nóvember 30, 2002

Hugmynd

Áðan var ég aðeins að spjalla við Gulla á MSN. Við vorum m.a. að ræða útilokun homma frá því að gefa blóð. Einsog marg oft hefur komið fram að undanförnu, þá vantar Blóðbankann sárlega blóð þessa dagana (þið sem eruð ekki enn búin að gefa, en getið, drífið ykkur!!).
Ég viðraði þá hugmynd við Gulla að blóðgóðir hommar myndu sameinast, safnað væri á lista öllum þeim hommum sem væru tilbúnir til að gefa blóð reglulega, stunduðu ekki hættulegt líferni á borð við vændi og fíkniefnaneyslu, en fengju einfaldlega ekki að gefa blóð á þeirri forsendur að þeir eru hommar.
Þessi listi væri síðan afhentur Blóðbankanum.
Það væri statement til blóðþyrsts blóðbanka um að úreltar reglur væru að útiloka fjölda manna sem annars gæfu blóð.

Annars var ég að ræða við annan Gulla í dag, Gulla Bergmann jr. Hann var að uppfræða mig um "matarræði fyrir þinn blóðflokk". Það sem hann sagði mér var að ég mætti borða eins mikið rautt kjöt og ég vildi og allt mögulegt sjávarfang. Það fannst mér góðar fréttir. Hinsvegar ber mér víst að forðast kartöflur og óþarfa mjólk. Enda fékk ég mér naut í Serrano dagsins.
Bergmann hefur verið í massívasta heilsuátaki sem ég hef heyrt um. Hann er búinn að lesa sig við 21 kg. á mánuði!!! Þeir sem trúa því ekki ættu að skoða þetta. Glæsilegt hjá karlinum!
Agust skrifaði kl. 1:33
Flokkun: Daglegt líf , Jafnréttismál

nóvember 28, 2002

Ef ég væri ríkur

Ég er ekki frá því að ég hafi verið að fá þá hugmynd í hausinn sem mun gera mig ríkan :-)
Að sjálfsögðu ætla ég ekki að segja frá henni hér og nú... ÉG ætla að verða ríkur á henni :-)
Agust skrifaði kl. 22:07
Flokkun: Daglegt líf

Slæmar fréttir

Það er víst óhollt að borða sverðfisk og túnfisk. Ástæðan er hátt hlutfall kvikasilfurs í fiskinum. Maður á hinsvegar endilega að borða sardínur, makríl og lax (feitan fisk).
Sjá frétt BBC.
Agust skrifaði kl. 10:30
Flokkun: Matur og vín

nóvember 27, 2002

Orð kvöldsins

As often as a study is cultivated by narrow minds, they will draw from it narrow conclusions.
- John Stuart Mill í Auguste Comte and Positivism (1865).
Agust skrifaði kl. 23:46
Flokkun: Heimspeki

Hið kaþólska Írland

Fram til 1979 var bannað að selja getnaðarvarnir á Írlandi. Þá fengu apótekarar rétt til að selja þær - að mestu leyti gegn framvísun lyfseðils.
1985 var svo slakað á reglunum. Þá fengu heilbrigðisþjónustur að selja getnaðarvarnir, m.a. svokallaðar "family planning" þjónustur. Það sem skipti meira máli var að nú fengu allir yfir 18 ára aldri að kaupa smokka og sæðisdrepandi efni - enn þurfti lyfseðil fyrir öðrum getnaðarvörnum.
Aftur var slakað á reglunum 1992 og 1993, m.a. vegna vaxandi ótta við HIV-smit.

Önnur athyglisverð staðreynd um Írland. Vegna laga sem banna fóstureyðingar, nema til að bjarga lífi móðurinnar, þá endar 10. hver þungun írskra kvenna með fóstureyðingu erlendis (í langflestum tilfellum UK). Þá eru ótaldar allar ólöglegu fóstureyðingarnar sem eru framkvæmdar án eftirlits.
Sjá nánar: skýrslu SÞ
Agust skrifaði kl. 23:44
Flokkun: Fóstureyðingar

Góðan daginn!

...við skulum vona að þetta verði það.
Ritgerðin að verða búin og ég var að borða morgunmat. Ætla að klára ritgerðina, fara svo að sofa, vakti í alla nótt, er þreyttur. Þarf að vinna í hinni ritgerðinni eftir hádegið í dag. Nóg að gera.
En fyrst þarf ég að skutla systur minni í skólann.
Agust skrifaði kl. 7:32
Flokkun: Daglegt líf

Orð kvöldsins

No slave is a slave to the same lengths, and in so full a sense of the word, as a wife is.
- John Stuart Mill í Kúgun kvenna, kafli 2.
Agust skrifaði kl. 2:15
Flokkun: Heimspeki

nóvember 26, 2002

nóvember 25, 2002

Jólagjöfin í ár

Þessi á nú aldeilis heima í jólapakkanum hjá einhverjum:
A Mind of Its Own: a Cultural History of the Penis
Agust skrifaði kl. 14:28
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 23, 2002

Guðrún Inga

Ég er skrambi fúll með að Guðrún Inga skuli ekki hafa fengið betri kosningu en 15. sætið. Ég hélt satt að segja að hún fengi fleiri atkvæði í 9. eða 10. sæti, þar sem hún var ekki að keppa við neinn þar beint.
Ég hefði viljað sjá hana í öruggu varaþingmannssæti... hefði viljað sjá hana á þingi en það telst vart raunhæft. Þarna er mjög frambærileg og glæsileg ung kona á ferð sem gæti orðið ein af björtustu vonum flokksins á næstu árum.

Þegar búið er að telja þrjú þús. atkvæði - tæpan helming - hefur Siggi Kári farið upp fyrir Ástu Möller, er í 8. sæti. Pétur still going strong í 4. sætinu.

Uppfært: þegar 5.100 atkvæði hafa verið talin dregur saman með Sigga Kára og Guðmundi Hallvarðssyni! Greinilegt að stuðningsmenn SK fara seinna á fætur en meðalkjósandinn.
Agust skrifaði kl. 20:27
Flokkun: Stjórnmál

Stundum getur maður ekki annað en hlegið að fréttunum

Í orðsendingu Ástþórs til fjölmiðla segir að Friður 2000 hafi rökstuddan grun um að ráðist verði gegn íslenskri flugvél með flugráni, eða sprengjutilræði. „Við vitum ekki hvort þessi árás muni beinast gegn almennu flugi Icelandair eða Atlanta eða hvort bæði félögin verði skotmark. Tilræðið mun koma sem svar við þeim ráðagerðum ríkisstjórnarinnar að nota borgaralegar flugvélar íslenska flugflotans til flutninga á hergögnum eða hermönnum fyrir NATO í ólögmætu stríði gegn Írak,“ segir í orðsendingu Friðar 2000. (mbl.is)
Annars er ekki fallegt að hlæja að fólki sem gengur ekki heilt til skógar.
Agust skrifaði kl. 19:34
Flokkun: Fréttir

Prófkjörið

Tvennt kemur mér á óvart. Góð kosning Gulla Þór annars vegar og Sigurðs Kára hinsvegar, bjóst ekki við Gulla svona ofarlega (6.) og svo að hugsanlega gæti Siggi Kári skotist upp fyrir Ástu Möller. Svo kemur mér á óvart að Birgir skuli vera í 10. sæti - á eftir bæði Gulla og Sigga kára.
Annars fagna ég því mjög að Pétur skuli vera í 4. sæti fyrir ofan Sólveigu. Þannig helst þetta vonandi.
Agust skrifaði kl. 19:22
Flokkun: Stjórnmál

Lindsay

Einsog ALLIR sjá, þá er Lindsay Graham vissulega kvenmaður.
Agust skrifaði kl. 15:37
Flokkun: Stjórnmál

Blóðug samviska

Hvar er nú samviskan, gott fólk? Blóðbankann vantar tilfinnanlega blóð. Ef þið hafið gefið en liðnir eru meira en þrír mánuðir síðan síðast skulið þið drífa ykkur niður á Eiríksgötu fyrir fjögur í dag.
Reyndar gæti Blóðbankinn minnkað þennan skort hjá sér með mjög einföldum hætti. Hætta að útskúfa "kynvillta" karlmenn frá blóðgjöfum. Rökin fyrir því að útiloka þá frá blóðgjöf eru löngu úrelt.
Þannig hvet ég líka alla homma til að mæta niður eftir og bjóða blóð sitt. Táknræn mótmæli á ögurstundu.

Leiðrétt: Jæja, önnur leiðréttingin í röð... menn eru víst svo smámunasamir að vilja hafa Blóðbankann á horni Barónsstígs og Eiríksgötu, ekki Eggertsgötu. Ég er alvanur að rugla saman mannanöfnum, þannig ekki við því að búast að maður muni alltaf nákvæmlega nöfnin á mannanafna-heita götum :-)
Agust skrifaði kl. 14:54
Flokkun: Jafnréttismál

Strom

Strom Thurmond er að hætta í öldungadeildinni í Bandaríkjunum. Engin frétt svosem, þar sem þetta hefur verið vitað. Hann fyllir skilyrðin til að teljast "öldungur" verandi 99 ára gamall. Hann nær 100 ára aldrei eftir rúma viku.
Ég skrifaði fyrir tæpum tveimur árum smá um karlinn. Þó hann sé íhaldsmaður af verstu sort (hann barðist harkalega gegn réttindabaráttu svartra á sínum tíma!) en maður getur ekki annað en dáðst að svona mönnum og haft gaman að þeim á vissan hátt. Hann má allavega eiga það, enginn sakar hann um að vera karakterslaus.
Karlgreyið hné niður fyrir rétt rúmlega ári síðan og hefur látið svolítið á sjá eftir það. Annars er hann enn sami kvennamaðurinn en hann þakkar m.a. kvenseminni fyrir langlífið.
Lindsey O. Graham tekur sæti Thurmonds í janúar. Hann hefur unnið það helst til frægðar að hafa verið "House impeachment manager" Lewinsky-málinu.

