október 03, 2002

Samsærið gegn föla fólkinu

Fyndið að lesa þennan stutta pistil "form. Flokks framfarasinna", sem er flemtri sleginn yfir fregnum af peking-öndum - af tjörninni - á borðum nýfluttra Íslendinga.
Nálgun hans á mál er í stuttu máli að eitthvað væri nú gert ef þetta væru ekki stórhættulegt asísk-ættað fólk. Svipaða nálgun er að finna á heimasíðu hans, þar sem samsærið gegn hvíta manninum heldur áfram. Nú fær "frétt" um að ljóskur muni deyja út eftir 200 ár enga umfjöllun að hans mati (reyndar fjallaði ég um þessa "frétt" hérna á síðunni) og ástæðan fyrir því? Ekki sama Jón og séra Jón. Þar sem þetta eru hvítar ljóskur er það allt í lagi.
Já, það hlýtur að vera erfitt að lifa í heimi þar sem hörundsdökkt fólk plottar samsæri gegn manni í hverju horni - og það sem verra er, allir hinir kóa með!
Agust skrifaði 03.10.02 19:04

Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation