desember 31, 2002

Áramótapistill Vef-Þjóðviljans

Alltaf gaman að áramótapistli Vef-Þjóðviljans. Þar fá vinstrimenn iðulega miklar gusur og einstaka Sjálfstæðismenn líka. Árið er metið af hólmsteinskri hlutlægni og úr verður skemmtilegur listi. Eitt skotið fannst mér persónulega fyndið, þar sem ég hafði ekki pælt í þessu:
Tímasetning ársins: Heimasíða Heimdallar fór í frí fyrir jól og verður ekki uppfærð fyrr en með nýju ári. Hvað ætli gerist svo sem um hátíðarnar?
Andstæðingar kínverskra stjórnvaldsaðgerða á Íslandi fá sínar sneiðar frá Vef-Þjóðviljamönnum, enda ekki við öðru að búast. Þó fá þeir plús fyrir að útnefna Sólveigu Pétursdóttur Óla Þ. Guðbjartsson ársins.
Agust skrifaði 31.12.02 22:17

Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál