína safn af myndum eftir Dali. Magnað!
Reyndar datt ég inn á þessa síðu hans þar sem ég var að sækja mér mjög áhugaverðan paper eftir hann - meira um það síðar.
Sjálfbjarga í flestum almennum tölvumálum?
Við þessu vil ég aðeins segja, að m.a.s. ósjálfbjarga fólk getur byrjað að blogga, ef það fylgir bara einföldum skref-fyrir-skref leiðbeiningum. Aldís, fyrrum bekkjarsystir mín úr Verzló, sem er gjörsamlega ósjálfbjarga á tölvur (og þá er ég ekki að grínast, hún notar lærði að senda tölvupóst af kvöð - í fyrra), gat sjálf komið sér upp heimasíðu. Hún bloggar núna fréttir af sér í Danmörku fyrir vini og vandamenn að lesa á Íslandi.Sjávarútvegssýningin
Í dag kíktum við Palli á Sjávarútvegssýninguna. Þetta var hrikalega stórt svæði og auðvelt að missa allar áttir. Hitti töluvert af fólki og sá margt merkilegt.Það var hinsvegar svolítið skemmtilegt hvað maður sá marga "orginala" þarna. Sumir nýttu sér greinilega vel allan ókeypis bjórinn sem boðið var upp á í hinum og þessum básum... en lítið sem ekkert var um ókeypis mat, sem mér fannst ekki sniðugt.
90%
"Clinton made a point of surrounding himself with people who might be 90% as intelligent as himself, but never his equal. Bush is smart enough to know that he couldn't possibly do the same, or the country would be run by morons."Þetta segir Norman Mailer í væntanlegu viðtali við The Sunday Times.
Launakönnun og launmisrétti kynjanna
Á Deiglunni birtist pistill í dag sem segir nánast nákvæmlega það sem ég hugsaði þegar ég las og heyrði fréttir af þessari könnun: Karlmenn fá 8% hærri laun en konur - eða hvað?Konur á íranska þinginu
Þingkonur á íranska þinginu hafa haft nóg að gera, ásamt öðrum umbótasinnum. Ekki aðeins hefur þingið samþykkt lög sem rýmka rétt kvenna til skilnaðar heldur einnig rétt til fóstureyðinga.Íranska stjórnkerfið er þannig sett upp að "Guardians Council", sem Khameinei skipar flesta í, verður að samþykkja löngin ef þau eiga að taka gildi. Öruggt er að þar stoppa lögin, en þetta sýnir samt hug umbótasinna.
Stjórnmálasamband
Einu þjóðirnar sem Ísland virðist hafa stjórnmálasamband við sunnan Sahara eru (innan svigans er hvar sendiráð þeirra eru staðsett fyrir Ísland):Angóla (ekkert skv. listanum)
Botsvana (sendiráð í Köben)
Grænhöfðaeyjar (ekkert skv. listanum)
Eþíópía
Ghana (sendiráð í DK)
Kenýa (sendiráð í Stokkhólmi)
Lesóthó (sendiráð í Köben)
Malaví
Mósambik
Namibía (ekkert skv. listanum)
Níger (sendiráð í Brussel)
Nígería (sendiráð í Dublin)
Seychelle eyjar
Sómalía (væntanlega þá mjög afstætt samband)
Suður Afríka (sendiráð í Osló)
Svasíland (sendiráð í Köben)
Tansanía (sendiráð í Stokkhólmi)
Úganda (sendiráð í DK)
Sendiráð Íslands í Mósambik gætir hagsmuna Íslands í löndum sunnanverðrar Afríku, Mósambik, Namibíu, Malaví, Úganda og Suður Afríku.
Ef litið er á Arabaheiminn, þá er stjórnmálasamband við Marokkó, Alsír, Túnis, Egyptaland, Ísrael, Líbanon, Jórdaníu, Saúdi-Arabíu, Yemen, Oman, Bahrein, Kuwait, Írak og Íran. Það er því einungis ekki stjórnmálasamband við Sýrland, Quatar og Sameinuðu arabísku furstadæmin. (src)
september 05, 2002
Konsúlar
Skondið að sjá hvaða lönd hafa konsúla á Íslandi og hverjir það eru sem gegna slíkum stöðum fyrir hvaða þjóðir.Frægasti konsúllinn fyrir það að vera konsúll hlýtur að vera konsúll Botswana, Eyþór.is Arnalds.
Aðrir konsúlar, sem representa lönd sem hafa sjáanlega ekki mikil samskipti við Ísland, eru t.d. Jón Kristinn Snæhólm, konsúll Seychelle eyja og Stefán Guðjónsson (Samtökum verslunarinnar), konsúll Bangladesh.
Forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækja eru nokkrir konsúlar. SÍF er með dótturfyrirtæki í Brasilíu og er Gunnar Örn Kristjánsson konsúll landsins. Brynjólfur Bjarnason hjá Granda - sem nú er reyndar kominn til Landsímans - er að sama skapi konsúll Chile. Guðbrandur Sigurðsson hjá ÚA er konsúll Rússa á Akureyri. Konsúll fyrir Suður-Afríku er Jón R. Magnússon hjá SR-mjöli.
Fyrirheitna landið Ísrael hefur lögfræðinginn Pál Arnór Pálsson sem konsúl, það kemur ekki á óvart, að konsúll Ísraela komi úr lögfræðistétt.
Valur Valsson, bankastjóri, hefur verið konsúll Líbana síðan 1987. Hann er eini konsúll ríkis í Mið-Austurlöndum hérna, ef frá er talinn konsúll Ísraela, auk þess sem Tyrkir hafa hér konsúl, Þorstein Ólafsson.
Smáríkið Malta hefur konsúl á smáríkinu Íslandi, hann heitir Bjarni Stefánsson. Mongólar hafa konsúl, hann heitir Ragnar Fransis Munasinghe. Páll Gíslason heitir konsúll Perús. Kjartan Borg er konsúll Thailands. Jersey og Ermasundseyjarnar hafa konsúl á Akureyri, sá heitir Halldór Jónsson. Dr. Örn Erlendsson er konsúll fyrir Malasíu.
Konsúll Pólverja er Friðrik Gunnarsson í Vélasölunni. Skipamiðlarinn Guðmundur Ásgeirsson er konsúll Kýpverja á Íslandi. Stórríkið Indónesía hefur stórlaxinn Jón Ólafsson sem konsúl hérna. Gísli Guðmundsson í B&L er konsúll fyrir Suður-Kóreu. Þorgeir Baldursson í Odda er konsúll fyrir Spán. Páll Sigurjónsson er konsúll fyrir Belgíu og Jón Snorrason í Húsasmiðjunni konsúll Letta. Fleiri athafnamenn eru konsúlar, oftast fyrir lönd sem þeir stunda viðskipti við.
Upplýsingar vantar um hverjir séu konsúlar Nepals og Venesúela.
Annars eru konsúlar yfirleitt lögfræðingar eða menn sem stunda viðskipti við löndin, þetta voru nokkur dæmi. Listann er annars að finna hér.
Ég er að spá í að kanna hvort ég geti ekki orðið konsúll, mér finnst t.d. að Bresku Jómfrúareyjar vanti tilþrifanlega konsúl hérna, enda borða eyjaskeggjar líklegast fleiri kíló af íslenskum þroski að meðaltali en nokkur önnur þjóð.
Levi's
Árið 1997 voru tekjur Levi Strauss & Co. 7.100 milljónir dala. Árið 1999 voru þær komnar í 6 milljarða slétta. Árið 2001 voru tekjurnar 4.645 milljónir - það er 35% minna en '97.Þetta kemur manni satt að segja ekki á óvart. Ég sá um daginn þátt um Levi's (á að mig minnir BBC Learning) og þar voru þessar breytingar á umhverfi fyrirtækisins teknar fyrir (tjah, buxurnar hættu bara að seljast) og hvernig fyrirtækið reyndi að halda velli með ýmsum hætti.
Heimild: Forbes
Fyrsti þingmaðurinn sem horfir á klám
Auðvitað sænskur þingmaður... reyndar þingkona ef út í það er farið.„Ég vil meira klám í sjónvarpið, til dæmis hvern laugardag, frá morgni til kvölds. Það mun hvetja fólk til kynlífs" er haft eftir henni.
Það var og.
Myndin hérna til hægri er úr myndasafni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
"einsog sögunarverksmiðja í Brasilíííííu"
Paul Schulte hjá Forbes Magazine hefur ekki mikla trú á að efnahagsástandið í Brasilíu batni á næstunni: It's the debt, stupidElephant
Nú er ég að hlusta á Baby Elephant Walk eftir Henry Mancini í 5. skiptið í röð. Ég hlýt að vera í MJÖG góðu skapi núna.Mancini er mjög góður þegar maður er í góðu skapi. Hann er hinsvegar með öllu óþolandi þegar maður er í vondu skapi.
Best að spila Breakfast at Tiffany's næst :)
Langt langt í burtu í fjarlægu landi er akademía
Ég er búinn að sjá rosalega girnilega kúrsa, m.a. þróunarhagfræðikúrs og hinsvegar stjórnmálakúrs um Mið-Austurlönd (sem hefur reyndar forkröfur um intro kúrs í stjórnmálafræði). Báðir eru kenndir á sumrin, í júní og júlí, í fjarlægum háskóla. Námið kostar ekki nema 300 þús (m.v. tvo kúrsa) en nú er það bara spurningin hvort ég sé maður til að láta draumana rætast og reyna á hvort ég komist inn í skólann... kemur í ljós... þetta myndi líklegast kosta hátt í milljónina með reiknuðum fórnarkostnaði... en m.v. að ég fór til Krítar fyrir 300 þús. í hálfan mánuð er þetta fjórðungi ódýrara m.v. tímalengd... úff, ég er farinn að arðsemisreikna þetta of mikið.En ég er allavega kominn með "Plan B" fyrir sumarið 2003.
Einum of
Þegar ég heyrði fyrst að það væri verið að kenna fólki að blogga á námskeiði, þá fannst mér það frekar fyndið.Mér finnst eiginlega enn fyndnara að lesa svo upplýsingarnar um námskeiðið.
Skráður á námskeið
Ég var að skrá mig á arabísku-námskeið í Tómstundaskólanum Mími. Langaði síðasta haust en bailaði á því. Nú er engin afsökun. Nú er líka bara að sýna að maður geti lært tungumál og það tungumál með allt öðruvísi ritmáli. Ekki það að þetta er svo stutt námskeið að ég hef engar áhyggjur af því að læra of mikið á því, bara svona inngangur (námskeiðið er ekki nema 20 kennslust.).Þetta gæti samt kostað aukið skipulag, sem er bara betra, maður vinnur alltaf betur þegar maður hefur engan tíma... sjálfsblekking vinnualka og magasárssjúklinga en hva' er'etta, maður verður stundum að láta eftir sér það sem mann langar, burt séð frá allri skynsemi.
Fréttir á Íslandi
Bjarni Ármannsson er núna á viðskiptaþingi. Hann var að koma inn á punkt sem ég gæti ekki verið meira sammála honum með. Fréttir á Íslandi skortir tilþrifanlega umfjöllun um það sem er að gerast erlendis - og skiptir verulegu máli - a.m.k. meira en flest það sem fyllir fréttatímana og dagblöðin hérna heima.Anti-Americanism
So now the State Department has invited leading scholars from around the world to a conference to give their opinions on how to tackle what it describes as anti-Americanism.Anti-US feeling under scrutiny
Ironically, the conference itself is closed and the identity of the participants is being kept secret - America's image is obviously too sensitive to be discussed in the open.
[...]Salman Rushdie had some very public advice for everyone involved.
He warned that attacking Iraq would unleash what he described as a generation-long plague of anti-Americanism that could make the present epidemic look like a time of good health.
Certainly US President George W Bush has displayed a rare talent for alienating world opinion, right from his early decision to reject the Kyoto Protocol on global warming.
And many outside the US would argue that it is American policies themselves that are at fault, not their presentation, however much money and effort is spent on it.
CAnnabis
Cannabis possession and consumption should not be treated as a criminal issue at all but as a social and public health issue, the committee concluded.Canada considers legalising cannabis
september 04, 2002
Suður-Ameríka
Ég var að skoða mjög merkilega lýðræðiskönnun í gær sem var gerð í Suður-Ameríku af fyrirtæki sem heitir því skemmtilega nafni Latinobarometro. Þeir sem hafa áhuga á málefnum S-Ameríku ættu að skoða þessa könnun.Einna merkilegast fannst mér persónulega hversu alræðisþenkjandi Paragvæbúar eru (sjá).
Spennandi bók?
Ég bíð spenntur eftir bókinni um Jón Baldvin. Ekki beint spenntur eftir bókinni sjálfur, heldur er ég meira spenntur yfir því hvort hún sé spennandi. Hvaða blammeringar verða t.d. í henni og sjálfan langar mig til að lesa nokkra kafla, svona heyra "hans hlið", annars vegar á Alþýðublaðstímabilinu og svo Viðeyjarstjórnartímabilinu (þó að ekki sé víst hvort bókin coveri það langt tímabil).Bla
Ef einhver hefur tekið mark á fyrirsönginni hjá mér í gær um "tvær fyndnar" greinar, þá hlýtur viðkomandi að halda að ég hafi furðulegan húmor. Ég hef reyndar furðulegan húmor en málið er að þær eru ekkert fyndnar, þvert á móti. Það átti að standa "fínar" þarna. Skiptir svosem engu en svona getur maður "misskrifað" sig.Já, og svo ætla ég að setja mér það takmark að heilsa Veru næst í skólanum, ekki líta bara í hina áttina. Enga feimni.