Leiðrétt lítillega 23/11.
Agust skrifaði kl. 2:09
Flokkun: Fréttir , Stjórnmál

nóvember 22, 2002

Prófkjör

Sjálfsagt ekkert sem kemur á óvart...
Agust skrifaði kl. 16:12
Flokkun: Stjórnmál

nóvember 21, 2002

Einn af hverjum sjö Bandaríkjamönnum vita hvar Írak er í heiminum

17% vita hvar Afganistan er á heimskortinu. 24% vita hvar Saúdi-Arabía er á kortinu og annar hver getur fundið New York á korti.
Könnunin var þannig framkvæmd að kort af heiminum án nafnamerkinga var látið fólki í té og það átti að benda á það hver hinir og þessir staðir eru. Einnig voru nokkrar spurningar, t.d. um mannfjölda og "hvaðan stærstur hluti olíuframleiðslu heimsins er". Bandaríkjamenn komu mjög illa út úr þessu prófi. Svíar stóðu sig hinsvegar nokkuð vel.
Sjá frétt WP: Survey: Young Lack Geography Skills
Agust skrifaði kl. 11:45
Flokkun: Mannlíf á jörðu

Kræst!

Bandaríkjamenn ERU geðveikir! Nú eru þeir farnir að markaðssetja bíl undir sloganinu "What would Jesus drive?".
Agust skrifaði kl. 11:21
Flokkun: Viðskipti

Pólland og 1. maí

Skemmtilegur pistill eftir Pólverjann Pawel Bartoszek: Maígabb
Agust skrifaði kl. 10:54
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

Orð kvöldsins

Maðurinn sækist ekki eftir hamingju; slíkt gera einungis Englendingar.
- Friedrich Nietzsche, Grikklandsfræðingur, geðsjúklingur og einn mesti töffari heimspekisögunnar í Götzen-Dämmerung 1889.
Agust skrifaði kl. 0:46
Flokkun: Heimspeki

nóvember 19, 2002

Í dag

ætla ég að halda upp á póst-módernísk jól. Hvernig eru póst-módernísk jól? Ég veit það ekki, enda kann ég engin skil á póst-módernisma.

Í dag langar mig líka í súra hrútspunga. Ég veit ekki af hverju, en svona er ég nú bara.

Í kvöld ætla ég í Mál og menningu eftir prófið. Mér finnst sniðugt að versla eftir kvöldmat.

Í dag er ég grár og gugginn - en samt vil ég gleðjast.
Agust skrifaði kl. 16:35
Flokkun: Daglegt líf

Maó Gling

Chinese village still in Mao era
Maóisminn lifir enn í Kína - í mjög takmörkuðu mæli.
Reyndar kemur í ljós að ástæðan fyrir því að maóíska bæjarfélagið getur staðið undir sér er að það rekur verksmiðju með utanaðkomandi vinnuafli, sem nýtur ekki sömu "maóísku réttindanna" til "ókeypis" matar, heilbrigðisþjónustu etc. M.ö.o. þá funkerar maóisminn með því að fjármagna hann með quasi-kapítalisma.
Kaldhæðið.
Agust skrifaði kl. 12:29
Flokkun: Hagfræði , Heimspeki , Mannlíf á jörðu , Stjórnmál

The West Wing

Powell's route to Iraq resolution
Hér er rakin atburðarásin fyrir ávarp Bush á allsherjarþingi SÞ. Mikil dramatík þar sem Powell reynir að fá Íraksmálið í gegnum SÞ. Cheney er á móti en Condi styður Powell. Allt þetta er rakið í nýrri bók eftir blaðamanninn Bob Woodward.
Agust skrifaði kl. 0:16
Flokkun: Mið-Austurlönd , Stjórnmál

nóvember 18, 2002

...þá skalt þú höggva af henni höndina

Mósebækurnar eru einkar áhugaverð lesning. 25. kafli hinnar þriðju Mósebókar er merkilegur fyrir margar sakir. Hann kemur hér í allri sinni dýrð (textinn fenginn beint af Biblían.is
1
Þegar deila rís milli manna og þeir koma fyrir dóm, og dómur hefir upp kveðinn verið yfir þeim með þeim hætti, að hinn saklausi hefir verið sýknaður, en hinn seki dæmdur sekur,
2
og hinn seki hefir unnið til húðstroku, þá skal dómarinn láta leggja hann niður og láta slá hann í viðurvist sinni eins mörg högg og hæfir misgjörð hans.
3
Hann má láta slá hann fjörutíu högg, en ekki fleiri, til þess að bróðir þinn verði ekki fyrirlitlegur í augum þínum, ef haldið er áfram að slá hann enn mörg högg.
4
Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir.
5
Þegar bræður búa saman og einn þeirra deyr og á engan son, þá skal kona hins látna ekki giftast neinum manni úrættis. Mágur hennar skal ganga inn til hennar og taka hana sér fyrir konu og gegna mágskyldunni við hana,
6
en fyrsti sonurinn, er hún fæðir, skal teljast sonur hins látna bróður hans, svo að nafn hans afmáist ekki úr Ísrael.
7
En ef manninn fýsir eigi að ganga að eiga bróðurkonu sína, þá skal hún ganga upp í borgarhliðið, til öldunganna, og segja: ,,Mágur minn færist undan að halda við nafni bróður síns í Ísrael. Hann vill ekki gegna mágskyldunni við mig.``
8
Öldungar borgar hans skulu þá kalla hann fyrir og tala við hann, og ef hann stendur fastur fyrir og segir: ,,Mig fýsir eigi að ganga að eiga hana,``
9
þá skal mágkona hans ganga að honum í viðurvist öldunganna, draga skóinn af fæti honum, hrækja framan í hann, taka til máls og segja: ,,Svo skal fara með hvern þann, er eigi vill reisa við ætt bróður síns.``
10
Og ætt hans skal í Ísrael nefnd Berfótsætt.
11
Þegar tveir menn eru í áflogum, og kona annars hleypur að til þess að hjálpa manni sínum úr höndum þess, er slær hann, og hún réttir út höndina og tekur um hreðjar honum,
12
þá skalt þú höggva af henni höndina og eigi líta hana vægðarauga.
13
Þú skalt ekki hafa tvenns konar vogarsteina í sjóði þínum, annan stærri og hinn minni.
14
Þú skalt ekki hafa tvenns konar efu í húsi þínu, aðra stærri og hina minni.
15
Þú skalt hafa nákvæma og rétta vog, þú skalt hafa nákvæma og rétta efu, til þess að þú lifir lengi í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.
16
Því að hver sá, er slíkt gjörir, hver sá er ranglæti fremur, er Drottni Guði þínum andstyggilegur.
17
Minnstu þess, hvernig Amalekítar fóru með þig á leiðinni, þá er þér fóruð af Egyptalandi,
18
hvernig þeir réðust á þig á leiðinni og unnu á þeim, er aftastir fóru, öllum þeim er þreyttir voru og aftur úr drógust, þegar þú varst orðinn lúinn og uppgefinn, _ og óttuðust ekki Guð.
19
Fyrir því skalt þú, þegar Drottinn Guð þinn veitir þér hvíld fyrir öllum óvinum þínum allt í kringum þig í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér sem arf til eignar, afmá nafn Amalekíta af jörðinni. Gleym því ekki.
Hvernig fjórða vers kemur þarna inn í einsog skrattinn úr sauðaleggnum er alls ekki einsdæmi í helgiritum. Skipulagið á lögbókum sem þessri er oft ansi tilviljunarkennt.
5.-10. vers þekkja allir sem sáu Disney-myndina hérna um árið, sem fjallaði um einhvern sértrúarsöfnuð í Kanada þar sem ölduráðið ákvað, þegar eldri bróðirnn dó að sá yngri, 11 ára, skyldi ganga að eiga konu eldri bróðursins. Það er skelfileg mynd.
11.-12. vers eru áhugaverð, með tillit til forgangsröðunar. Það er mikilvægara að verja hreðjar karlmanna en hendur kvenna (sem hafa tekið utan um hreðjar karla í vörn fyrir eiginmenn sína).
Miskunnsemi drottins var ekki fundin upp fyrr en nokkrum öldum síðar, þegar menn hófu að rita Nýja testamentið. Þetta sést glöggt á mörgum stöðum í Gamla testamentinu. 19. vers er eitt dæmi um slíkt.
Agust skrifaði kl. 22:00
Flokkun: Heimspeki

nóvember 17, 2002

Helgin

Það hefur orðið mun minna úr þessari helgi en ég ætlaði, því miður. Það eru hvorki meira né minna en þrjú próf í vikunni og ætlaði að sjálfsögðu að vera duglegur að læra. Það gekk ekki eftir, þar sem ég er búinn að vera slappur alla helgina og reynt fyrst og fremst að bjarga heilsunni fyrir horn. Því er ekki búinn að massa tölfræðina einsog til stóð, en búinn að drekka þeim mun meira af tesulli og sofa 12 tíma í sólarhring. Þetta ber vonandi einhvern árangur. Ekki það að ég hef ekki (ennþá) sérkostlegar áhyggjur. Verð að taka þetta með trukki í kvöld og á morgun.
Hvað er annars málið með þetta veður?!?!
Agust skrifaði kl. 19:29
Flokkun: Daglegt líf

Össur

Ég átti alveg eftir að minnast á það en á fimmtudaginn kom Össur Skarphéðinsson á Viðskiptaþing í HR.
Til að gera langa sögu (eins og hálfs tíma fyrirlestur og umræður) stutta, þá orðaði ég það nú sem svo eftir á að það er sjaldan sem maður heyrir mann tala jafn mikið en segja jafn lítið.
Agust skrifaði kl. 19:18
Flokkun: Daglegt líf

Setuverkfall?

