desember 31, 2002
Pandóra
Enginn er ég sérfræðingur í grískra goðafræði. Aftur á móti finnst mér þetta fyndið.Ingibjörg Sólrún sagði í Kastljósinu í gær að hún ætlaði að opna Pandóru-boxið og sjá hvað setur. Vef-Þjóðviljinn kallar þetta opnun ársins. Af hverju? Í Alfræðiorðabók ársins stendur:
Pandóra: fyrsta kona jarðar í gr. goðasögnum. Guðirnir prýddu [Pandóru] öllum gáfum og kostum og sendi Seifur hana til jarðar með öskju eina eftir að Prómeþeifur hafði fært mannkyni eldinn í óleyfi Seifs. Er [Pandóra] opnaði öskjuna af forvitni spratt upp úr henni alls kyns böl og plágur en vonin varð eftir á botninum. (Alfræðiorðabókin III (P-Ö) bls.14)Undirstrikunin er mín.
Áramótapistill Vef-Þjóðviljans
Alltaf gaman að áramótapistli Vef-Þjóðviljans. Þar fá vinstrimenn iðulega miklar gusur og einstaka Sjálfstæðismenn líka. Árið er metið af hólmsteinskri hlutlægni og úr verður skemmtilegur listi. Eitt skotið fannst mér persónulega fyndið, þar sem ég hafði ekki pælt í þessu:Tímasetning ársins: Heimasíða Heimdallar fór í frí fyrir jól og verður ekki uppfærð fyrr en með nýju ári. Hvað ætli gerist svo sem um hátíðarnar?Andstæðingar kínverskra stjórnvaldsaðgerða á Íslandi fá sínar sneiðar frá Vef-Þjóðviljamönnum, enda ekki við öðru að búast. Þó fá þeir plús fyrir að útnefna Sólveigu Pétursdóttur Óla Þ. Guðbjartsson ársins.
desember 30, 2002
Hvað er að ske?
Merkilegt. Ekki nóg með að fréttirnar hafi sagt manni að olíuverð fari hækkandi á heimsmarkaði vegna yfirvofandi árásar á Írak (döh! - reyndar spilar verkfalli í Venúsúela inn í) heldur voru þeir núna að segja frá forsíðufrétt WP um vináttu Saddams og Rumsfelds (mynd af forsíðu). Þessir snillingar eru búnir að grafa það upp (í minninu á sér væntanlega) að einu sinni var Saddam Hussein einn af bestu kollegum Ronna Reagan & Co. Sumir muna m.a.s. að Bushapabbi var líka varaforseti þá - það var áður en Saddam varð Hitler part II og reyndi svo m.a.s. að láta drepa Bushapabba.Hvað skyldu margir muna þetta þegar árásin verður gerð?
Minni
Það má alltaf treysta á langminni Vef-Þjóðviljans þegar kemur að ummælum pólitískra andstæðinga.Annars sé ég að Vef-Þjóðviljamenn vitna í Frá kreppu til viðreisnar. Þá bók rakst ég á bókasafninu fyrir jól og greip hana. Hef ekki enn komið mér til að lesa hana, en það stendur til. Ég held að þetta sé sérlega áhugaverð lesning. Þetta er ritgerðasafn, sem er kostur, þannig maður getur lesið kafla og kafla.
Stríðskarl
Litlir strákar hjá oft hermennsku í dýrðarljóma. Eitthvað ógeðslega kúl. Hámark karlmennskunar etc.Síðan ég var svona 12 ára hef ég ekki getað hugsað mér fátt ógeðslegra - hámark firringar mannsins. Menn sem hafa atvinnuhermennsku sem ævistarf hljóta að þurfa að vera furðulega innréttaðir. Enda ef maður spyr sig einfaldlega, hvers konar maður velur að hafa það að atvinnu að eiga í átökum og þjálfa sig undir átök?
Pawel Bartoszek hittir naglann á höfuðið: Gaman að drepa?
Námskeið
Ég var að skrá mig á námskeið hjá Magnúsi Þór Bernharðssyni núna í janúar um Írak og Íran.Ég var að heyra af þessu námskeiði fyrir þremur mínútum síðan og er þegar búinn að skrá mig. Ég hefði alveg verið til í að sækja námskeið Magnúsar í haust um Palestínu en komst ekki þar sem það stangaðist á við tvo tíma í arabísku-námskeiðinu mínu.
Ég er ekki frá því að ég sé strax orðinn spenntur fyrir þessu námskeiði. Mig hefur alltaf langað til að auka þekkingu mína á málefnum Írans en aldrei komið mér til þess. Ekki veitir síðan af að bæta við sig Íraks-fróðleik, svona í ljósi stöðunnar.
Magnús er sérfræðingur í sögu Íraks. Það eru ekki margir fræðimenn á hans sviði í heiminum og því mikill fengur að fá hann hingað. Merkilegt þykir mér að hafa ekki heyrt af þessu námskeiði fyrr.
desember 29, 2002
Best of Bowie
Ég er núna að hlusta á tvöfalda Best of Bowie diskinn sem ég keypti á amazon um leið og ég þykist vera að taka til.Windows Media Player fann lagalistann fyrir diskinn mjög fljótlega en myndin af albúminu birtist ekki, þannig ég fór í "search" o.s.frv. og þegar ég sló inn "best of bowie" komu þó nokkuð mörg albúm til greina, öll útgefin í nóvember en innan sviga stóð útgáfusvæðið. Svo sem ekkert skrítið að mismunandi útgáfur séu gefnar út á mismunandi svæðum í heiminum, t.d. Evrópuútgáfa og Ameríkuútgáfa. Hinsvegar kom mér á óvart hve ólíkir diskarnir voru, þ.e.a.s. flestir voru þetta stakir diskar, aðeins tvöfaldur gefinn út í UK, USA og Danmörku. Diskurinn er gefin út í 21 útgáfu + dvd-útgáfu! Þrjár útgáfur í S-Ameríku + Mexíkó-útgáfa, tvær ólíkar Ameríku-útgáfur, tvær ólíkar Bretlands-útgáfur, sér útgáfur í Suður-Afríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Mismunandi útgáfur í Noregi/Svíþjóð og Danmörku (2x í Dk). Frönsk útgáfa, hollensk, belgísk, ítölsk, grísk og svo útgáfa fyrir þýskumælandi löndin þrjú. Svo auðvitað Japans-útgáfa.
Diskinn minn er tvöfalda breska útgáfan. Hann er bæði gjörólíkur þeim ameríska og þeim danska. Þýska útgáfan er gjörólík þeirri frönsku, sem er mun betri en sú þýska. Það skiljanlegt ef hver diskur er unninn eftir vinsældum laga Bowies á hverju svæði fyrir sig. Sannast þarna að Þjóðverjar hafa verri tónlistarsmekk en flestar þjóðir. Í fljótu bragði sé ég að þýsku útgáfuna skortir t.d. Changes, Starman og Heroes! Á amazon.de er bæði hægt að fá þýsku útgáfuna og tvöföldu, bresku útgáfuna. Á amazon.fr er hægt að kaupa frönsku útgáfuna ásamt þeirri fyrir fyrir S-Ameríku (ásamt raunar flestum evrópsku og amerísku útgáfunum).
Diskurinn sem Skífan.is selur er tvöfalda breska útgáfan.
Ef þetta er ekki perfect dæmi um að Theodore Levitt hafði ekki rétt fyrir sér um sama smekk neytenda, þá veit ég ekki hvað.
Draumfarir
Síðustu nótt dreymdi mig frekar furðulegan draum. Ég var staddur á einhverri ráðstefnu (eða einhverju slíku, allavega voru fluttir fyrirlestrar þarna) og ég hitti Bashar al-Assad, Sýrlandsforseta. Fer að ræða við hann (einsog ekkert sé sjálfsagðara) og fyrr en varir er ég farinn að "rökræða við hann" (hann talaði góða ensku, enda læknismenntaður í Bretlandi). Þrjóskur maður en greinilega ekki alslæmur (í draumnum allavega). Endaði á því að móðga hann og hann neitaði að tala frekar við mig. Merkilegt að hann virtist ótrúlega hávaxinn, örugglega tveir metrar. Samt merkilegra að hvergi var öryggislögreglan sjáanleg.Ætli það að dreyma sig annað slagið messandi yfir leiðtogum heimsins beri vott um messíasarduld?
Við nánari skoðun á fréttamyndum virðist hann vera hávaxnari en flestir en samt ekki tveir metrar.
desember 28, 2002
Sleeper
Var að mála til miðnættis. Kláraði allt saman, voðalegur dugnaður. Þegar ég kom heim, dauðþreyttur, fór ég ekki að sofa einsog skynsamur maður, heldur fór ég út í búð og keypti heila kerru af sundurlausri matvöru - sem markaðist af því ég var svangur, aldrei að fara svangur út í búð, það er dýrt.Í stað þess að fara að sofa þegar ég kom úr búðinni horfði ég á eina af mínum uppáhaldsmyndum, Slepper með Woody Allen. Þvílík snilldarmynd! Keypti hana á VHS á Amazon fyrir skömmu. Maður tekur alltaf eftir einhverju nýju í myndum Woodys Allen. Einsog núna:
She thinks I'm a pervert because I drank our waterbedÞetta er frumraun Woodys sem leikstjóra frá 1973 og skartar Diane Keaton í aðalhlutverki ásamt honum sjálfum. Tónlistin er skemmtileg, spiluð m.a. af The New Orleans Funeral Ragtime Orchestra, frekar fyndið heiti á hljómsveit. Myndin er ærslafull og ber flest höfundareinkenni Woodys Allen en myndin gerist 2173 og "framtíðarhúmorinn" er á köflum sjúklega fyndinn fyrir þær sakir að hann lýsir einhverju "fáránlegu" sem engu að síður er orðið staðreynd nú 30 árum síðar.
Allavega, mæli með myndinni, Woody Allen er (næstum) alltaf góður :-)
desember 27, 2002
Forgangsröðun
Merkileg forgangsröðun í þessum heimi. Pólverjar voru að gera samning upp á 3,5 milljarða dala við Lockheed-Martin, bandaríska flugvéla- og vopnaframleiðandann, um kaup á 48 F-16 orrystuflugvélum. Til samanburðar er heildarsumma greiðslna frá ESB til nýju ríkjanna tíu í sambandinu árin 11-16 milljarðar evra p.a. Í fljótu bragði fann ég ekki upplýsingarnar um hlut Pólverja í þessum greiðslum en engu að síður - það er hægt að gera ýmislegt við 3,5 milljarða dala. Það þarf líka að skattleggja ýmislegt til að rýra tekjur Pólverja um 3,5 milljarða dala. Þetta gera $90 á hvern pólskt mannsbarn. Árið 2000 var VLF á mann $6.974 (PPP:$8.000). M.ö.o. eru þetta 1,3% tekna pólsku þjóðarinnar. Á Íslandi samsvaraði þetta því 9,5 milljarða króna eyðslu í flugher (sem dugar fyrir 1½ F-16). Þá á eftir að reka þessar flugvélar með ærnum tilkostnaði. Og til hvers? Jú, þjóðir með out-of-date heri hafa ekkert erindi í NATO, þetta sagði Bush Austur-Evrópumönnunum í kokteilboðunum í Prag.Með þessum rökum er hægt að færa rök fyrir því að Ísland eigi ekki heima í NATO. Menn sem styðja þessi flugvélakaup Pólverja hljóta að jafnframt þá að vera á þeirri skoðun, eða hvað?
Heimski heimur!
desember 26, 2002
Dr. Perfect
Maureen Dowd skrifaði fyrir jól í NYT um Bill Frist, þann sem nú tekur við af Trent Lott sem foringi Repúblikana í öldungadeildinni.As Senate campaign chairman in the midterms, Dr. Frist resuscitated his party and won the Senate back. As the first doctor-Senator elected since 1928, he routinely resuscitates Capitol Hill tourists who go into cardiac arrest or pass out; he revived Strom Thurmond the last time he collapsed on the Senate floor.Skemmtilega orðað. Sjá: Paging Dr. Perfect
[...]
But now in 2008, St. Hillary might face Dr. Perfect — a man who not only talks about saving the health care system, but saves lives on his way to the Senate floor.
![]() |
Gaman að svona prófum en ekki mikil vísindi sem liggja að baki þeim, fáar spurningar og ekki mikið að marka þau nema í grófum dráttum, skv. þessu er ég mjög frjálslyndur en hef einhverja trú á ríkisvaldið. Sjálfur myndi ég halda að þetta ætti að vera 90-70 en ekki 95-58 einsog þetta próf gaf mér. Enginn er fullkominn.
Pat Robertson
Ég var að rekast á nokkuð magnaða síðu þar sem er að finna athyglisverð ummæli Pats Robertson og fleiri religious-hægrimanna í Bandaríkjunum. Þar kom m.a. þessi komment fram:"The feminist agenda is not about equal rights for women. It is about a socialist, anti-family political movement that encourages women to leave their husbands, kill their children, practice witchcraft, destroy capitalism, and become lesbians." -- Pat Robertson, fundraising letter, 1992Meira til. Ég held einmitt að þessi 700 Club þáttur sé reglulega á dagskrá á Omega.
(talking about apartheid South Africa) "I think 'one man, one vote,' just unrestricted democracy, would not be wise. There needs to be some kind of protection for the minority which the white people represent now, a minority, and they need and have a right to demand a protection of their rights."--Pat Robertson, "The 700 Club," 3/18/92
"Many of those people involved with Adolph Hitler were Satanists, many of them were homosexuals--the two things seem to go together."--Pat Robertson, "The 700 Club," 1/21/93
Þess má geta að tugþúsunda bandarískra kjósenda vildu þennan mann sem forseta fyrir nokkrum árum.
Tulia, Tx
Í dag skrifar Bob Herbert update um dómsmál í Tulia í Texas, þar sem stór hluti svarta minnihlutans var ákærður fyrir fíkniefnabrot vegna rannsóknar Toms nokkurs Coleman. Allur málatilbúnaðurinn var mjög dúbíus en sakborningarnir játuðu margir hverjir á sig sakirnar eftir að dómstóllinn fór að dæma fólk í áratugafangelsi fyrir litlar sakir. Sannanirnar voru nær engar aðrar en framburður Colemans, sem breyttist m.a.s. á milli einstakra mála.Bob Herbert hefur skrifar nokkrum sinnum um þetta mál en nú segir hann m.a. frá nýju starfi fylkissaksóknarans, John Cornyn, sem tekur sæti í öldungadeildinni í janúar fyrir Repúblikanaflokkinn. Málið er í rannsókn, hjá embætti Cornyns og dómsmálaráðuneytinu í Washington.
Sjá: The Latest From Tulia
desember 25, 2002
SMCCDI
Ég var að lesa yfirlýsingu Student Movement Coordination Committee for Democracy in Iran vegna "[Jerúsalem]-dagsins" í Íran á MEMRI.org (þvílík himnasending sem sú síða er). Þar er ekkert verið að skafa utan af því. Valdhafar í Tehran eru lýstir vanhæfir og sagðir ekki hugsa um hag fólksins, írönsku þjóðarinnar. Hryðjuverkahópar eru fordæmdir, áróður ríkisrekinna fjölmiðla og krafist friðarviðræðna allra aðila á jafnréttisgrundvelli.Yfirlýsinguna er hægt að nálgast hér.
desember 24, 2002
Þorláksmessa
Jæja, þetta er nú meiri dagurinn. Eftir að öll heimsins öfl virtust leggjast á eitt með að taka tíma frá mér í allt annað en það sem ég þurfti að gera endaði ég á að klára jólakortin klukkan níu í dag. Megin þema þessara kortajóla var rigning - viðeigandi m.v. veðráttuna.Í dag kom hinsvegar pósturinn á óvart og kom með það sem ég var búinn að afskrifa fyrir jólin. Annars vegar sendinguna frá amazon.co.uk (sem m.a. innihélt tvö jólapakka) og hinsvegar jólakort með mynd af litlu frændsystkinunum mínum sem fer alltaf ofan á sjónvarpið hjá mér.
Ég og ekki-lengur-svo-litla systir fórum svo okkar hefðbundna Þorláksmessurúnt. Reyndar var hann ekki svo sérlega hefðbundinn ef út í það er farið. Í fyrsta lagi slepptum við friðargöngunni (þar sem ég var upptekinn við allt sem ég átti eftir að gera) og í öðru lagi er kaffihúsið sem við höfum alltaf sest inn á eftir að hafa arkað Laugaveginn upp og niður búið að loka og ég fékk því ekki mitt árlega Jólakaffi. Hvað um það, við röltum um Laugaveginn og þrátt fyrir að það væri mun færra í bænum en undanfarin ár (enda klukkan orðin tíu þegar við komum) hitti ég óvenjumarga sem ég þekkti. Eftir að hafa keypt jólagjöf handa mömmu, látið gott af okkur leiða o.s.frv. ætluðum við að setjast inn á Kaffitár sem var þá akkúrat að loka. Við enduðum því að lokum inni á Kaffi París, enda eina kaffihúsið sem hægt var að fara með 12 ára á þegar þarna var komið við sögu að ganga tólf. Þar hitti ég Gunna Skarp. íslenskukennara í Verzló í dyragættinni og skammaði hann mig fyrir að vera í viðskiptafræði en ekki sögu. Hann er alltaf jafn hress.
Þegar við vorum búin að drekka nægju okkar af cappuccino og swiss mokka með extra miklum rjóma (menningarlegt uppeldi sko)komum við út í þessa hellirigningu. Það hafði verið örlítill úði en nógu lítill til þess að ég ákvað að skilja regnhlífina eftir í bílnum - ekki sniðugt. Við hlupum því að fá okkur Bæjarins beztu (menningarlegt uppeldi sko) og svolgruðum pulsunum í okkur áður en þær flutu úr brauðinu. Reyndum svo að hlaupa undan rigningunni alla leið lengst upp á Hverfisgötu. Vesalings kashmír-jakkinn minn orðinn 12 kíló af íslenskum sumarskúrum á miðnætti á aðfangadag. Svo keyrðum við út jólakortin mín og hlustuðum á Bowie-diskinn sem ég fékk í amazon-sendingunni (menningarlegt uppeldi sko).
Núna er ég svo að hlusta á disk með upptökum síðan 1929, 1939 og 1940 með sjálfum Rachmaninov þar sem hann spilar píanókonsertana sínar númer 2 og 3. Alveg yndislegt.
Fyndið að aðeins Eric Carmen skuli vera creditaður fyrir "All by Myself" laginu (sem m.a. Celine Dion hefur gert vinsælt) þegar það er svo greinilegt að laglínan sjálf er stolin úr píanókonsert nr. 2 (Adagio sostenuto) eftir Rachmaninov. Það heyrist greinilega að það er ekki fyndið. Hvað sem því líður þá er Celine Dion miðlungstístidúkka en Rachmaninov er töffari. Síðasti klassíski rokkarinn, Beethoven var náttúrulega sá fyrsti, svo kom Wagner þarna á milli og nokkrir minni spámenn.
ps. Mæli með pistli Bobs Herbert í dag: The Other Trent Lotts
desember 22, 2002
Jólahlaðborð og málarinn ég
Í gær fór ég á jólahlaðborðið hjá Hótel Borg ásamt gömlu stjórninni. Maturinn var alveg prýðilegur. Það varð til þess að ég át yfir mig af kræsingunum. Langt síðan ég hef orðið svona saddur. Faktískt svo saddur að ég hafði litla orku til stóraðgerða.Eftir að hafa hvatt fólkið rölti ég upp Laugarveginn í partý þar sem ég hitti Siggu og nokkra enskunema. Í stað þess að fylgja fólkinu út á lífið fór ég og náði mér í leigubíl.
Vaknaði svo til að drífa mig í málningarvinnu. Langt síðan ég hef tekið pensil mér í hönd en þetta gekk furðuvel. Málaði og málaði í allan dag og er þreyttur fyrir vikið.
Þarf núna að drífa jólakortin af. Fékk þessa fínu hugmynd í fyrradag og byrjaði á henni - gekk ekki. Spurning hvað maður gerir í því. Stefnir í engin "samviskubitsjólakort" þetta árið en hinsvegar stefnir í að ég þurfi að koma kortunum sjálfur til skila. Veit ekki hvort ég treysti póstþjónustunni til að koma kortunum á áfangastað samdægurs...
Annars angar húsið illa þess stundina - ég smakka ekki einu sinni á skötunni, bjakk!
desember 20, 2002
Sick þjóðir?
Í Pottinum hefur skapast smá umræða um hvort Rúmenar séu meira sick en aðrar þjóðir. Ég segi nú bara: Hvað með Færeyinga?!?!desember 19, 2002
Eyjólfur hressist
Í dag fékk ég út úr fyrsta prófinu mínu. Jafnframt án efa besta einkunnin þessa önnina, alþjóðaviðskiptin komu vel út. Hafði verið svolítið nervus þar sem seinna prófið gekk alls ekki eins vel og ég vildi (því auðvitað ætlaði ég mér ekkert annað en toppeinkunn í því líka). Einhvern veginn tókst kennaranum að prófa einna mest út úr þeim hluta sem mér fannst skipta litlu sem engu máli. Virðist engu að síður hafa staðið mig vel. Auk þess var frammistaða í case-umræðum tekin til upphækkunar. Þar sem ég veit allt um rússneska dömubindamarkaðinn hefur það hækkað mig töluvert og tryggt mér næsthæstu einkunnina á háskólaferlinum :-)HR er hættur að gefa upp ranking á einkunnasíðunni á innra-netinu. Mér finnst það lélegt. Það er mjög gott að sjá hvar maður stendur í röðinni. Háar einkunnir í þjóðhagfræði í fyrra voru t.d. fáar, þannig að maður vissi að 8,5 teldist mjög góð einkunn í kúrsinum, aðeins 12 með 8,5 eða hærra af að mig minnir 130 manna hóp. Ég fékk sömu einkunn í Stjórnun I en þar voru u.þ.b. tvöfalt fleiri sem voru með 8,5 og hærra. Þar sem ég veit að fyrra prófið í alþj.viðskiptum gekk mjög vel, við vorum t.a.m. 5 sem fengum tíu, þá er ég forvitinn hversu margir voru með mína einkunn og hvort einhver náði tíu í heildina.
Annars er ég eiginlega spenntastur að vita hvernig Tölfræðin fór. Svo var ég að heyra að HMV væri brjálaður vegna Gerð&greiningar-prófinu, þannig það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því... Það er ekki laust við að þetta fyrirkomulag að gefa upp eina og eina einkunn í einu geri það meira spennandi og maður velti sér meira upp úr þessu. Þegar maður fékk bara útprentað blað með öllum einkunnunum á einu brettu á tilteknum einkunnaafhendingardegi, þá var það sjaldnast nema ein einkunn sem maður var spenntur að sjá. Núna athugar maður aftur á móti hvort eitthvað nýtt sé komið inn með ruglulegu millibili.
Kannski er það að loksins sér maður þessar tölur skipta einhverju máli. Mér var mikið létt í vikunni þegar ég fékk loksins staðfestinguna á TOEFL-prófinu. Það er 18. janúar. Svo þarf ég að dobbla tvo góða aðila að hæla mér í hástert og setja sjálfur eitthvað niður á blað, hef engar stórar áhyggjur af þessu. Svo er bara að treysta á guð og lukkuna með viðtökur við umsókninni... allir sem vilja gefa mér góða ráð í sambandi við svona ferli mega endilega gera það.
Svo verður "fagnað" á morgun. Sé fram á að fara út á meðal fólks í fyrsta skiptið í margar margar vikur... það verður (vonandi) gaman.
Annars er ég farinn að hafa áhyggjur af því að Bretarnir hjá Amazon eru ekkert á þeim buxunum að senda mér endilega jólagjafirnar sem ég pantaði hjá þeim ANNAN DESEMBER! Ekki sáttur. Expected delivery er 23. des... hljómar ekki vel :-(
Svo hef ég enga lögun til að ljúka af þessum örfáu jólakortum sem ég þarf að senda. Ég vissi það að þetta var bara stundarbrjálæði í fyrra [1 | 2 | 3]. Annars er ég nú þegar búinn að fá eitt jólakort... það boðar ekki gott, þá fæ ég öll á síðustu stundu og hef engin tök á "samviskubitsjólakortasendum" á síðustu stundu - sem reyndar eru hálfgerð hræsni... en jólakort eru það í flestum tilfellum ef út í það er farið.
Ég verð sífellt hrifnari og hrifnari af póstmódernísku jólunum sem við Sigga og Þórir héldum í nóvember. Það voru ágætis jól... og verða þau sjálfsagt endurtekin ef ég fæ einhverju að ráða. Malt&appelsín, piparkökur, pizza, Grease, jarðaberjafreyðivín og spjall; fín jól.
Á laugardaginn ætlar mín ástkæra stjórn að hittast. Fara á jólahlaðborð saman. Það verður á efa gaman, langt síðan við höfum öll hist saman. Síðast þegar við fórum (fínt) út að borða fór reikningurinn í sex stafa tölu, enda er stefnan að láta sjóAra borga... aftur ;-)
Jæja, best að reyna að snúa sólarhringum (til baka). Góða nótt!
desember 18, 2002
Kokkurinn ég
Í gær bakaði ég "franskar" pönnukökur. Það gekk framar mínum vonum - nema hvað ég þarf að ná betra valdi á að hafa þær jafnari (að þykkt).Í kvöldmat eldaði ég svo grillaðar túnfisksteikur með sullumall-sal(l)ati. Með þessu var drukkið ískalt, hræódýrt asti.
Það kom mér á óvart að systur minni þátti túnfiskurinn stórgóður. Það kom mér hinsvegar ekki á óvart að hún át flestar pönnukökurnar.
desember 17, 2002
Insjallah
Eitt af því sem ég afrekaði í síðustu viku, fyrir utan að lesa/læra undir próf var að lesa bókina Insjallah eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. Bókin var á jóla-leslistanum hjá mér um síðustu jól en þá komst ég ekki yfir nema brot af listanum.Hvað um það, bókin er einskonar dagbók sem Jóhanna skrifar meðan hún dvelur fyrst í Kairó í Egyptalandi veturinn '95-'96 og svo í Damaskus í Sýrlandi veturinn '98-'99. Þetta er ekki aðeins dagbók sem segir frá daglegu lífi og upplifun í þessum stóru borgum Araba, heldur koma skoðanir Jóhönnu á málefnum Mið-Austurlanda skýrlega í ljós. Dagbókin er ekki dagleg dagbók (einsog margar bloggsíður) heldur líða oft 2-3 vikur á milli færslna en þá segir hún frá markverðustu upplifunum sínum síðustu daga.
