desember 27, 2002
Forgangsröðun
Merkileg forgangsröðun í þessum heimi. Pólverjar voru að gera samning upp á 3,5 milljarða dala við Lockheed-Martin, bandaríska flugvéla- og vopnaframleiðandann, um kaup á 48 F-16 orrystuflugvélum. Til samanburðar er heildarsumma greiðslna frá ESB til nýju ríkjanna tíu í sambandinu árin 11-16 milljarðar evra p.a. Í fljótu bragði fann ég ekki upplýsingarnar um hlut Pólverja í þessum greiðslum en engu að síður - það er hægt að gera ýmislegt við 3,5 milljarða dala. Það þarf líka að skattleggja ýmislegt til að rýra tekjur Pólverja um 3,5 milljarða dala. Þetta gera $90 á hvern pólskt mannsbarn. Árið 2000 var VLF á mann $6.974 (PPP:$8.000). M.ö.o. eru þetta 1,3% tekna pólsku þjóðarinnar. Á Íslandi samsvaraði þetta því 9,5 milljarða króna eyðslu í flugher (sem dugar fyrir 1½ F-16). Þá á eftir að reka þessar flugvélar með ærnum tilkostnaði. Og til hvers? Jú, þjóðir með out-of-date heri hafa ekkert erindi í NATO, þetta sagði Bush Austur-Evrópumönnunum í kokteilboðunum í Prag.Með þessum rökum er hægt að færa rök fyrir því að Ísland eigi ekki heima í NATO. Menn sem styðja þessi flugvélakaup Pólverja hljóta að jafnframt þá að vera á þeirri skoðun, eða hvað?
Heimski heimur!
Agust skrifaði 27.12.02 16:23
Flokkun: Hagfræði , Stjórnmál