Getur einhver sagt mér hvernig sjúklingur getur farið í setuverkfall??
Læknarnir gætu kannski farið í setuverkfall. Sjúklingurinn gæti vissulega mótmælt með ýmsum hætti, tekið sér mótmælastöðu, farið í mótmælasvelti og jafnvel verið með setumótmæli. Ég sé hinsvegar ekki hvernig sjúklingurinn getur farið í setuverkfall.
Það íroníska við þetta er það að þetta birtist á forsíðu Fréttablaðsins í gær - á degi íslenskrar tungu :-)
Agust skrifaði kl. 19:14
Flokkun: Fréttir

nóvember 16, 2002

Í maganum á mömmu

Þetta er alveg hreint magnað: myndir af fóstri frá getnaði og fram að 28. viku
Agust skrifaði kl. 2:18
Flokkun: Mannlíf á jörðu

nóvember 15, 2002

Pússí

Hvaða fífli datt í hug að breyta nafni kattamatarins Felix í Pussy?
Án efa sá sama fíflið og fann upp á nöfnunum Monday (áður KPMG Consulting) og Consignia (áður Breska póstþjónustan).
Agust skrifaði kl. 23:50
Flokkun: Viðskipti

And-semitismi í Egyptalandi

Leiðari Washington Times í dag fjallar um and-semitisma í Egyptalandi.
Það er kannski bara ég, en þegar ég les þennan leiðara, sem hefur mikið til síns máls, þá finnst mér auglýsingin til hægri vera svolítið skondin: "Bringing criminals to justice / is more important than ever / our systems help get the job done / and that's bad news for the bad guys / Lockheed Martin"
Ég er ekki að gefa neitt í skyn - mér finnst þetta bara svolítið skondið.
Agust skrifaði kl. 23:46
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

So pre-emption sometimes works

Nicholas Kristof veltir fyrir sér í dag "fyrirbyggjandi árásum" á Írak. Sjálfur telst hann til skeptískra.
Hann bendir á árás Ísraela á kjarnorkuver Íraka árið 1981, sem sumir benda á sem dæmi um hvernig "fyrirbyggjandi árásir" séu stundum nauðsynlegar. Gott og vel, þessi árás bjargaði svæðinu hugsanlega frá því að Írakar eignuðust kjarnorkuvopn á 9. áratugnum. Á þessum tima voru Ísraelar aftur á móti gagnrýndir af ríkisstjórnum heimsins fyrir árásina, sem þótti algjörlega óafsakanleg. Ísraelska leyniþjónustan hafði m.a. varað Begin við því að árásin gæti haft áhrif á friðarferlið milli Ísraels og Egypta.
En þetta tókst. Franski kjarnakljúfurinn eyðilagðist en það voru engin stjórnarskipti í landinu, engin "þjóðuppbygging", ekkert. Bara árás, búmm - búið. Og það tókst.
Kristof segir:
So pre-emption sometimes works, and even doves tend to favor cross-border intervention to prevent genocide in the Rwandas of the world.
All this suggests that an invasion of Iraq may be acceptable in principle. But what does that tell us about whether we should invade Iraq now?
Wars should be principled, but that doesn't mean blindly following every principle into battle. Otherwise you end up with conflicts like my favorite, which occurred in 1739 after a British sailor named Robert Jenkins turned up in London waving one of his ears in his hand and declaring that it had been severed by the Spanish. As a result, England launched the War of Jenkins' Ear.
The lesson of Osirak is very limited — that in extreme cases it is justifiable for a country to make a pre-emptive pinpoint strike to prevent an unpredictable enemy from gaining weapons of mass destruction that would be used against it. That's a reasonable approach toward Iraq if Saddam Hussein refuses to cooperate and if we have intelligence about what sites are worth striking.
Að lokum segir Kristof: "After all, if it's appropriate to carry out pre-emptive strikes on countries that sponsor terrorism and secretly develop nuclear weapons, then we could launch an invasion today — of Pakistan."
Agust skrifaði kl. 23:27
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

Innri endurskoðun múslima

Yasmin Alibhai-Brown er ein af pistlahöfundum The Independent. Hún skrifaði í vikunni pistil, í tilefni ramadans, um innri endurskoðun múslima; Let's not forget our own Muslim intolerance. Hún segir m.a.
But over Ramadan we must do much more than dwell only on these flagrant injustices and the licence to kill and abuse that countries have acquired for themselves. We must look at the rot within our societies too, always much harder during a period of such instability and powerlessness. Most of the Muslim states are, as Hamlet said of Denmark, "stewed in corruption". I agree with the author Karen Armstrong who writes: "In a despotic, corrupt and violent society, religion is more likely to become cruel and intolerant too."
Eftir því sem ég kemst næst er Jasmín egypsk að uppruna.
Agust skrifaði kl. 23:06
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

Kóreskar brúðir

Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. Á BBC Prime er núna þáttur um kóreskar brúðir bandarískra hermanna.
Sá "bransi" er svo stór að það eru sérstakir skólar, "USO Brides School", þar sem kóreskar eru þjálfaðar upp í að verða góðar amerískar húsmæður sem elda thanksgiving-kúlkún og annað sem amerískum húsmæðrum ber að gera.
Ýmsir menningarárekstrar koma upp en brúðirnar tala oft mjög lélega eða enga ensku. Dátarnir elskulegu vilja í nær öllum tilfellum flytja aftur heim í heiðadalinn og flytja þá brúði sína með sér. Þeir eru oft ekki tilbúnir til að gera málamiðlanir og vilja að aðlögunin sé af kvennanna hálfu. Þegar dátarnir eru hinsvegar tilbúnir til að koma til móts við kóreskan kúltúr ganga hlutirnir yfirleitt betur. Skiljanlega.
Það er hinsvegar nokkuð lýsandi að bandaríski herinn skuli reka skóla til að gera kóreskar konur að amerískum húsmæðrum, enda er það skilgreint hlutverk konunnar einsog allir vita.
Á útskriftinni í skólanum er Glenn Miller spilaður. Hversu viðeigandi.
Agust skrifaði kl. 1:53
Flokkun: Mannlíf á jörðu

Demókratar á réttri leið?

Ég held að val demókrata á leiðtoga í fulltrúadeildinni hafi verið skref í rétta átt fyrir flokkinn. Með þessu er sett ákveðið statement, ákveðið diversity frá repúblikunum. Nancy Pelosi hefur, svo eitthvað sé nefnt, sett sig á móti stríðsrekstri í Írak og talað fyrir hjónaböndum samkynhneigðra - eitthvað sem hlýtur að teljast eins langt frá repúblikunum og hugsast getur.
Spurningin er hinsvegar sú, hvort repúblikanar séu ekki að slá á réttu strengina meðal bandarískra kjósenda einsog sakir standa. Ef það breytist aftur á móti, þá er nokkuð ljóst að skilin eru (og verða?) meiri en síðustu mánuði.
Agust skrifaði kl. 0:53
Flokkun: Stjórnmál

Svartir fordómafyllri?

Nú hefur herferð verið hrundið af stað í Bretlandi til að berjast gegn fordómum í garð samkynhneigðra (aðallega homma) meðal svartra. Fordómar í garð samkynhneigðra eru um útbreiddari og dýpri meðal fólks af afrískum og karabískum uppruna. Flestir tengja m.a.s. samkynhneigð við hvíta, miðstéttar karla.
Þetta gerir baráttuna gegn eyðni og HIV erfiðari og því hafa helstu líknarfélögin sem einbeita sér að því viðfangsefni farið af stað í þessa herferð. Margir svartir hommar lifa annaðhvort "tvöföldu" lífi eða fara leynt með "lífstíl" sinn. Þetta gerir hlutina erfiðari þegar kemur m.a. að baráttunni gegn HIV-smitum.
Þetta minnir mig á umfjöllun sem ég heyrði fyrir nokkrum vikum um stöðu samkynhneigðra á Karabíaeyjunum, t.d. Jamaíka. Þar er ofbeldi gagnvart hommum alvarlegt vandamál.
Agust skrifaði kl. 0:32
Flokkun: Jafnréttismál

An Ordinary Marriage

Ég er að horfa á þátt á BBC Prime um hjón sem fá ekki að giftast undir breskum lögum og fara því til Danmerkur að gifta sig.
Ástæðan er sú að hann fæddist sem kona, hún fæddist sem karl.
Þegar verið var að ræða við þau áðan stóð hún við strauborðið en hann drakk sitt te.
Lose a dick, gain an iron.
Og nú eru þau orðin löggilt hjón undir evrópskum lögum eftir að borgardómarinn með ofur-danska hreiminn er búin að gefa þau borgaralega saman.
Agust skrifaði kl. 0:22
Flokkun: Jafnréttismál

nóvember 14, 2002

J.S. Mill

Nú er siðfræðin virkilega komin á flug. John Stuart Mill og nytjastefnan næst á dagskrá. Reyndar var kennarinn að koma með frekar ósanngjarna og misskilda gagnrýni á stefnuna undir lokin. Nytjastefnan að hætti JSM er mjög góð stefna og óþarfi að vera að snúa úr úr henni.
Ég keypti mér einmitt Nytjastefnuna út í Bóksölu í vikunni. Mun þó ekki leggja í hana fyrr en við betra tækifæri, renn kannski yfir innganginn um helgina, til að bæta við mig, ef hún ætlar að gagnrýna Mill gamla aftur á svona ósanngjarnan hátt.
Ég þarf líklegast ekki að taka það fram að JSM er í miklum metum hjá mér.
Agust skrifaði kl. 11:12
Flokkun: Daglegt líf

Frank Lloyd Wright og Kant

Horfði á mjög svo áhugaverðan þátt á BBC Prime í gærkvöldi/nótt. Alveg ótrúlegur þessi maður. Ég hafði ekki séð nema lítið brot af verkum hans, Falling Waters, Gugenheim og ein eða tvö hús í viðbót. Þvílíkt og annað eins, skrifstofubygging Johnson's Wax er t.d. eitthvað það allra magnaðasta sem maður hefur séð.
Maðurinn sjálfur var einsog aðrir sannir snillingur mjög sérstakur. Hann var líka hrokagikkur með óbilandi trú á sjálfan sig. Sem betur fer, því hann þurfti að ganga í gegnum ýmsar þrengingar í lífinu en náði alltaf að standa upp eftir höggin. "I took the blows, but I stood tall", einsog segir í My Way.
Hann fór sínar leiðir í lífinu og trúnna á mátt sinn og hæfileika að vopni. Hann vissi hvað hann gat og gerði það. Það er það sem skilur þá sem áorka einhverju verkulegu í lífinu frá sauðunum. - Mjög skemmtilegur þáttur.