Sérstaklega þótti mér skemmtilegar frásagnir af upplifun hennar á tilhugalífi Araba og svo hvernig upplifun það er að búa í Sýrlandi og hafa njósnara á eftir sér alla daga. Að upplifa muninn á þessum tveimur samfélögum í gegnum bókina er mjög intresant.
Bókin er stórskemmtieg fyrir þá sem hafa áhuga á þessum menningarheimi. Þeir sem hafa engan áhuga á honum munu hafa mun minna gaman að lestrinum. Mér fannst bókin bæði áhugaverð og skemmtileg. Jóhanna skrifar skemmtilegan texta og bókin er mjög auðlesin. Ég las hana á þremur kvöldum. Bók sem þeir sem hafa áhuga á þessum heimshluta verða ekki fyrir vonbrigðum með.
Hálfur
Ég var að fatta að ég er svo gott sem hálfnaður með háskólanámið mitt (þ.e.a.s. BS-inn).Mér finnst það út af fyrir sig nokkuð skondin tilhugsun...
Jólafrí
Nú er ég kominn í jólafrí.Annars er ég að hlusta núna á plötuna Í sjöunda himni með Glám og Skrám sem er algjör snilld! Sit hérna í nostalgíukasti og syng hástöfum með: "hann er tannlaus greyið, takið eftir því, tönnunum hann týndi..."
desember 16, 2002
Franskar pönnukökur
Um það leyti sem ég hef hætt að lesa/læra/slæpast á kvöldin undanfarið - að ganga þrjú - byrjar frönskukennsla á BBC Prime.Að hafa fylgst með "Le Club" nokkrum sinnum (don't ask me why) hef ég sannfærst endanlega um að franska er með öllu óskiljanlegt tungumál fyrir mig. Latnesku ættartengslin gerir mörg orðið náttúrulega international og því skilur maður þau en hljóðin og ég tala nú ekki um stafsetningin, þetta er og verður fyrir mér hulinn heimur - enda lærði ég þýsku á sínum tíma.
Hinsvegar lærði ég eitt af þessu, enga frönsku, en ég lærði að gera franskar pönnukökur. Ég á reyndar eftir að kanna hvort ég hafi náð þessu rétt en þetta virkaði mjög einfalt.
desember 14, 2002
Trent Lott
The Economist krefst þess að Repúblikanar sparki Trent Lott úr leiðtogasæti þeirra í öldungadeildinni í nýrri Lexington-grein.The New York Times krefst þess sama í leiðara í gær.
Hinsvegar skal enginn láta sér detta í hug að hann verði í alvöru rekinn eða látinn segja af sér. Þá verð ég a.m.k. mjög, mjög hissa.
desember 13, 2002
Fötin skapa manninn
Einhver bæklingur barst inn um lúguna í dag. Þar var m.a. auglýsing frá Hugo Boss, þar sem ungpólitíkusar voru dressaðir upp. Formaður SUF, Björgvin G. Sigurðsson, Siggi Kári, Margrét Sverrisdóttir og einhver virðulegur ungur maður á uppleið sem ég kom ekki fyrir mig hver var. Síðan kveikti ég á perunni, þetta var Sigfús fyrrv. UVG-formaður. Þekkti hann ekki í Boss-gallanum.Vonandi að hann hafi keypt fötin, því fötin skapa manninn og í þessu tilfelli mjög virðulegan, traustvekjandi pólitíkus.
Lítil yfirlýsing vegna Strom Thurmond
Nú er rétt vika síðan Strom gamli Thurmond hélt upp á aldarafmæli sitt. Vestur í Bandaríkjunum eru menn að hneykslast (réttilega) á óskiljanlegum boðskap ræðu Trents Lott, senators frá Mississippi og forystumanns Repúblikana í öldungadeildinni, sem hann flutti í afmælinu. Þar sagði hann að Suðurríkjamenn væru stoltir af því að hafa stutt Thurmond í forsetakosningunum '48, þegar hann barðist hatramlega fyrir aðskilnaði kynþátta. Hann sagði að hefði Strom orðið forseti væri ekki þessi vandamál sem menn eru að glíma við í dag. Trent Lott er frá Mississippi, þar sem aðskilnaðarstefnan hefur þótt einna lífseigust. Hann viðhafði víst svipuð ummæli á kosningafundi fyrir Ronald Reagan í Mississippi árið 1980, þar sem hann sagði að hefðu menn kosið Thurmond fyrir þrjátíu árum, "þá værum við ekki í þessum vandræðum í dag". Lexington-greinin í Economist, sem ég bendi á í gær rekur áhrif Stroms á pólitíska litrófið frá '64 (í sömu ábendingu á greinina skýri ég einnig hvers vegna ég fór ekki nánar út í þá sálma). Ég mæli líka með þeim ágæta pistlahöfundi Bob Herbert, sem skrifar fínan pistil um málið í dag.Hér heima hafa menn hinsvegar hneykslast á pistli mínum á Frelsi um gamla manninn. Ég hafði ekki haft neinar fréttir af þessari hneykslan fyrr en í kvöld, hef ekki fylgst með bloggsíðum eða vefritum nema í mýflugumynd, enda í prófum þessa dagana. Hvað um það, þegar ég las það sem Bersi skrifaði, t.d. "Það sem helst vekur athygli við grein Ágústs er hins vegar það sem hann kýs að þegja um." Þetta skyldi ég ekki og skyldi minna og minna eftir því sem ég las meira. Umræðan hjá Bersa þótti mér líka skrítin. Um hvað var maðurinn eiginlega að tala?!
Ég fór því á Frelsi.is og las pistilinn yfir. Strax í þriðja paragrafi sá ég að þetta var ekki pistillinn sem ég skrifaði, eða öllu heldur, þetta var aðeins hluti þess sem ég skrifaði! Því talaði ég strax við Jón Hákon, ritstjóra, og var honum að vonum jafn brugðið og mér.
Við nánari athugun kom í ljós að fjögur paragröf vantaði í pistilinn - og það í raun mikilvægustu paragröfin!
