nóvember 21, 2002
Einn af hverjum sjö Bandaríkjamönnum vita hvar Írak er í heiminum
17% vita hvar Afganistan er á heimskortinu. 24% vita hvar Saúdi-Arabía er á kortinu og annar hver getur fundið New York á korti.Könnunin var þannig framkvæmd að kort af heiminum án nafnamerkinga var látið fólki í té og það átti að benda á það hver hinir og þessir staðir eru. Einnig voru nokkrar spurningar, t.d. um mannfjölda og "hvaðan stærstur hluti olíuframleiðslu heimsins er". Bandaríkjamenn komu mjög illa út úr þessu prófi. Svíar stóðu sig hinsvegar nokkuð vel.
Sjá frétt WP: Survey: Young Lack Geography Skills
Agust skrifaði 21.11.02 11:45
Flokkun: Mannlíf á jörðu