Kláraði 2. section í Kant. Tæpar 20 bls. eftir, stefni á að klára þær í kvöld. Lokin á 2. sectioni þegar hann fer að tala um konungsríki guðs voru ekki alveg að gera sig. Kant var klikkaður og án efa leiðinlegasti maður sinnar kynslóðar, en þetta er samt einhvern veginn samt áhugavert. Nema þýðandinn sé svona assgoti góður :-)
Agust skrifaði kl. 10:59
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 13, 2002

Secret Life of Us

Þetta er skemmtileg saga. Allavega hló ég: Hot dating tip #4 – láttu drukkna og ógæfulega lögmenn áreita stúlkuna þína. Þú ert alltaf að græða á samanburðinum
Agust skrifaði kl. 11:56
Flokkun: Daglegt líf

Grundlegung zur Metaphysik der Sitten

Þetta er meiri titillinn. Ég ætla ekki að ljúga að nokkrum manni að ég sé að lesa þýsku, því enska þýðingin sem ég er að lesa nefnist Grounding for the Metaphysics of Morals [with] On a Supposed Right to Lie because of Philanthropic Concerns (fæst á amazon.com og Bóksölunni).
Bókina skrifaði Immanuel Kant og hún kom fyrst út í Riga árið 1785.
Ég er núna búinn að renna í gegnum inngang þýðanda (alltaf jafn kjarnyrtur texti í svona ritum), prefaceinn og fyrsta sectionið af bókinni sjálfri. Ég á því eftir 2. og 3. section auk stuttrar ritgerðar eftir Kant, "On a Supposed Right to Lie..." sem er á eftir bókinni sjálfri. Bókin er bara ansi áhugaverð og bíð ég spenntur eftir 3. sectioni þegar hann kemur inn á frelsið.
Það hvarlar ekki að mér að kynna kenningar Kants fyrir fólki, til þess skortir mig alla þekkingu. Hann var léttklikkaður Þjóðverji sem var algjörlega á móti því að fólki ljúgi - og kemur því varla á óvart að hann hafi aldrei kvænst né átt góða vini.
Fyrir um þremur árum síðan ákvað ég að kynna mér Kant eilítið en gafst upp á því, fannst hann bæði einstaklega óáhugaverður og yfirmáta leiðinlegur. Nú er ég búinn að fá nasasjón af honum í Siðfræði í HR og keypti þessa stuttu bók eftir hann ásamt fleiri bókum á algjöru shopping spreei í dag. Kant er ekki eins leiðinlegur einsog hann virðist við fyrstu sýn.
En áfram skal haldið...
Agust skrifaði kl. 1:50
Flokkun: Heimspeki

nóvember 12, 2002

Skeyti

Ég sendi ekki skeyti - ég sendi langferðabíl.
Agust skrifaði kl. 22:46
Flokkun: Daglegt líf

Heilinn

Ég fæ engan svefnfrið fyrir framtíðarplönum. Heilinn neitar að taka pásu svo ég fái einhvern svefnfrið og við því er lítið að gera, Heilinn hefur alltaf betur!
Þess vegna er ég núna á netinu í stað þess að fljóta um í draumaveröld í rúminu.
Þess vegna er ég búinn að vera að kynna mér háskóla í Bretlandi, lestarferðir í Asíu og daglegt líf í Kaíró.
Ekki spyrja mig af hverju, ég geri bara það sem Heilinn segir mér.
Þessi Heili er til vandræða!
Agust skrifaði kl. 1:28
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 11, 2002

Norðvestur

Niðurstöðurnar hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi lágu ekki fyrir fyrr en seint og um síðir. Niðurstöðurnar komu á óvart - einsog vitað var.
Gleðifréttirnar eru að Einar Oddur er inni en þær slæmu að Vilhjálmur Egilsson, þingmaður er úti. Óskandi að ein 40-50 atkvæði eða svo hefðu farið á annað veg, það hefði verið betri listi, kominn tími á suma. Einar Oddur er hinsvegar einn af örfáum skemmtilegum þingmönnum Alþingis og auk þess fylginn sér.
Best geymda leyndarmál Alþingis lenti í 4. sæti, þannig líkurnar á að hann sitji áfram eru hverfandi, sem er ágætt.
Agust skrifaði kl. 20:25
Flokkun: Stjórnmál

Free Trade Today

Um helgina var ég sérdeilis duglegur. Las heila bók (og gott betur!). Að sjálfsögðu var þetta ekki nein bók til próf, heldur bók sem ég sá á bókasafninu eftir Jagdish Bhagwati og nefnist Free Trade Today.
Reyndar er þetta ekki bók í hefðbundnasta skilningi, því þetta er fyrirlestraröð þriggja fyrirlestra sem prófessor Bhagwati hélt í Stokkhólmi fyrir tveimur árum.
Mjög áhugavert, sérstaklega fannst mér 2. fyrirlesturinn skemmtilegur. Bhagwati er einn af brautriðjendum í kenningasmíðum um alþjóðaviðskipti og hefur verið í "bransanum" í hálfa öld. Hann hefur kennt við nokkra háskóla, nú síðast Columbia, og margir nemendur hans eru meðal þekktustu fræðimanna greinarinnar í dag, m.a. Paul Krugman. Einnig hefur hann starfað fyrir ýmsar alþjóðastofnanir og NGOs, m.a. GATT/WTO og SÞ. Hann hefur því gífurlega reynslu og þekkingu bæði af akademíska sviðinu og innan alþjóðastofnana.
Bókin er stutt, sem er kostur, ekki nema 120 bls. og því lítið verk að renna í gegnum hana á tveimur kvöldum.
Agust skrifaði kl. 15:03
Flokkun: Hagfræði

Traficant

Ég neitaði að trúa þessu fyrr en ég sæi þetta. James Traficant jr. fékk 27.487 atkvæði í "House District 17" í Ohio sem "sjálfstæður" frambjóðandi. Hann fékk m.ö.o. 15% atkvæða, þrátt fyrir að hafa verið dæmdur fyrir mútuþægni á árinu og vera rekinn úr þinginu, sem hefur ekki gerst í rúmlega 150 ár.
Frambjóðandi demókrata (sem Traficant tilheyrði áður) fékk 51% og sigraði frambjóðanda repúblikana sem fékk 34% atkvæða. Sumsé þrír af hverjum tíu sem kusu demókrata eða Traficant kusu manninn með Prestley hárgreiðsluna. M.ö.o. Bandaríkjamenn eru fífl!!
Heimild: WP
Agust skrifaði kl. 14:43
Flokkun: Stjórnmál

Glæpir og kókaín

Guardian: Half London street crime is linked to cocaine use
Agust skrifaði kl. 12:35
Flokkun: Lög&réttur

Reykingar og reykingar

Ég get ekki séð að þessi frétt, Cannabis smoke 'worse' than tobacco, komi fram með neitt nýtt. Ég hef allavega tvisvar sinnum áður séð fréttir af rannsóknum sem sýnt hafa að kannabis-reykingar eru mun verri en sígarettureykingar. Þessi frétt segir: "three cannabis joints a day cause the same damage as 20 cigarettes".
Athyglisvert samt að nú virðast menn vera farnir að berjast gagn kannabisinu á nýjum vígstöðvum. Að það sé óhollt að reykja (sígarettur) en það sé enn óhollara að reykja kannabis.
Agust skrifaði kl. 12:23
Flokkun: Fréttir

nóvember 10, 2002

Endurnýjunin í heild sinni?

Er það ekki rétt skilið hjá mér að Sigríður Jóhannesdóttir sé fyrst til að detta út af þingi í prófkjöri Samfylkingarinnar.
Annars get ég ekki annað en glott í morgun þegar ég vaknaði við fréttir af því að Einar Karl hafi lent í 9. sæti í Rvk og Jakob Frímann í 10. sæti.
SF: MARGRÉT Í 1. SÆTI Á SUÐURLANDI
Talning lauk á Selfossi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi kl. 18.
1. Margrét Frímannsdóttir 1167
2. Lúðvík Bergvinsson 1150
3. Björgvin G. Sigurðsson 1002
4. Jón Gunnarsson 1133

Jón vantaði 77 atkvæði til að fella Björgvin úr þriðja sætinu.
Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður fékk ekki brautargengi í prófkjörinu og varð í fimmta sæti.
src: Textavarpið, síða 114.

Það verður að teljast merkilegt að Sigríður Jóhannesdóttir sé dottin út af þingi. Hún var, að ég held, síðasti þingmaðurinn sem eftir var, sem bar prófgráðu frá sovéskum háskóla. Hún lærði líffræði við Moskvu-háskóla á 7. áratugnum. Einnig er nokkuð síðan síðasti austur-þýsk menntaði þingmaður hvarf af þingi.

Engu að síður er merkilega mikið eftir af gömlum kommum í Samfylkingunni.

Það er heldur ekki laust við að orð Össurar rifjist upp fyrir mér, sem hann lét falla eftir umræðu í stjórnmálafræðitíma í 6. bekk fyrir tveimur árum. Þegar hann var spurður (af gallhörðum Samfylkingarmanni) hvort hann teldi ekki stóran hluta vanda Samfylkingarinnar vera þingliðið, sem væri samansafn af miðaldra miskristnuðum kommum. Hann svaraði því til að hann gæti auðvitað ekki viðurkennt þetta, en hann skyldi þetta sjónarmið mjög vel og hefði vissulega áhyggjur af þessu.
Össur greyið virðist sitja uppi með sama fólkið næstu fjögur árin.
Agust skrifaði kl. 18:45
Flokkun: Stjórnmál

'Get your abaya! They'll kill you!'

