desember 19, 2002

Eyjólfur hressist

Í dag fékk ég út úr fyrsta prófinu mínu. Jafnframt án efa besta einkunnin þessa önnina, alþjóðaviðskiptin komu vel út. Hafði verið svolítið nervus þar sem seinna prófið gekk alls ekki eins vel og ég vildi (því auðvitað ætlaði ég mér ekkert annað en toppeinkunn í því líka). Einhvern veginn tókst kennaranum að prófa einna mest út úr þeim hluta sem mér fannst skipta litlu sem engu máli. Virðist engu að síður hafa staðið mig vel. Auk þess var frammistaða í case-umræðum tekin til upphækkunar. Þar sem ég veit allt um rússneska dömubindamarkaðinn hefur það hækkað mig töluvert og tryggt mér næsthæstu einkunnina á háskólaferlinum :-)

HR er hættur að gefa upp ranking á einkunnasíðunni á innra-netinu. Mér finnst það lélegt. Það er mjög gott að sjá hvar maður stendur í röðinni. Háar einkunnir í þjóðhagfræði í fyrra voru t.d. fáar, þannig að maður vissi að 8,5 teldist mjög góð einkunn í kúrsinum, aðeins 12 með 8,5 eða hærra af að mig minnir 130 manna hóp. Ég fékk sömu einkunn í Stjórnun I en þar voru u.þ.b. tvöfalt fleiri sem voru með 8,5 og hærra. Þar sem ég veit að fyrra prófið í alþj.viðskiptum gekk mjög vel, við vorum t.a.m. 5 sem fengum tíu, þá er ég forvitinn hversu margir voru með mína einkunn og hvort einhver náði tíu í heildina.

Annars er ég eiginlega spenntastur að vita hvernig Tölfræðin fór. Svo var ég að heyra að HMV væri brjálaður vegna Gerð&greiningar-prófinu, þannig það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því... Það er ekki laust við að þetta fyrirkomulag að gefa upp eina og eina einkunn í einu geri það meira spennandi og maður velti sér meira upp úr þessu. Þegar maður fékk bara útprentað blað með öllum einkunnunum á einu brettu á tilteknum einkunnaafhendingardegi, þá var það sjaldnast nema ein einkunn sem maður var spenntur að sjá. Núna athugar maður aftur á móti hvort eitthvað nýtt sé komið inn með ruglulegu millibili.

Kannski er það að loksins sér maður þessar tölur skipta einhverju máli. Mér var mikið létt í vikunni þegar ég fékk loksins staðfestinguna á TOEFL-prófinu. Það er 18. janúar. Svo þarf ég að dobbla tvo góða aðila að hæla mér í hástert og setja sjálfur eitthvað niður á blað, hef engar stórar áhyggjur af þessu. Svo er bara að treysta á guð og lukkuna með viðtökur við umsókninni... allir sem vilja gefa mér góða ráð í sambandi við svona ferli mega endilega gera það.

Svo verður "fagnað" á morgun. Sé fram á að fara út á meðal fólks í fyrsta skiptið í margar margar vikur... það verður (vonandi) gaman.

Annars er ég farinn að hafa áhyggjur af því að Bretarnir hjá Amazon eru ekkert á þeim buxunum að senda mér endilega jólagjafirnar sem ég pantaði hjá þeim ANNAN DESEMBER! Ekki sáttur. Expected delivery er 23. des... hljómar ekki vel :-(

Svo hef ég enga lögun til að ljúka af þessum örfáu jólakortum sem ég þarf að senda. Ég vissi það að þetta var bara stundarbrjálæði í fyrra [1 | 2 | 3]. Annars er ég nú þegar búinn að fá eitt jólakort... það boðar ekki gott, þá fæ ég öll á síðustu stundu og hef engin tök á "samviskubitsjólakortasendum" á síðustu stundu - sem reyndar eru hálfgerð hræsni... en jólakort eru það í flestum tilfellum ef út í það er farið.

Ég verð sífellt hrifnari og hrifnari af póstmódernísku jólunum sem við Sigga og Þórir héldum í nóvember. Það voru ágætis jól... og verða þau sjálfsagt endurtekin ef ég fæ einhverju að ráða. Malt&appelsín, piparkökur, pizza, Grease, jarðaberjafreyðivín og spjall; fín jól.

Á laugardaginn ætlar mín ástkæra stjórn að hittast. Fara á jólahlaðborð saman. Það verður á efa gaman, langt síðan við höfum öll hist saman. Síðast þegar við fórum (fínt) út að borða fór reikningurinn í sex stafa tölu, enda er stefnan að láta sjóAra borga... aftur ;-)

Jæja, best að reyna að snúa sólarhringum (til baka). Góða nótt!
Agust skrifaði 19.12.02 03:31

Flokkun: Daglegt líf