Nú er búið að laga þetta og ritstjórinn hefur komið leiðréttingu á framfæri á Frelsi. Mistökin hafa því verið leiðrétt og vonandi að áhugasamir lesi nú pistilinn í sinni réttu mynd :-)
Það merkilega er að ég er bæði búinn að vísa á pistilinn á þessari síðu og senda hann á Thurmond-aðdáanda landsins nr. 1 án þess þó að hafa tekið eftir þessu, enda las ég hann aldrei yfir þar. En svona er þetta, "errare humanum est" og allt það :-)
Varðandi útreikninginn á árafjölda, sem Bersi bendir á að sé rangur, þá var annars vegar lítilsháttar mistök hjá mér, að þar sem ég studdist við gamlan pistil sem ég skrifaði fyrir tæpum tveimur árum, þá var Thurmond sagður á einum stað 98 ára. Ég bað Jón Hákon að breyta þessari einu setningu, en að öðru leyti er hann núna einsog ég skrifaði hann fyrir viku.
Hinsvegar er árafjöldin hvað varðar þingmennsku réttur hjá mér, þar sem hann hefur ekki setið alveg samfellt, 1956 datt hann út úr öldungadeildinni en var endurkjörinn sama ár. Þannig spannar ferillinn í öldungadeildinni ca. 46 ½ ár, þó svo að 2002-1954=48. Þetta hefur með mánuði að gera, ég studdist við mínar heimildir þarna, en reiknaði ekki sjálfur. Þannig stendur á þessu "misræmi". Ef einhver hefur aðrar (og betri) heimildir, má hann láta mig vita.
Annars finnst mér þessi skýring mín hér útskýra það sem er óljóst. Svona mistök geta alltaf átt sér stað. Verst að þessi mistök uppgötvuðust hvorki af mér eða ritstjóranum í heila viku. Nú hefur þetta hinsvegar verið leiðrétt og ég bið alla þá sem lásu pistilinn að lesa hann aftur, nú í sinni réttu mynd.
Takk fyrir.
desember 12, 2002
Andlegt heilbrigði endurskoðenda
Eftir að hafa lesið pælingar um lögverndun starfsheitis tölvunarfræðinga á síðunni hans Bjarna, fór ég að kanna þetta aðeins í lagasafninu.Niðurstaðan reyndist nokkuð fyndin, a.m.k. að mínu áliti, því til að geta orðið löggildingu sem endurskoðandi, þá segir í lögum 18/1997:
2. gr. Rétt til að öðlast löggildingu sem endurskoðandi hefur sá sem fullnægir eftirtöldum skilyrðum:Annað sem greinir endurskoðendur frá flestum öðrum starfsstéttum er að þeir þurfa að standast sérstakt próf, sem er ein af ástæðum þess að stéttin er í útrýmingarhættu.
1. er lögráða, hefur forræði á búi sínu og er svo á sig kominn andlega að hann sé fær um að gegna störfum endurskoðanda,
2. hefur ekki orðið að sæta því að bú hans sé tekið til gjaldþrotaskipta, sbr. þó 2. mgr.
3. hefur óflekkað mannorð, svo sem áskilið er til kjörgengis við kosningar til Alþingis,
4. hefur lokið brottfararprófi frá viðskiptadeild Háskóla Íslands með endurskoðun sem kjörsvið,
5. hefur unnið að alhliða endurskoðunarstörfum undir stjórn endurskoðanda samtals í þrjú ár, þar af a.m.k. eitt ár að loknu brottfararprófi frá viðskiptadeild, sbr. 4. tölul.,
6. hefur staðist próf skv. 3. gr.
Reyndar er að finna svipaðar kröfur um dómtúlka, þ.e.a.s. með andlegt heilbrigði. Lög 148/2000 segja m.a.:
2. gr. Rétt til að öðlast löggildingu sem dómtúlkur eða skjalaþýðandi hefur sá sem fullnægir þessum skilyrðum:M.ö.o. mega dómtúlkar, ólíkt endurskoðendum, vera með "flekkað mannorð" og hafa orðið gjaldþrota.
a. er lögráða og svo á sig kominn andlega að hann sé fær um að annast túlkun og þýðingar,
b. hefur staðist próf skv. 3. gr.
Ekkert er sagt um andlegt heilbrigði í lögum um lögvernduð "tæknistörf" enda sjálfsagt ógerlegt að ætlast til andlegs heilbrigðis af verkfræðingum :-þ
Sálfræðingar þurfa heldur ekki að sýna fram á andlegt heilbrigði, líkt og endurskoðendur og dómtúlkar, en hinsvegar segir í lögum 40/1976:
5. gr. Ráðuneytinu er heimilt að afturkalla löggildingu, sbr. 2. gr., ef sálfræðingur er vegna sjúkdóms eða af öðrum ástæðum álitinn óhæfur til að gegna starfi sem sálfræðingur.Það var og.
Þess má geta að fyrsti flutningsmaður að lögum 41/2001 var Drífa Sigfúsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins. Hún útskrifaðist sjálf sem viðskiptafræðingur frá HR í vor. Enginn hafði unnið í málinu fyrr en Drífa var kölluð á þing og keyrði það í gegn. Það var því nemandi við HR sem keyrði breytingar á lögum um viðskiptafræðinga í gegnum þingið, svo útskrifaðir viðskiptafræðingar frá HR, Bifröst og HA fengju sjálfkrafa starfsheitið, líkt og nemendur frá Viðskiptaskori HÍ.
Saadeddin Ibrahim úr fangelsi
Saadeddin Ibrahim, félagsfræðiprófessor við AUC og baráttumaður fyrir mannréttindum í Egyptalandi var látinn laus í upphafi mánaðarins. Um það má t.d. lesa í Al Ahram Weekly og Middle East Times.Fangelsun Ibrahims var byggð á ákæru þess efnis að hann hefði skaðað ímynd Egyptalands út á við og kvað efsta dómstig um að honum skyldi nú sleppt. Réttað verður aftur í málinu í janúar.
ps. Ég var að finna áhugaverða síðu sem ég á eftir að skoða betur, womeniniran.com
Eru sænskir dómstólar þeir næstheimskustu í heimi??
Ég þarf sjálfsagt ekki að taka fram hvar þeir heimskustu eru. Hinsvegar var ég að sjá þessa frá á Mbl:Dæmdur faðir barna samkynhneigðra vinkvenna sinna
Þetta er double-standards mál af verstu gerð!
Lehnberg gaf vinkonum sínum fyrst sæði árið 1991 og skrifaði síðar undir skjal þar sem hann lýsti sig líffræðilegan föður barnanna þriggja. Hann reyndi hins vegar að fá yfirlýsingu sína dæmda ógilda eftir að Anna Bjurling, móðir barnanna, krafði hann um meðlag með þeim eftir að hún skildi við sambýliskonu sína.Af fréttinni að dæma (því nú þekkir maður að sjálfsögðu ekki allar forsendur málsins) þá virðist þarna hafa verið um algjört "gjafasæði" að ræða. "Gjafasæði" á ekki að fylgja ábyrgð - punktur og basta! Hvað ef þetta hafðu verið ófrjó hjón, karl og kona, sem hefðu svo skilið og konan fengið forræðið? Hefði þá átt að dæma báða "feðurna" til greiðslu meðlags, eða bara þann "líffræðilega"?
