nóvember 30, 2002
Hugmynd
Áðan var ég aðeins að spjalla við Gulla á MSN. Við vorum m.a. að ræða útilokun homma frá því að gefa blóð. Einsog marg oft hefur komið fram að undanförnu, þá vantar Blóðbankann sárlega blóð þessa dagana (þið sem eruð ekki enn búin að gefa, en getið, drífið ykkur!!).Ég viðraði þá hugmynd við Gulla að blóðgóðir hommar myndu sameinast, safnað væri á lista öllum þeim hommum sem væru tilbúnir til að gefa blóð reglulega, stunduðu ekki hættulegt líferni á borð við vændi og fíkniefnaneyslu, en fengju einfaldlega ekki að gefa blóð á þeirri forsendur að þeir eru hommar.
Þessi listi væri síðan afhentur Blóðbankanum.
Það væri statement til blóðþyrsts blóðbanka um að úreltar reglur væru að útiloka fjölda manna sem annars gæfu blóð.
Annars var ég að ræða við annan Gulla í dag, Gulla Bergmann jr. Hann var að uppfræða mig um "matarræði fyrir þinn blóðflokk". Það sem hann sagði mér var að ég mætti borða eins mikið rautt kjöt og ég vildi og allt mögulegt sjávarfang. Það fannst mér góðar fréttir. Hinsvegar ber mér víst að forðast kartöflur og óþarfa mjólk. Enda fékk ég mér naut í Serrano dagsins.
Bergmann hefur verið í massívasta heilsuátaki sem ég hef heyrt um. Hann er búinn að lesa sig við 21 kg. á mánuði!!! Þeir sem trúa því ekki ættu að skoða þetta. Glæsilegt hjá karlinum!
Agust skrifaði 30.11.02 01:33
Flokkun: Daglegt líf , Jafnréttismál