október 26, 2002

Bakkavör

Í gær tilkynnti Bakkavör um methagnað. Á fimmtudaginn kom Ágúst Guðmundsson, stjórnarformaður félagsins og aðaleigandi þess (ásamt bróður sínum) til okkur í alþjóðaviðskipti og hélt stutt erindi. Auk þess svaraði hann spurningum okkar tæpitungulaust og var ekki að skafa utan af hlutunum með það sem honum finnst. Fannst mér skoðun hans á vörumerkjum í sínum bransa vera fáheyrð skynsemisskoðun. Bakkavör framleiðir nær allt undir merkjum annarra og sleppur þannig við þann gríðarlega kostnað sem fylgir slíku á stórum markaði (fyrir utan alla áhættuna). Fleira sem hann sagði var SVO rétt og augljóst að það er ekki fyrir einhverja heppni sem þeir bræður hafa byggt upp veldi sitt. Á fimmtán árum eru þeir komnir úr bílskúr í Garðinum í 13 milljarða veltu á fyrstu níu mánuðum í ár. Vöxtur félagsins núna var 22% en markmiðið er 20-25% vöxtur. Það er stórt markmið en greinilegt að þeir sem stjórna vita hvað þeir eru að gera.
Agust skrifaði 26.10.02 15:08

Flokkun: Viðskipti