Lehnberg segist hafa skrifað undir yfirlýsinguna til að börnin þekktu uppruna sinn en ekki til að gangast við ábyrgð á þeim.
Ef einhver á að greiða meðlag með börnunum er það að sjálfsögðu hitt foreldrið! En auðvitað á heilbrigð skynsemi sjaldnast heima í dómsölum - hvað þá í Svíþjóð!
Strom
Ég benti aldrei á það, en ég ritaði pistil um Strom Thurmond á Frelsi á fimmtudaginn var. Tilefnið var aldarafmæli gamla skröggsins. Reyndar skrifaði ég grunninn að þessum pistli fyrir tæpur tveimur árum síðan og ákvað þá að ég skildi skrifa þennan pistil. Svo munaði minnstu að ég gleymdi því, það hefði verið fúlt.Ég hefði, svona eftir á að hyggja, getað farið betur ofan í áhrif flokksskipta hans '64 á bandarísk stjórnmál í Suðurríkjunum. Ég hinsvegar sleppti því að tveimur ástæðum, annars vegar taldi ég það ekki vera hægt öðruvísi en í frekar löngu máli og hinsvegar var ég ekki viss um að ég væri besti maðurinn til að rekja þá sögu.
The Economist birti hinsvegar Lexington-grein um gamla manninn. Hana ættu allir áhugamenn um amerísk stjórnmál að lesa. Þarna er m.a. talað um kynþáttahyggju Repúblikanaflokksins og fleira áhugavert - og áhrif Stroms á það allt saman.
Sérstaklega mæli ég með að Ármann Jakobsson lesi greinina, enda áhugamanna mestur um Strom Thurmond hér á landi.
desember 11, 2002
Unnið upp: Heill mánuður af pistlum Thomasar Friedman
Það er víst kominn sléttur mánuður síðan ég vísaði síðast í áhugaverðustu pistlana í New York Times. Það hefur fyrst og fremst verið sökum anna (og ef ég hef ekki verið upptekinn hef ég verið latur) og ég hef ekki haft tíma til að lesa neitt af viti nema einhverjar skólabækur og annað óspennandi. Hvað um það, hefst nú lesturinn.Fyrst skulum við víkja að Tómasi Friedman. Hann var í upphafi nóvembermánaðar í Berlín. Þar skrifaði hann um hvernig Þjóðverjar þjáðust ekki af anti-americanism, heldur frekar anti-bushism. Hann varar við því að Bandaríkjamenn séu að glata bjartsýninni sem hefur gert þá sterka: "Because the bin Ladenites know something Mr. Bush doesn't: that it is American optimism and soft power — not American hard power — that really threatens them."
Friedman segir frá viðtali sem hann átti við ónefndan evrópskan diplómat:
I was recently interviewing a senior European diplomat when he began complaining about the Bush team's imbalanced Mideast policy, which involves telling the truth to Palestinians — that they need a new leader — but not telling the truth to Israel — that it needs to find a secure way to get out of the settlements. He became so passionate that I couldn't resist asking: "What does Colin Powell say when you tell him this?" The diplomat then did an imitation of Mr. Powell raising his eyebrows as if to say, " `You know what I believe, and you know I can't do anything about it with the crazies in this administration.' "Eftir að hafa fagnað samþykkt SÞ um Írak um miðjan nóvember skrifar Friedman stórskemmtilegan pistil um NATO. Hann segir m.a.:
Indeed, I think of NATO now as "Autocrats Anonymous," a club where all these formerly autocratic nations of Eastern and Central Europe can share their problems as fledgling democracies and buck one another up. Sure it's more Dale Carnegie than Clausewitz, and it means that Club NATO will no longer be a serious fighting force, but don't worry, our Pentagon has known that for a while, which is why it never thought of going through NATO to fight in Afghanistan, and won't in Iraq either.Pistill sem gerir góðlátlegt grín að "hernaðarbandalaginu".
Friedman lýsir Norður-Kóreu svona, í pistli 20. nóvember:
The best way to understand the North Korea problem is to imagine a small neighborhood in which one of the neighbors, an unemployed loser, has placed dynamite around his house and told all the others that unless they bring him Chinese takeout food every day — and pay his heating bills — he will blow up his house and the neighborhood with it. The local policeman, affectionately called Uncle Sam — whose own house is safely across town but who walks the beat in this neighborhood — is advising the neighbors not to give in. "Very easy for you to say," the neighbors tell Uncle Sam. "But we have to live with this guy."Um hugmyndir Suður-Kóreubúa um norðanmenn segir hann:
After decades of living through North Korean threats, and after five recent years of "sunshine" engagement with the North, which has given the South a much clearer idea of how poor the North really is, many South Koreans seem to view North Korea more like a crazy aunt than a strategic threat. They either don't really believe its threats or assume the U.S. will deal with them in the end. This attitude may be delusional, but it is very widespread. [...] "North Korea is less dangerous to them. It makes no sense to them to have another war. The older generation still feels a war is a possibility — they feel the Communists can do things that make no sense."Hann er, líkt og allir skynsamir menn, á móti ("fyrirbyggjandi") hernaðaraðgerðum gegn Norður-Kóreu.
Friedman ber svo saman múra í pistli; Berlínar-múrinn, einskismannslandið í Kóreu og múrinn á milli Ísraela og Araba.
Friedman skrifar bréf til allra leiðtoga múslima í nafni GWB. Sumsé það sem hann vildi sjá GWB segja við leiðtoga í múslimalöndunum.
I think it has to do with the rise within your midst of a deeply intolerant strain of Islam that is not simply a reaction to Israel, but is a response to your failing states, squandered oil wealth, broken ideologies (Nasserism) and generations of autocracy and illiteracy. Armed and angry, this harsh fundamentalism now seems to totally intimidate Muslim moderates.Í pistli fyrir stuttu bendir Friedman á 5. ákvæði 1441. samþykktar Öryggisráðs SÞ þess efnis að hægt er að yfirheyra Íraka í öðru landi (en Írak). M.ö.o. geta íraskir vísindamenn verið fluttir úr landi, gefið þar skýrslu og ljóstrað upp um leyndarmál Saddams gegn því að vera verndaðir í nýju landi. Friedman bendir á þennan möguleika, um leið og hann hefur takmarkaða trú á að þessu ákvæði verði beitt.
[...]
The decent, but passive, Muslim center must go to war against this harsh fundamentalism. Yes, we have our intolerant bigots too. I just publicly distanced myself from those Christians who smear Islam with a broad brush. But our moderate majority and press regularly denounce them too. They are not dominating our society. We've had our civil war against intolerance. Now I'm urging you to have yours. Don't tell me you can't. Look at those courageous Iranian students who are now taking on the extreme fundamentalists within their own society — risking their lives to fight those who want to take Islam, and Iran, back to the Dark Ages. God bless them.