Maureen Dowd hefur verið að ferðast um Saúdi-Arabíu og segir frá því í pistli í dag, þegar siðgæðislögreglan böstar hana fyrir að "útlínur líkama hennar sjáist". Þá er hún nýkomin út úr undirfataverslun þar sem úrvalið "fengi Las Vegas til að roðna".
"They say they can see the outline of your body," he translated. "They say they welcome you to the mall, which is a sign of our modernity, but that we are also proud of our tradition and faith, and you must respect that." The police took my passport and began making notes about the crime, oblivious to the irony of detaining me in front of the window of another lingerie shop displaying a short lacy red slip.
Sjá: Frederick's of Riyadh
Agust skrifaði kl. 17:33
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

Sunnudagar

Ég þoli ekki sunnudaga!
Agust skrifaði kl. 17:21
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 09, 2002

Vetrarhátíð Visku

Í gær var Vetrarhátíð Visku (áður þekkt sem Jólahlaðborð Visku). Hún fór fram í Skíðaskálanum í Hveradölum.
Maturinn var fínn, en ekkert sem maður varð saddur af, frekar en yfirleitt þegar svona stórir hópar eru í mat. Kjúklingur "að hætti Miðjarðarhafsbúa" bragðaðist ágætlega og lax var í forrétt. Einhver ískaka var í eftirrétt.
Veislustjóri var Úlfar Linnet og var hann vissulega eftirbátur Ómars Ragnarssonar sem fór á kostur í fyrra. Heiðursgestir kvöldsins var Geir H. Haarde og frú. Hann flutti ræðu, sem kom öllum á óvart held ég. Ræðan samanstóð að mestu leyti af klámbröndurum og neðanbeltishúmor. Hann kom a.m.k. mikið á óvart, enda hef ég álitið hann hingað til einn af allra leiðinlegustu mönnum landsins. Því var ekki að heilsa þarna, þó einhverjir könnuðust við helming brandaranna úr sömu brandarabókinni.
Upp úr því fór Óli Palli útvarpsmaður að "þeyta skífur". Fyrst var lítil stemmning fyrir dansgólfinu en svo fór fólk að verða drukknara og hugrakkara og varð að lokum vel troðið.
Skemmst frá því að segja að ég hef líklegast ekki skemmt mér svona síðan... ég veit ekki hvenær. Dansaði einsog ég veit ekki hvað - gamli maðurinn sleppti alveg fram af sér beyslinu. Já, og Heiða (sem var með mér í bekk) fær þakkir fyrir góða skemmtun. Allir vondu mennirnir sem helltu bjór yfir fötin mín fá hinsvegar engar þakkir, held að bindið hafi verið það eina sem fékk ekki gusu yfir sig.
Ég var svo uppgefinn þegar rútan kom í gær niður í bæ að ég fór heim að sofa í stað þess að halda djamminu áfram (enda hvaða villimenn aðrir en Íslendingar koma í bæinn klukkan rúmlega tvö og byrja aftur að djamma). Fékk fer með rútunni í Hafnarfjörðinn (kosturinn við Hópbíla er að þeir enda alltaf þar:) Kom heim og steinsofnaði.
Gott kvöld, enda svaf ég til fjögur í dag. Vaknaði hálf ónýtur, en alls ekki þunnur, enda drakk ég lítið (en skemmti mér þeim mun meira). Er núna ennþá með suð í eyrunum og er að hlusta á Leonard Cohen og Joan Baez.

ps. Óli Palli fær prik fyrir að spila Walk Like An Egyptian með The Bangles. Sumir voru greinilega ekki að fatta hvernig "Egyptian-dansinn" er og fannst við sem dönsuðum hann af miklum móð eitthvað hálf asnalegir. Ég spyr nú bara, hvað var þetta fólk að gera '85/'86?? Þetta lag og Final Countdown með Europe voru uppáhaldslögin mín á þessu tímabili (eða allavega eftirminnilegustu) - þó ég hafi alltaf lifað í þeirri trú að seinna lagið héti "It's A Fire Downtown!" Last Christmas með Wham var auðvitað flottast jólalagið, en ég vissi ekki fyrr en fyrir svona þremur árum að textinn er ekki "send you frontiers"... Nóg um það, fólk sem kann ekki "Egyptian-dansinn" hefur farið á mis við mikið :-)
Agust skrifaði kl. 18:17
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 08, 2002

Konur í Íran

Skv. þessari frétt í Middle East Times eru konur í írönskum háskólum 63% nemenda. Harðlínumenn óttast sumir þessa þróun og vilja setja kvóta í háskólana til að vinna gegn þessari "hættulegu þróun". Þetta verður að teljast jákvætt, þar sem ef eitthvað ýtir undir umbætur þá er það menntun.
Nú eru líka þúsundir íranskra kvenna að læra á mótorhjól en reiðhjóla- og mótorhjólanotkun kvenna hefur verið litin hornauga af íhaldsmönnum í landinu. Þeir sem standa fyrir kennslunni vitna aftur á móti í Múhammeð spámann, sem hvatti alla múslima til að læra að sitja hest, skjóta og synda. Mótorhjóla verandi þá hestar í nútima samhengi.

Auk þess eru "kvennafréttir" MET frá 1. nóv. um umskurð kvenna í Súdan, sem er hvergi jafn útbreiddur í heiminum og þar. Skelfilegt alveg hreint.

Einnig er sagt frá því hvernig trúaðar konur hylja slæður sínar með hárkollum til að geta gengið í háskóla í Tyrklandi. Lög í landinu banna konum að bera bæði hijab og búrkur. Þetta minnir svolítið á konur strangtrúar Gyðinga í New York, en í Gyðingdómi er giftum konum bannað að sýna hár sitt á almannafæri. Þess vegna klippa konurnar hárið mjög stutt og bera hárkollur yfir. Hárkollubransinn nýtur góðs af þessu og margir lifa af því að framleiða hárkollur fyrir þessar konur, því þær eru alveg jafn tískusæknar margar hverjar og aðrar "trúminni" kynsystur sínar.
Agust skrifaði kl. 16:15
Flokkun: Jafnréttismál , Mið-Austurlönd

Hvalur dagsins

sigurdurkari.is
Agust skrifaði kl. 15:37
Flokkun: Óflokkanlegt

Road to Perdition

Mér var boðið í bíó í gær. Það er svo einstaklega fáheyrðu viðburður að ég láti sjá mig í bíói að það er eins gott að minnast á það hér.
Stefán Einar bauð mér á Road to Perdition. Þetta var fín mynd, fínir leikarar, öll "vinnslan" mjög prófessjonal og hún var öll í fókus, ólíkt síðustu mynd sem ég sá í Regnboganum.
Paul Newman var gaman að sjá, ekki á hverjum degi sem maður sér hann í stóru hlutverki. Fjöldi frægra og frambærilegra leikara koma fram í myndinni og skila flestir sínu bærilega. Einsog áður kom fram er öll "vinnslan" við myndina mjög góð, hljóð, lýsing, kvikmyndataka - allt er þetta mjög prófessjonalt. Tvö, þrjú atriði sem voru yfirdramatíkseruð en það er ekki mikið í mynd frá Hollywood.
Viðfangsefni myndarinnar er í sjálfu sér hefndin og hverju hún skilar mönnum - engu. Endalok myndarinnar lágu ljós frá upphafi og komu því ekki á óvart, voru mjög "eðlileg" í takt við söguna.
Mynd sem á alveg skilið þrjár stjörnur af fjórum mögulegum.
Agust skrifaði kl. 13:23
Flokkun: Menning

nóvember 07, 2002

Baby Opera

Svana svefnpurka sendi mér þennan óheyrilega fyndna link.
Agust skrifaði kl. 19:55
Flokkun: Óflokkanlegt

Klinger

Sem mesti aðdáandi M*A*S*H þáttanna á Íslandi vil ég leiðrétta það að Klinger hafi verið klikkaður klæðskiptingur. Hann var hvorugt. Hann klæddist reyndar kjólum og reyndi að sannfæra alla um að hann væri geðveikur. Það tókst ekki betur en svo að hann endaði á að giftast kóreskri konu og varð hann einn eftir í Kóreu af hópnum. Svo þykir mér leitt að fólk skuli gleyma Radar í upptalningunni.
Agust skrifaði kl. 16:32
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 06, 2002

Með/á móti Stefáni Einari

Mér finnst það nokkuð skondið að emmerringar séu með eitt umræðuefnið í ræðukeppni bekkja í skólanum með/á móti Stefáni Einari.
Stefán Einar segir sjálfur um þetta: "Þetta er eitt mest óheillandi umræðuefni sem hægt er að hugsa sér enda hef ég fátt mér til frægðar unnið annað en að sitja í fimm mánuði sem féhirðir NFVÍ og að hafa tapað í Gettu Betur á móti liðum sem enginn veit hvaðan koma."
Agust skrifaði kl. 14:07
Flokkun: Daglegt líf

Tyrkland

Rosalega er þessir alþjóðastjórnmálapistlar á Frelsi.is vel skrifaðir! :-)
Agust skrifaði kl. 13:56
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

10 ára sterabolti

Binni var að benda mér á þennan link: richardsandrak.org
Sumt fólk er bara OF sick! Þessi strákur er ekki nema 10 ára gamall... hvað er málið!!
Agust skrifaði kl. 13:14
Flokkun: Óflokkanlegt

nóvember 05, 2002

Fóstureyðingar og trúarbrögð

Undanfarið hef ég verið í siðfræðitímum, þar sem m.a. hefur verið komið inn á fóstureyðingar.
Sjálfur hef ég kynnt mér efnið nokkuð vel og skrifað bæði um málið hér á síðunni og á Frelsi.is
Hinsvegar hef ég aldrei skrifað um afstöðu annarra trúarbragði en kristni til fóstureyðinga. Ég ætla því að birta þær upplýsingar sem ég fann á netinu frá Landlæknisembættinu.

Gyðingdómur:
"einungis samþykkur fóstureyðingum ef líf móðurinnar er í hættu".

Búddismi:
"Í búddisma skipta aðstæður meira máli en trúarsetningar. Meginreglan er sú að varðveita beri allt líf."

Islam:
"Fóstureyðingar eru bannaðar með öllu" (en ekki getnaðarvarnir).

Hindúismi:
"Fóstureyðingar eiga sér stað í hindúasamfélagi. Það kann þó að vera í óþökk hinna trúuðu."

Bahá'ía:
"Bahá’íar eru á móti fóstureyðingum nema góð læknisfræðileg rök liggi að baki, t.d. ef líf móðurinnar er í hættu."

Taóismi:
Þar sem taóismi er ekki trúarbrögð í hefðbundnum skilningi er það undir einstaklingnum sjálfum komið.
Agust skrifaði kl. 23:05
Flokkun: Fóstureyðingar

Davíð

Sá sem þykist geta séð Má Örlygsson á þessari mynd, er að plata.
Agust skrifaði kl. 22:51
Flokkun: Daglegt líf

Demókratar og Tyrkir

The Left Dumbs Down: Nicholas Kristof skammast út í "vinstrimennina" í Bandaríkjunum fyrir ómálefnalega gagnrýni. Hún er faktískt svo ómálefnaleg að hún er farin að minna á Rush Limbaugh og önnur gáfumenni.
Hann nefnir dauða Pauls Wellstone sem dæmi, þar sem demókratar hafa farið offarir og m.a. sagt þetta hafi verið morð o.fl. Þetta hefur haft það í för með sér að fyrir vikið eru fjórðungi færri kjósendur líklegir til að kjósa Demókrataflokkinn í Minnesota. M.ö.o. demókratar eru að skjóta sig í fótinn hægri/vinstri.

Uppfært 06/11: Mondale tapaði í Minnesota, þannig repúblikaninn Norm Coleman tekur sæti Wellstone.

Kosið var í Tyrklandi um helgina og sigraði Réttlætis- og þróunarflokkurinn.
In the post-Sept. 11 environment, when the compatibility of Islam and democracy has been questioned, the current Turkish experiment is of utmost importance. If successful, Turkey will have shown that secularism can indeed be liberal and tolerant — and that democracy can function properly in a Muslim environment. Most of the responsibility to make the experiment succeed lies with Turkey and depends on the ability of both Justice and Development and the secular elites to accommodate one another.
- Soli Ozel, prófessor við Istanbul Bilgi University og ritstjóri tyrkneskrar útgáfu Foreign Policy, í grein í NYT.
Agust skrifaði kl. 21:53
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

Til hamingju, Þórir!

Þórir náði! Ekki nóg með að hann náði, hann fékk 10!
Við fórum áðan á Serrano. Ég tek aftur allt sem ég sagði um að sterka salsan væri ekki sterk. Hún er sterk, a.m.k. í miklu magni.
Endilega óskið Þóri til hamingju með áfangann.
Agust skrifaði kl. 19:17
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 04, 2002

Serrano

Jæja, ég gerði aðra tilraun við Serrano í Kringlunni og fór með Palla þangað í hádeginu.
Fyrst fékk ég mér burrito með kjúklingi og var það mjög gott. Sterka salsan var ekkert of sterk en ég fékk mér ekki guacamole. Reynsla mín af guacamole á Íslandi er slæm, það er yfirleitt einhver bragðvond græn drulla. Allt hráefnið var mjög gott og bragðaðist þetta alveg stórkostlega.
Palli fékk sér líka kjúklingaburrito en með guacamole og hælti því svo mikið að ég fór aftur og fékk mér harðar taco í þetta skiptið. Svo er líka bara svo gaman að borða :-)
Ég fékk mér sumsé hart taco annars vegar með nautakjöti og hinsvegar með guacamole (grænmeti). Guacamoleið var alveg magnað, mjög gott - fæ mér það næst þegar ég fæ mér burrito.
Maturinn var alveg einstaklega góður, "matur", ekki bara eitthvað skyndibitaloft í fallegum umbúðum með uppblásnar franskar.
Maturinn er líka vel úti látinn, millistór burrito OG gos á 599 kr. Alveg fullgild máltíð (nema þér finnist svona gaman að borða og farir aftur einsog ég).
Við Palli spjölluðum við Emil, annan eigandann, og framtíðarplönin hvað varðar úrval hljómuðu vel. Þeir Einar tóku líka vel í að bjóða upp á Pepsi Max, sem myndi tvímælalaust gefa þeim fjórðu stjörnuna :-)
Þjónustan var skammlaus og gekk vel fyrir sig. Maður velur sér hvað maður vill af hráefninu einsog t.d. er gert á Subway og fleiri stöðum en munurinn er sá að þarna ganga hlutirnir hraðar fyrir sig, þar sem notast er við skeiðar/spaða en ekki handraðað einsog t.d. á Subway - og fyrir vikið tekur það ekki hálftíma að afgreiða pöntunina einsog þar.
Í stuttu máli sagt:
Matur: 3 1/2 stjarna
Þjónusta: 2 1/2 stjarna
Verð: 3 1/2 stjarna
Ég verð bara að viðurkenna það, að ég hef ekki áður kynnst slíkri "ást við fyrsta bita" síðan ég fór fyrst á Quizno's fyrir tæpum tveimur árum.
Það er líka mjög ánægjulegt að maður hefur orðið meira val um góðan mat á Stjörnutorgi - og Serrano virðist ætla að verða fyllilega samkeppnisfær, með hagstætt verð og alveg frábæran mat. Hvet alla til að drífa sig að prófa hið fyrsta!
Agust skrifaði kl. 14:29
Flokkun: Matur og vín

Skuggaráðherra segir af sér

John Bercow, skuggaráðherra Íhaldsflokksins í lífeyrismálum hefur sagt af sér sem slíkur. Ástæðan er að hann er ekki sáttur við stefnu Íhaldsflokksins í ættleiðingarmálum. Íhaldsflokkurinn ætlar að leggjast gegn stjórnarfrumvarpi þess efnis að samkynhneigð og ógift pör geti ættleitt börn. Sjá The Guardian: Bercow quits over Tory adoption policy
Stefna Íhaldsflokksins virðist versna með hverjum deginum ef eitthvað er. Alveg ótrúleg hvað þeir eru að gera ekki góða hluti. Hvorugt skrítið að flokkurinn skuli ekki njóta neinna vinsælda og að meðalaldur flokksbundinna er á ellilífeyrismörkunum.
Agust skrifaði kl. 12:29
Flokkun: Stjórnmál

Economist

Á morgun fæ ég vonandi nýjasta tölublað The Economist, þ.e.a.s. ef póstþjónustan stendur sig. Ég hef beðið eftir þessu tölublaði í nokkrar vikur, þar sem sérstök úttekt er á málefnum innflytjenda í blaðinu (sem verður að teljast eitt af mínum helstu "áhugamálum").
Hvað um það, síðasta tölublað var yfir meðallagi, bara töluvert djúsí.

Áhugaverð special report um Mið-Evrópu (því miður læst öðrum en áskrifendum á netinu). Þar ekki annað hægt að skilja en að framtíðin sé bara nokkuð björt fyrir Mið-Evrópulöndin sem eru á leiðinni inn í ESB (og við köllum oft Austur-Evrópu). Þarna er athyglinni beint að Tékklandi, Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi. Löndin eru ekki gallalaus, en lokaorð greinarinnar eru
On the other hand, the admission of these new countries may not be as costly as some in Paris or Berlin fear. After all, Central Europe was never as backward as the cold war and its after-effects made it seem. Though ravaged by the second world war and what followed, the region also has a history of democracy, high culture and relative prosperity. Proper reintegration with the rest of Europe, painful though it may be, is long overdue.
Auknum réttindum Kúrda í Tyrklandi er fagnað (læst grein) og sagt frá hálfgerðu uppgjöri sem Spánverjar eru komnir í við Franco-tímann.

Svo er það lítil grein, sem mér finnst nokkuð athyglisverð (en er því miður læst) um veikindadaga í Svíþjóð. Svíar virðast vera heilsulausasta þjóð Evrópu. Þar er að meðaltali 10% starfsmanna heima í veikindafríi á degi hverjum. Hverju er um að kenna? Jú, auðvitað fáránlegu "velferðarkerfi" sem ýtir undir það að fólk taki sér veikindafrí þegar það er í raun og veru ekki veikt. Í nýlegri könnun kom í ljós að 62% starfsmanna finnst í lagi að taka sér veikindafrí án þess að þurfa þess raunverulega. Stjórnvöld eru ekki sammála og hafa skipað mann sérstaklega til að díla við þetta.

Óvíst er að ástandið í Kenýa eigi eftir að batna nokkuð, þó Moi sé farinn frá völdum. Eitt dæmi af svo alltof mörgum um skelfilega lélega stjórn í Afríku.

Ekki eru öll samskipti Bandaríkjamanna og Araba slæm. Í grein um bandaríska háskóla í Mið-Austurlöndum segir hvernig þeir hafa lifað í gegnum súrt og sætt. Frægastir eru náttúrulega AUC og AUB en nýir háskólar hafa verið opnaðir að amerískri fyrirmynd á síðustu árum.

Lexington veltir fyrir sér hvað sé eiginlega að í Kaliforníu, þar sem demókratar eru með óvinnandi forskot, þrátt fyrir að ríkisstjórinn Gray Davis hafi ekki gert neitt af viti.
Annars snúast aðrar USA-greinar í blaðinu um kosningarnar vestan hafs. Ég hreinlega nenni ekki að setja mig inn í þær, enda snúast þær aðallega um hversu mörg atkvæði Bush og félagar ná að kaupa á kostnað skattgreiðenda, hvort sem það eru auknir landbúnaðarstyrkir eða stáltollar.

