desember 13, 2002

Lítil yfirlýsing vegna Strom Thurmond

Nú er rétt vika síðan Strom gamli Thurmond hélt upp á aldarafmæli sitt. Vestur í Bandaríkjunum eru menn að hneykslast (réttilega) á óskiljanlegum boðskap ræðu Trents Lott, senators frá Mississippi og forystumanns Repúblikana í öldungadeildinni, sem hann flutti í afmælinu. Þar sagði hann að Suðurríkjamenn væru stoltir af því að hafa stutt Thurmond í forsetakosningunum '48, þegar hann barðist hatramlega fyrir aðskilnaði kynþátta. Hann sagði að hefði Strom orðið forseti væri ekki þessi vandamál sem menn eru að glíma við í dag. Trent Lott er frá Mississippi, þar sem aðskilnaðarstefnan hefur þótt einna lífseigust. Hann viðhafði víst svipuð ummæli á kosningafundi fyrir Ronald Reagan í Mississippi árið 1980, þar sem hann sagði að hefðu menn kosið Thurmond fyrir þrjátíu árum, "þá værum við ekki í þessum vandræðum í dag". Lexington-greinin í Economist, sem ég bendi á í gær rekur áhrif Stroms á pólitíska litrófið frá '64 (í sömu ábendingu á greinina skýri ég einnig hvers vegna ég fór ekki nánar út í þá sálma). Ég mæli líka með þeim ágæta pistlahöfundi Bob Herbert, sem skrifar fínan pistil um málið í dag.

Hér heima hafa menn hinsvegar hneykslast á pistli mínum á Frelsi um gamla manninn. Ég hafði ekki haft neinar fréttir af þessari hneykslan fyrr en í kvöld, hef ekki fylgst með bloggsíðum eða vefritum nema í mýflugumynd, enda í prófum þessa dagana. Hvað um það, þegar ég las það sem Bersi skrifaði, t.d. "Það sem helst vekur athygli við grein Ágústs er hins vegar það sem hann kýs að þegja um." Þetta skyldi ég ekki og skyldi minna og minna eftir því sem ég las meira. Umræðan hjá Bersa þótti mér líka skrítin. Um hvað var maðurinn eiginlega að tala?!
Ég fór því á Frelsi.is og las pistilinn yfir. Strax í þriðja paragrafi sá ég að þetta var ekki pistillinn sem ég skrifaði, eða öllu heldur, þetta var aðeins hluti þess sem ég skrifaði! Því talaði ég strax við Jón Hákon, ritstjóra, og var honum að vonum jafn brugðið og mér.
Við nánari athugun kom í ljós að fjögur paragröf vantaði í pistilinn - og það í raun mikilvægustu paragröfin!
Nú er búið að laga þetta og ritstjórinn hefur komið leiðréttingu á framfæri á Frelsi. Mistökin hafa því verið leiðrétt og vonandi að áhugasamir lesi nú pistilinn í sinni réttu mynd :-)

Það merkilega er að ég er bæði búinn að vísa á pistilinn á þessari síðu og senda hann á Thurmond-aðdáanda landsins nr. 1 án þess þó að hafa tekið eftir þessu, enda las ég hann aldrei yfir þar. En svona er þetta, "errare humanum est" og allt það :-)

Varðandi útreikninginn á árafjölda, sem Bersi bendir á að sé rangur, þá var annars vegar lítilsháttar mistök hjá mér, að þar sem ég studdist við gamlan pistil sem ég skrifaði fyrir tæpum tveimur árum, þá var Thurmond sagður á einum stað 98 ára. Ég bað Jón Hákon að breyta þessari einu setningu, en að öðru leyti er hann núna einsog ég skrifaði hann fyrir viku.
Hinsvegar er árafjöldin hvað varðar þingmennsku réttur hjá mér, þar sem hann hefur ekki setið alveg samfellt, 1956 datt hann út úr öldungadeildinni en var endurkjörinn sama ár. Þannig spannar ferillinn í öldungadeildinni ca. 46 ½ ár, þó svo að 2002-1954=48. Þetta hefur með mánuði að gera, ég studdist við mínar heimildir þarna, en reiknaði ekki sjálfur. Þannig stendur á þessu "misræmi". Ef einhver hefur aðrar (og betri) heimildir, má hann láta mig vita.

Annars finnst mér þessi skýring mín hér útskýra það sem er óljóst. Svona mistök geta alltaf átt sér stað. Verst að þessi mistök uppgötvuðust hvorki af mér eða ritstjóranum í heila viku. Nú hefur þetta hinsvegar verið leiðrétt og ég bið alla þá sem lásu pistilinn að lesa hann aftur, nú í sinni réttu mynd.
Takk fyrir.
Agust skrifaði 13.12.02 01:53

Flokkun: Stjórnmál