Ekki eru öll fíflin eins
Mikið eru menn að fara í taugarnar á mér. Nujoma Namibíuforseti flutti ræðu á jarðarfundinum í Jóhannesarborg um að Evrópumenn skildu halda kúltúr sínum og fjármagni frá Afríku.When you talk about human rights you include also homosexualism and lesbianism, its not our culture we Africans. And if you try to impose your culture on us Africans, we condemn it, we reject it.Hann talaði einnig um imperíalísk afskipti Evrópuþjóða og sló svo um sig með tvöföldu bíti að hætti hússins:
We don't need your investment. You can keep your money. We will develop our Africa without your money.Það var og. Merkilegt hvað sumir leiðtogar eru tilbúnir til að ganga langt, allt til að halda völdum.
Sjá nánar frétt BBC um ræðuna.
Fæðingarhálfvitar
Í áttafréttunum í morgun heyrði ég að Bandaríkjamenn og sendimenn Vatíkansins hefðu komið í veg fyrir að samkundan í Jóhannesarborg samþykkti ályktun um að tengja heilbrigðisþjónustu mannréttindumgegn og bann við umskurði kvenna, í það minnsta nema með upplýstu samþykki þeirra. Ástæðan fyrir því að sendimenn kristinna kreddumanna beggja megin Atlantshafsins leggjast gegn slíkri ályktun? Jú, með að samþykkja þessa ályktun telja þeir að fyrst konur eigi að hafa rétt til að vera ekki misþyrmt með sadískum hætti til að láta undan patríöskum pervertisma - sem hefur fengið að viðgangast í skjóli kúgunar í gegnum aldirnar - gætu þær tekið upp á þeim ósóma að krefjast frelsis yfir eigin líkama í víðara samhengi, krafist valfrelsis til fóstureyðinga.Djöfulsins fæðingarhálfvitar!
september 03, 2002
Kennitölusviptingar
Ég var að hugsa um það um daginn, að sumt fólk virðist hafa svo nákvæmlega ekkert til málanna að leggja, svo furðulega sama og áhugalaust um allt og skoðanalaust með öllu, að ég legg það til, að fólk sem ekki er hægt að halda uppi eðlilegum samræðum verði svipt kennitölunni.Það á ekki einu sinni rétt á að vera kallað "gangandi kennitölur" (© Þórir)!
Þetta var hrokakast dagsins. Skoðanalaust fólk er beðið afsökunar á þessum niðrandi ummælum um lífstíl þess. Megi það vel og lengi lifa, skoðanalausu lífi og eignast litlar skoðanalausar kennitölur og búa í vísitölutengdum húsum.
Tvær fínar
Það er margar vikur síðan ég sagði eitthvað af viti á þessari síðu. Engu að síður ætla ég að halda áfram endalausum vísunum og benda núna á tvær greinar í New York Times... bráðum fer ég að rukka þessa Ameríkana fyrir markaðssetningu... eða þeir að kæra mig fyrir höfundarréttarbrot.Fyrri er eftir Krugman, Passing the Buck:
Mr. Greenspan's remarks reinforce a worry I've had for the past few months: that Fed officials will respond to continuing economic weakness not with action but with excuses.Krugman er ekki sáttur við afsakanirnar frá Greenspan, frekar en margir aðrir, í nýlegri yfirheyrslu um efnahagslífið undanfarin ár.
Hin er eftir Nicholas Kristof, America's Failed Frontier:
President Bush's support for agricultural welfare (with considerable Democratic backing) contradicts every value he stands for and reflects a complete capitulation to a calculus of vote-buying. America's rural policy today is about where Soviet industry was in the 1980's: the leadership knows that its policies have utterly failed but lacks the courage to reform them.Landbúnaðarstyrkir eru dauði og djöfull, hver sem það er í heiminum. Aftur á móti finnst mér margt athyglisvert koma þarna fram um "sléttuna miklu".
Uppfært: breytti fyrirsögninni úr "Tvær fyndnar" í "Tvær fínar", einsog þetta átti að vera... hef eitthvað verið utan við mig. Greinarnar eru allt annað en fyndnar ef út í það er farið.
september 02, 2002
Fyndin fyrirsögn
ESB lýsir stuðningi við aukið frelsi í viðskiptumTrúi því þegar ég sé það. Þrátt fyrir stuðning Þjóðverja og Breta (allavega í orði) við að opna markaði ESB fyrir vörum frá þróunarlöndum (enda halda þeir megninu af landbúnaðarkerfinu uppi, greiða meira í það en þeir fá út úr því), þá þurfa þeir að knésetja Frakka til að einhverjar útbætur verði. Væntanleg innkoma Pólverja inn í ESB getur reyndar spilað þarna stórt hlutverk, þegar að því kemur, en það er samt enn langt þangað til að einhverjar breytingar fara að sjást.
Þess vegna finnst mér þessi fyrirsögn vera einungis fyndin.