Kosningar í Ekvador eru á næsta leyti. Þar stendur valið á milli Hugo Chavez og Silvio Berlusconi, einsog Economist orðar það. Vinstrisinnaði colonelinn Gutierrez og bananakóngurinn Noboa keppa um forsetaembættið. Baráttan gæti orðið hörð en hvorugur virðist samt vera líklegur til að koma Ekvador út úr þeim hremmingum sem landið er í. Síðustu tveir forsetar entust þar að auki einungis 18 mánuði af þeim fjórum árum sem kjörtímabilið er. Annars finnst mér merkilegt að hafa bara séð nokkuð hlutlausa umfjöllum um Gutierrez á Múrnum.

Tölvunördar hafa örugglega áhuga á umfjöllun um digital security upp á margar, margar blaðsíður - en ég nenni ekki að lesa hana.

Kjarnorkuvopnaáætlun N-Kóreumanna var náttúrulega ein aðalfréttin fyrir rúmri viku síðan, þannig það mál fékk umtalsverða umfjöllun og auk þess leiðara (læst). Skiljanlega, m.v. það sem á undan er gengið, eru Japanir ekkert hrifnir af nágrönnum sínum í norðri.

Lítil en athyglisverð grein (læst) fjallaði um nýleg lög í Tamil Nadu á Indlandi. Þar hafa trúskipti sem eru annaðhvort "þvinguð" eða "vegna múta" verið bönnuð með lögum. Margir hinna séttlausu hafa tekið kristna trú eða íslam og vill ríkisstjórinn í leiðinni styrkja stöðu sína innan Bharatiya Janata flokksins. Tamil Nadu nær yfir mestan syðsta hluta Indlandsskagans.

Nú er að verða ár síðan Talibanar voru hraktir frá völdum í Afganistan. Ekki er þó allt í sóma í landinu. Ég stend líka alveg á kenningu minni um árin þrjú. Ég skal trúa því að það geti ríkt friður og jákvæð þróun átt sér stað þegar þrjú ár eru liðin án stóráfalla.

Kína heldur áfram á sinni þróunarbraut í átt að semi-kapítalísku einræðisríki. Nú aftur á móti eru menn í Beijing farnir að huga að því að endurbyggja fornminjar sem Maó lét eyðileggja systematískt á 6. og 7. áratugnum í borginni forboðnu. Borgarmúrarnir voru taldir þeir stærstu og heillegustu í heiminum fyrir hálfri öld síðan, áður en þeir enduðu sína 500 ára löngu sögu.

Afrísk olía er farin að skipta sköpum (læst grein) fyrir Bandaríkin, sem nú fá 15% af innfluttri olíu frá Afríkuríkjum. Afleiðingin? Ekki gott að segja. Angóla er farið að framleiða yfir 100 þús. tonn á dag af hráolíu, sem er umtalsvert, þó það sé ekkert í samanburði við Flóaríkin. Afrískir stjórnarherrar hafa hingað til ekki verið meðal þeirra bestu í heiminum og kalda stríðið tryggði völd nokkra, "þökk" sé Bandaríkjamönnum. Hvað áhrif olían mun hafa í framtíðinni á ríki allt frá Angóla til Tsjads er óvíst en þau verða ekki endilega jákvæð eða hagrænni þróun í löndunum til góða. Reyndar eru olíukompaníin búin að brenna sig svo illa á mistökum (m.a. í Nígeríu) að þau eru farin að reikna með "samfélagslegum skyldum" í arðsemisútreikningunum. Alþjóðabankinn hefur líka komið að t.d. lagningu olíuleiðslu frá Tsjad og í gegnum Kamerún, þar sem tryggja á að olíugróði landsins fari ekki bara í vopnakaup og inn á svissneska bankareikninga stjórnarherranna.
Nigeria rejected a world court ruling handing the oil-rich Bakassi peninsula region to Cameroon. Last week a leaked report from the IMF suggested that Angola's rulers had personally pocketed as much as $1 billion a year from oil revenues. Activist groups such as Global Witness are increasingly vocal in criticism of oil firms, which pay hidden “signature bonuses” to gain access to west African oil. BP revealed that it had paid Angola's government such a bonus in the late 1990s, and drew a storm of criticism from other oil companies—especially American ones, which may be fearful of falling foul of the Foreign Corrupt Practices Act—and from Angola's rulers.
Meira um blessaða olíuna. Svo virðist sem fleiri en Enron hafi gefið upp vitlaust verð til verðkönnunarfyrirtækja (læst grein) á borð við Platts.

Skv. þessari grein hefur verið hresst upp á tollabandalag milli ríkja í sunnanverðri Afríku.

Eitt það allra merkilegasta í þessu blaði Economist hlýtur að teljast grein Jeffreys Sachs ("by invitation"), sem nefnist Weapons of mass salvation. Þar talar hann fyrir baráttu gegn fátækt og hugri í heiminum. Satt að segja bjóst við ögn skemmtilegri grein frá Sachs en ætla ekki að endursegja hana frekar, því allir geta lesið hana á netinu og er áhugasömum bent á að lesa hana.

Að lokum skal minnst á minningargreinina í þessu tölublaði en hún er til heiðurs Allen Read, mannsins sem eyddi drjúgum hluta ævi sinnar í að kanna uppruna orðsins OK.
Agust skrifaði kl. 3:04
Flokkun: Afríka , Development , Hagfræði , Meðmæli , Stjórnmál

nóvember 03, 2002

Öskudagur

Stuð að búa í Quito, höfuðborg Ekvadors, og vakna upp við "hvíta jörð".
Verst að þetta er ekki snjór, heldur einhver baneitruð aska úr eldgosi sem er í grenndinni.
Lora er einmitt föst í öskunni.

Talandi um náttúruhamfarir. Allir hafa fylgst með skelfilegum fréttir frá Ítalíu, þar sem leikskóli hrundi í smábænum San Guigliano di Puglia og allur 6 ára bekkur skólans lést. Skelfilegt alveg hreint og er ég alls ekki að gera lítið úr þessu.
Aftur á móti hef ég ekki heyrt neitt hér heima af tveimur öðrum jarðskjálftum sem hafa átt sé stað núna á síðustu dögum. Annars vegar jarðskjálfti upp á 5-7 á Richter á Súmötru og hinsvegar jarðskjálfti upp á 5,2 í Pakistan, þar sem a.m.k. átta létust.
Agust skrifaði kl. 22:54
Flokkun: Fréttir , Mannlíf á jörðu

Uppstilling

Ekki skil ég hvað það á að þýða hjá Flokknum að stilla upp á Reykjan...Suðvesturkjördæmi.
Það er víst ekki hættandi á það að halda prófkjör þegar sumar gætu stolist upp fyrir einhverjar sem eiga að vera ofar í goggunarröðinni. Sér í lagi þegar sumar eru kona sem kynni e.t.v. ekki að vera stillt og bíða eftir að röðin komi að henni með tíð og tíma.
Þetta er allavega eina skýringin sem ég hef á þessu. Reyndar hef ég ekkert fyrir mér í þessu, annað en samsæris-spádómskúlu Þóris.
Agust skrifaði kl. 22:24
Flokkun: Stjórnmál

Shalimar

Í gærkvöldi fór ég með Siggu á Shalimar, indverska veitingastaðinn í Austurstræti.
Indverskur matur er góður og Shalimar olli (mér a.m.k.) ekki vonbrigðum frekar en fyrri daginn. Fær alveg þrjár stjörnur fyrir matinn en eina stjörnu fyrir þjónustuna. Einhver hópur var á efri hæðinni og var því eldhúsið ekki að anna eftirspurn á tímabili, með þeim afleiðingum að hjónin á næsta borði við okkur biðu í rúman klukkutíma. Við fengum þó matinn okkar á skemmri tíma, sem betur fer.
Gaman að fara "út að borða" og fá menningarlega tilbreytingu í fæðunni. Mjög gott að geta farið "út að borða" fyrir tæpan tvö þúsund kall á manninn (nánar tiltekið 1.700 kr.), fá "alvöru mat" OG vera vel saddur. Geri aðrir betur! Þó lætur maður ekki fara í taugarnar á sér að þjónninn er greinilega að vinna sína 2. vakt og maður þarf að bíða eftir matnum. Í skiptin sem ég hef farið á Shalimar hefur þjónustan heldur ekki verið neitt vandamál, þarna var bara greinilega aðeins of stór hópur sem pantaði í einu til að eldhúsið réði við það.
Til að vera voða pro veitingahúsarýnir þá myndi ég segja að niðurstaðan væri:
Matur: 3 stjörnur
Þjónusta: 1 stjarna
Verð: 3 stjörnur
Agust skrifaði kl. 20:40
Flokkun: Matur og vín

Tilkynningaskyldan

Bara að sinna "tilkynningaskyldunni" og vitna í það merkverðasta í leiðaraskrifum NYT.

Maureen Dowd er á óvenjulega alvarlegum nótum í dag:
An influential Saudi asserts there are only three parties who think America should attack Saddam: the Bush administration, Ariel Sharon and Osama. "We'd be happy if you got rid of the [expletive deleted]," he said. "But we also hope Bush gets a bloody nose, because the way he is doing this is humiliating Arabs."
Saúdar buðu henni til landsins eftir að hún skrifaði heldur neikvæðan pistil um landið. Hún fékk líka senda silki abæju frá góðgerðastofnun, til að hún gæti klæðst henni þegar föstudagsbænir fara fram. Dulítið kaldhæðið: hún skrifar um að í Saúdí sé hættulega stefna í gangi og stjórnvöld bjóða henni til landsins til að sýna henni fram á í raun og veru hvernig ástandið er. Til þess að hún geti hinsvegar gengið um götur í Riyadh, þá fær abæju senda að gjöf.

