nóvember 23, 2002
Blóðug samviska
Hvar er nú samviskan, gott fólk? Blóðbankann vantar tilfinnanlega blóð. Ef þið hafið gefið en liðnir eru meira en þrír mánuðir síðan síðast skulið þið drífa ykkur niður á Eiríksgötu fyrir fjögur í dag.Reyndar gæti Blóðbankinn minnkað þennan skort hjá sér með mjög einföldum hætti. Hætta að útskúfa "kynvillta" karlmenn frá blóðgjöfum. Rökin fyrir því að útiloka þá frá blóðgjöf eru löngu úrelt.
Þannig hvet ég líka alla homma til að mæta niður eftir og bjóða blóð sitt. Táknræn mótmæli á ögurstundu.
Leiðrétt: Jæja, önnur leiðréttingin í röð... menn eru víst svo smámunasamir að vilja hafa Blóðbankann á horni Barónsstígs og Eiríksgötu, ekki Eggertsgötu. Ég er alvanur að rugla saman mannanöfnum, þannig ekki við því að búast að maður muni alltaf nákvæmlega nöfnin á mannanafna-heita götum :-)
Agust skrifaði 23.11.02 14:54
Flokkun: Jafnréttismál