desember 31, 2002

Pandóra

Enginn er ég sérfræðingur í grískra goðafræði. Aftur á móti finnst mér þetta fyndið.
Ingibjörg Sólrún sagði í Kastljósinu í gær að hún ætlaði að opna Pandóru-boxið og sjá hvað setur. Vef-Þjóðviljinn kallar þetta opnun ársins. Af hverju? Í Alfræðiorðabók ársins stendur:
Pandóra: fyrsta kona jarðar í gr. goðasögnum. Guðirnir prýddu [Pandóru] öllum gáfum og kostum og sendi Seifur hana til jarðar með öskju eina eftir að Prómeþeifur hafði fært mannkyni eldinn í óleyfi Seifs. Er [Pandóra] opnaði öskjuna af forvitni spratt upp úr henni alls kyns böl og plágur en vonin varð eftir á botninum. (Alfræðiorðabókin III (P-Ö) bls.14)
Undirstrikunin er mín.
Agust skrifaði 31.12.02 22:34

Flokkun: Stjórnmál