Thomas Friedman bendir á að Þjóðverjar séu að gera sitt.
When Germany says it's willing to provide the peacekeeping force in Kabul, that is a huge help for us. When Germany funds the expansion of the European Union to lift from poverty ten new democracies of Eastern Europe, that is a huge help to us.
Friedman vitnar í Joschka Fischer, sem segir
"We are facing a new totalitarianism — the totalitarianism of Al Qaeda and bin Laden," which has emerged from the crisis in Islam. And the goal of these religious totalitarians "is to destroy the open society everywhere and the economy that it's based on."
Og Friedman bætir við "To win this war the open societies must each play to their strength — America's hard power and Europe's soft power."
Agust skrifaði kl. 16:06
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

Ánægjulegar fréttir

Svo virðist sem friðarferlið á Sri Lanka sé á góðri leið: Rapid progress to Sri Lanka peace
Agust skrifaði kl. 13:24
Flokkun: Fréttir , Stjórnmál

nóvember 02, 2002

Saúdar

Nicholas Kristof dvaldi í Saúdi-Arabíu og Írak um daginn og hefur skrifar nokkra pistla um það í NYT - sem ég hef svo að sjálfsögðu vísað í :-)
Í Can This Marriage Be Saved? segir hann m.a. frá því hvernig er að nota internetið í Saúdí, allt frá kerlingatímaritum til Önnu Frank bannað. Hann veltir fyrir sér sambandi ríkjanna, Saúdí og Bandaríkjanna, og leggur til að þeir síðarnefndu loki herstöðvum sínum í landinu. Flytji þær frekar til Kúveit, Khatar eða Bahrein.
Saudi Arabia was once seen as the center of the Arab world. But lower oil prices pushed per capita income down from $28,600 in current dollars in 1981 to $7,230 in 2000. The economic excitement in the region is in Dubai, and the political innovation in Bahrain. As a senior Kuwaiti official told me as I was about to leave for Riyadh, "Set your watch back 100 years."
Svo bendir hann á hvernir öll önnur trúarbrögð eru bönnuð í landinu, auk auðvitað áfengis. Engu að síður sé augunum lokað fyrir messum í erlendum sendiráðum og hann minnist á kokteilpartý sem honum var boðið í, þar sem bæði viský og vodki var á boðstolnum. Hræsnin er allsstaðar - sem Kristof telur bjartsýnismerki, því þjóðin sé frjálslyndari en landið, einsog hann orðar það.
Svo kemur Kristof inn á ágætispunkt. Eftir lætin sem urðu 1979, þegar extremistar hertóku al-Haram moskuna, hefur konungsfjölskyldan forðast að styggja harðlínumennina. Þetta þýðir að ef eitthvað er þá hefur hægt á umbótum í landinu síðan þá. Kristof bendir réttilega á að þrátt fyrir að ibn Saúd hafi verið wahabisti þá barðist hann gegn andstöðu harðlínumanna gegn t.d. bílum, útvarpi og símskeytum á sínum tíma. Ég las líka einu sinni (í Islamic Fundumentalism e. D. Hiro) söguna af því hvernig hann studdi lögmæti ljósmynda af mönnum. Einsog flestir ættu að vita, þá er mannsmyndir bannaðar í íslam, þess vegna eru t.d. allar moskur bara skreyttar með flúðri og texta. Þetta er vegna þess að bannað er að reyna að endurskapa manninn með mynd. Ibn Saúd aftur á móti sagði ljósmyndatæknina byggjast á ljósinu, sem væri sköpunarverk Allah og því ekkert að því.
Agust skrifaði kl. 17:03
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

Distinguished Gentlemen

Bara að standa undir nafni...
Bill Keller tekur saman nokkrar staðreyndir um dygðir nokkra þingmanna á Capitol Hill: America's Most Wanting. "First, to make this list it is not enough to be a twit, an extremist, a sleaze or a brute. The nominee should be a twit, extremist, sleaze or brute who makes a difference."
Agust skrifaði kl. 16:13
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

Halloween-partý Bjarna&Unnar

Það var gaman í gær. Fyrst hittumst við Sigga og Vera heima hjá Siggu.
Ég var klæddur sem Arabi (líkastur Flóa-Araba ef út í það er farið). Þegar við komum í partýið var ég með slæðuna fyrir andlitinu að augunum undanskildum. Eftir að hafa orðið fyrir árás right-wing Ameríkana var mér heilsað á arabísku af fyrstu manneskjunni sem varð á vegi mínum inni í stofa. Þetta reyndist vera Jóna Kristín sem var með mér á arabísku-námskeiðinu. Hún varð jafn hissa og ég þegar ég svarði henni svo á arabísku til baka. Lítill heimur!
Þetta var hið prýðilegasta partý, einsog við mátti búast. Allir voru í búningi en Már sló öllum við þar sem hann var gjörsamlega óþekkjanlegur í sínu Davíðs-gervi (já, Sigga, hann *var* óþekkjanlegur, ég er engin ljóska!).
Allavega, gaman að hitta skemmtilegt fólk. Ekki á hverjum degi sem maður lendir í samræðum um arabískar sagnir og Mósebækurnar í sama partýinu. Reyndar var ég algjörlega búinn um þrjúleytið, þreyttur og svangur. Þannig við, gamla Verzlópakkið, héldum heim á leið.
Takk fyrir skemmtilegt kvöld!
Agust skrifaði kl. 15:02
Flokkun: Daglegt líf

nóvember 01, 2002

Unga fólkið í dag

Mér finnst þetta assgoti fyndið. Í stað þess að senda þetta áfram, ákvað ég að birta þetta hér, þar sem allt gamla fólkið getur lesið þetta.
Við miðaldrafólkið getur hlegið með.

Á þessu herrans ári 2002 eru löglega taldir sem fullorðnir einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1984.
  • Þegar þau fæddust kunnir þú að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og hluta af margföldunartöflunni.
  • Þau muna sama og ekkert eftir Reagan tímabilinu og fréttu aldrei af því þegar reynt var að drepa hann.
  • Þau muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða og vita fátt um Gorbatsjoff.
  • Þau voru ekki kynþroska þegar Persaflóastríðið hófst.
  • Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í vatikaninu síðan þau fæddust.
  • Þau sungu aldrei "we are the world, we are the children".
  • Þau voru 8 ára þegar Sovétríkin féllu. Þau muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir austur- og vestur Þýskalandi, þó svo að þau hafi heyrt af þeim í sögutímum.
  • Þau eru of ung til þess að muna eftir því þegar Challenger geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað Pepsi-áskorunin var.
  • Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi.
  • Þau léku sér aldrei með ATARI tölvuleiki, geisladiskurinn kom á markaðinn þegar þau voru ekki orðin eins árs, þau hafa aldrei átt plötuspilara og hafa sennilega aldrei leikið sér með pac-man. Þegar talað er um BETA vídeóspólur hafa þau ekki hugmynd.
  • Star-Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og tæknibrellurnar ömurlegar.
  • Mörg þeirra hafa ekki hugmynd um að einusinni var ekkert til nema ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí.
  • Þau muna heldur ekki eftir því þegar rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir utan rás 1 og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist.
  • Þau hafa áræðanlega aldrei hlustað á útvarpssögur eða lög unga fólksins eða óskalög sjúklinga og sjómanna, og Bessi Bjarnason hefur aldrei verið yngri.
  • Fá hafa séð svart-hvítt sjónvarp og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka og lækka og skipta um stöð án þess að hafa fjarstýringu.
  • Þau fæddust 3 árum eftir að Sony hóf sölu á vasadiskóum og fyrir þeim hafa hjólaskautar alltaf verið línuskautar.
  • Þeim hefur alltaf þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir hlutir, ekkert nýtt.
  • Þau hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni okkar og Einu sinni var.
  • Þau hugsa aldrei um "Jaws" þegar þau fara í sjóinn, Michael Jackson hefur alltaf verið hvítur...og hvernig er mögulegt að John Travolta hafi einhverntíman dansað, svona feitur maður! Olavia Newton-John? Who??!!
  • Þeim finnst lítið fyndið að vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi.
  • Þau muna ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm og Herbert Guðmundsson eru. Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki margt.
  • Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran, Wham, Culture Club, Thompson twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl, Terence Trent D´arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki kunnuglega.
  • Þau muna ekki eftir BMX hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu. Þau hafa ekki hugmynd um hvað millet úlpur og Don kano voru merkileg fyrirbæri.
  • Þau vita sennilega ekki að strætó var einusinni grænn og að tíkallar og fimmtíukallar voru seðlar. Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og muna ekkert eftir því að hafa notað aura.
  • Þau vita ekki hvað Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem merkilegt fyrirbæri.
  • Þau voru smákrakkar þegar við dönsuðum á Broadway eða Villta tryllta Villa.
  • Þau hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru kreditkorta.
Munið kæru vinir að þetta folk er unga fólkið í dag.

Merki þess að þú ert farin/n að eldast:
1. Þegar þú lest þennan texta og brosir.
2. þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.
3. þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.
4. þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.
5. þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við "fullorðna fólkið" fyrir stuttu.
6. þegar "fullorðna fólkið" talar við þig eins og jafnaldra.
7. þegar þú þarft meira hálfan dag til þess að jafna þig eftir vökunótt.
8. Þegar vinir þínir eru allir giftir.
9. Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða áfengi.
10. þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú.
11. þegar þú getur farið á ströndina og eytt helium degi án þess að fara í sjóinn.
12. Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess að sýna hann.
13. Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta klukkutímum saman í símann.
14. Þegar þú veist hvað þú vilt.
15. þegar þér líst betur á rauðvínskvöld en partý.
16. þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.
17. þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.
18. þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki
19. þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.
20. þegar þú ákveður að senda þetta bréf til vina sem hafa áræðanlega gaman af því.
Agust skrifaði kl. 0:08
Flokkun: Ísland