desember 29, 2002

Best of Bowie

Ég er núna að hlusta á tvöfalda Best of Bowie diskinn sem ég keypti á amazon um leið og ég þykist vera að taka til.
Windows Media Player fann lagalistann fyrir diskinn mjög fljótlega en myndin af albúminu birtist ekki, þannig ég fór í "search" o.s.frv. og þegar ég sló inn "best of bowie" komu þó nokkuð mörg albúm til greina, öll útgefin í nóvember en innan sviga stóð útgáfusvæðið. Svo sem ekkert skrítið að mismunandi útgáfur séu gefnar út á mismunandi svæðum í heiminum, t.d. Evrópuútgáfa og Ameríkuútgáfa. Hinsvegar kom mér á óvart hve ólíkir diskarnir voru, þ.e.a.s. flestir voru þetta stakir diskar, aðeins tvöfaldur gefinn út í UK, USA og Danmörku. Diskurinn er gefin út í 21 útgáfu + dvd-útgáfu! Þrjár útgáfur í S-Ameríku + Mexíkó-útgáfa, tvær ólíkar Ameríku-útgáfur, tvær ólíkar Bretlands-útgáfur, sér útgáfur í Suður-Afríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Mismunandi útgáfur í Noregi/Svíþjóð og Danmörku (2x í Dk). Frönsk útgáfa, hollensk, belgísk, ítölsk, grísk og svo útgáfa fyrir þýskumælandi löndin þrjú. Svo auðvitað Japans-útgáfa.
Diskinn minn er tvöfalda breska útgáfan. Hann er bæði gjörólíkur þeim ameríska og þeim danska. Þýska útgáfan er gjörólík þeirri frönsku, sem er mun betri en sú þýska. Það skiljanlegt ef hver diskur er unninn eftir vinsældum laga Bowies á hverju svæði fyrir sig. Sannast þarna að Þjóðverjar hafa verri tónlistarsmekk en flestar þjóðir. Í fljótu bragði sé ég að þýsku útgáfuna skortir t.d. Changes, Starman og Heroes! Á amazon.de er bæði hægt að fá þýsku útgáfuna og tvöföldu, bresku útgáfuna. Á amazon.fr er hægt að kaupa frönsku útgáfuna ásamt þeirri fyrir fyrir S-Ameríku (ásamt raunar flestum evrópsku og amerísku útgáfunum).
Diskurinn sem Skífan.is selur er tvöfalda breska útgáfan.
Ef þetta er ekki perfect dæmi um að Theodore Levitt hafði ekki rétt fyrir sér um sama smekk neytenda, þá veit ég ekki hvað.
Agust skrifaði 29.12.02 18:00

Flokkun: Menning