desember 22, 2002
Jólahlaðborð og málarinn ég
Í gær fór ég á jólahlaðborðið hjá Hótel Borg ásamt gömlu stjórninni. Maturinn var alveg prýðilegur. Það varð til þess að ég át yfir mig af kræsingunum. Langt síðan ég hef orðið svona saddur. Faktískt svo saddur að ég hafði litla orku til stóraðgerða.Eftir að hafa hvatt fólkið rölti ég upp Laugarveginn í partý þar sem ég hitti Siggu og nokkra enskunema. Í stað þess að fylgja fólkinu út á lífið fór ég og náði mér í leigubíl.
Vaknaði svo til að drífa mig í málningarvinnu. Langt síðan ég hef tekið pensil mér í hönd en þetta gekk furðuvel. Málaði og málaði í allan dag og er þreyttur fyrir vikið.
Þarf núna að drífa jólakortin af. Fékk þessa fínu hugmynd í fyrradag og byrjaði á henni - gekk ekki. Spurning hvað maður gerir í því. Stefnir í engin "samviskubitsjólakort" þetta árið en hinsvegar stefnir í að ég þurfi að koma kortunum sjálfur til skila. Veit ekki hvort ég treysti póstþjónustunni til að koma kortunum á áfangastað samdægurs...
Annars angar húsið illa þess stundina - ég smakka ekki einu sinni á skötunni, bjakk!
Agust skrifaði 22.12.02 21:10
Flokkun: Daglegt líf