nóvember 04, 2002

Serrano

Jæja, ég gerði aðra tilraun við Serrano í Kringlunni og fór með Palla þangað í hádeginu.
Fyrst fékk ég mér burrito með kjúklingi og var það mjög gott. Sterka salsan var ekkert of sterk en ég fékk mér ekki guacamole. Reynsla mín af guacamole á Íslandi er slæm, það er yfirleitt einhver bragðvond græn drulla. Allt hráefnið var mjög gott og bragðaðist þetta alveg stórkostlega.
Palli fékk sér líka kjúklingaburrito en með guacamole og hælti því svo mikið að ég fór aftur og fékk mér harðar taco í þetta skiptið. Svo er líka bara svo gaman að borða :-)
Ég fékk mér sumsé hart taco annars vegar með nautakjöti og hinsvegar með guacamole (grænmeti). Guacamoleið var alveg magnað, mjög gott - fæ mér það næst þegar ég fæ mér burrito.
Maturinn var alveg einstaklega góður, "matur", ekki bara eitthvað skyndibitaloft í fallegum umbúðum með uppblásnar franskar.
Maturinn er líka vel úti látinn, millistór burrito OG gos á 599 kr. Alveg fullgild máltíð (nema þér finnist svona gaman að borða og farir aftur einsog ég).
Við Palli spjölluðum við Emil, annan eigandann, og framtíðarplönin hvað varðar úrval hljómuðu vel. Þeir Einar tóku líka vel í að bjóða upp á Pepsi Max, sem myndi tvímælalaust gefa þeim fjórðu stjörnuna :-)
Þjónustan var skammlaus og gekk vel fyrir sig. Maður velur sér hvað maður vill af hráefninu einsog t.d. er gert á Subway og fleiri stöðum en munurinn er sá að þarna ganga hlutirnir hraðar fyrir sig, þar sem notast er við skeiðar/spaða en ekki handraðað einsog t.d. á Subway - og fyrir vikið tekur það ekki hálftíma að afgreiða pöntunina einsog þar.
Í stuttu máli sagt:
Matur: 3 1/2 stjarna
Þjónusta: 2 1/2 stjarna
Verð: 3 1/2 stjarna
Ég verð bara að viðurkenna það, að ég hef ekki áður kynnst slíkri "ást við fyrsta bita" síðan ég fór fyrst á Quizno's fyrir tæpum tveimur árum.
Það er líka mjög ánægjulegt að maður hefur orðið meira val um góðan mat á Stjörnutorgi - og Serrano virðist ætla að verða fyllilega samkeppnisfær, með hagstætt verð og alveg frábæran mat. Hvet alla til að drífa sig að prófa hið fyrsta!
Agust skrifaði 04.11.02 14:29

Flokkun: Matur og vín