desember 30, 2002
Námskeið
Ég var að skrá mig á námskeið hjá Magnúsi Þór Bernharðssyni núna í janúar um Írak og Íran.Ég var að heyra af þessu námskeiði fyrir þremur mínútum síðan og er þegar búinn að skrá mig. Ég hefði alveg verið til í að sækja námskeið Magnúsar í haust um Palestínu en komst ekki þar sem það stangaðist á við tvo tíma í arabísku-námskeiðinu mínu.
Ég er ekki frá því að ég sé strax orðinn spenntur fyrir þessu námskeiði. Mig hefur alltaf langað til að auka þekkingu mína á málefnum Írans en aldrei komið mér til þess. Ekki veitir síðan af að bæta við sig Íraks-fróðleik, svona í ljósi stöðunnar.
Magnús er sérfræðingur í sögu Íraks. Það eru ekki margir fræðimenn á hans sviði í heiminum og því mikill fengur að fá hann hingað. Merkilegt þykir mér að hafa ekki heyrt af þessu námskeiði fyrr.
Agust skrifaði 30.12.02 11:14
Flokkun: Daglegt líf