Friedman segir frá ræðu Hashem Aghajari og vitnar í hana. Aghajari er háskólakennarinn sem hefur verið mikið í fréttum undanfarið eftir að íranskir dómstólar dæmdu hann til dauða. Mikil mótmæli fylgdu í kjölfarið en hann neitaði að áfrýja dóminum, þar sem hann væri farsi. Lögmaður hans áfrýjaði svo dóminum í hans nafni og hefur þetta mál skapað mikil læti í Íran undanfarnar vikur. Ég hafði ekki séð neitt af þessari ræðu (sem hann var dæmdur fyrir) en hún gengur sannarlega langt í gagnrýni á írönsku klerkastjórnina. Hér má nálgast þýðingu MEMRI á ræðunni.
Á sunnudaginn var beindi Friedman aftur orðum sínar til Bush forseta. Pistill sem kemur inn á marga mjög góða punkta, sem væri óskandi að Bush og félagar skildu. M.a. "Finally, he would tell Karl Rove to take a leave of absence until September 2004 so that nothing the president does in this war will be perceived as being done for political gain."
Í pistli í dag viðrar Friedman hugmynd sem hann hefur minnst á áður. Hann segir NATO til einskis nýtanlegt nema í friðargæslu, það eigi líka ekki að stefna að öðru. Hann vill sjá NATO senda friðargæsluliða til Palestínu og að Ísraelar dragi allt herlið sitt út af landi Palestínumanna. PA er ekki þess megnugt að fylli tómarúmið, enda búið að sprengja aðra hverja opinberu byggingu og lögreglustöð í landinu. Tómarúm myndast þegar Ísraelsmenn hverfa frá landinu (jafnframt að "landnám" Gyðinga verður stöðvað) og það þurfi friðargæslusveitir að fylla. Ísraelsmenn muni ekki komast upp með að valta yfir friðargæsluliða NATO og þannig sé komið í veg fyrir að þeir snúi aftur með her sinn. Friðargæsluliðar munu halda uppi lögum og reglu á landi Palestínumanna á meðan PA byggir sig aftur upp. Friðarumleitanir verði teknar upp að nýju - án Arafats. Þetta er hugmynd Friedmans um leið úr vandanum og hann segir menn í Ísrael og Palestínu vera farna að líta á þetta sem möguleika.
Þar með eru pistlar Tómasar Friedman síðasta mánuð upptaldir. Tilkynningaskyldunni lokið í bili:)
Ég hló að Spaugstofunni!!
Já, það er svo sjaldgæfur atburður, að ég bara verð að tilkynna alþjóð þetta!Í gær horfði ég á þætti sem ég hafði tekið upp þegar ég var vant við látinn við lestur fyrir fjármálamarkaðaprófið (sem var svo í gærmorgun).
The Practice bauð upp á mjög skondinn þátt (eða er ég bara svona brútal að hlæja að því þegar þeir týndu Rebeccu á spítalanum og hún rankaði við sér á fæðingardeildinni?). "Sæðisgjafi" Elenorar vildi allt í einu eiga "þátt í lífi barnsins" þrátt fyrir að hafa undirritað samning sem kvað á um að hann afsalaði sér öllum réttindum og skildum til barnsins. Ég velti þessu einmitt töluvert fyrir mér í siðfræðiritgerð um daginn, þannig mér fannst þetta áhugaverð pæling - ekki verra að í þættinum sigraði réttlætið, að mínu áliti.
Silfur Egils innihélt líttáhugavert staðreyndariflildi milli fjármálastjóra Landsvirkjunar og einhvers hagfræðings. Þar kom tilvitnunin sem ég birti hér fyrir neðan - frekar fyndið. Síðan kom Karl Th. Birgisson sem hafði skemmtilegt álit á Guðna Ágústssyni og loks kom einhver heimspekingur, sem ég náði ekki hvað hét. Hann var með áhugaverðar pælingar og var víst að gefa út bók með þessum pælingum sínum. Ef ég hefði allan heimsins tíma væri það örugglega áhugaverð lesning.
Þátturinn um Hafið bláa hafið brást ekki frekar en fyrri daginn. Mér skilst að sumir furði sig á því hvers konar furðufólk horfi á þessa þætti. Því er hér með svarað, ÉG horfi á þessa þætti. Að sjálfsögðu eru hvalirnir í sérlegu uppáhaldi hjá mér :-)
Spaugstofan hafði ratað inn á þessa spólu á eftir þættinum um hafið. Ég horfði á hana og viti menn, ÉG HLÓ! Reyndar bara einu sinni en það var að vísindamanninum sem komst að því að tíundi hver hrútur væri samkynhneigður. Það fannst mér fyndið atriði. Eitt sem mér fannst reyndar merkilegt var að það var aðeins eitt drepleiðinlegt söngatriði. Venjulega fylla þau hálfan þáttinn. Reyndar fá þeir hrós fyrir versta brandara sem ég hef lengi heyrt, þessi um London-lambið. Hvað um það, reyndar var brandarinn um Norðmennina frekar fyndinn, en ég var búinn að heyra hann áður. En já, ég hló að Spaugstofunni, það gerist MJÖG sjaldan, enda horfi ég sjaldnast á þessa skaðræðisþætti.
ps. Prófið í fjármálamörkuðum gekk bærilega. Reyndar komu engar stórar ritgerðarspurningar um hrakvals- og freistnivandamál og S&L hneykslið en ég held ég hafi engu að síður skrifað manna mest í þessu prófi... svo er það bara spurningin hversu mikið vit var í því. Gaman að taka ekki-krossapróf til tilbreytingar. Þess má geta að Þórarinn sem kennir þetta fag í HR er einn allra mesti snillingur sem ég hef haft fyrir kennara.
desember 10, 2002
Tilvitnun (sunnu)dagsins
Við gefum upp réttar tölur til þeirra sem við þurfum að gefa réttar tölur til.- Stefán Pétursson, fjármálastjóri Landsvirkjunar, í Silfri Egils á sunnudaginn var.
desember 09, 2002
'Framfarasinnarnir'
Ég hef ekki lesið Fréttablaðið undanfarið og fylgst takmarkað með fréttum (a.m.k. á minn mælikvarða). Þannig hafði ég ekki heyrt um Peter N. Buhl fyrr en ég las blogg Óla Gunnarrs Håkansson áðan. Þar segir hann:Kunningi minn Peter Neerup Buhl, sem að ég hitti, á fundi í Svíþjóð, í mars síðastliðnum eftir nokkurra mánaða tölvupóstsendingar virðist eiga í smá strögli heima fyrir í Danmörku eins og er.Það fyrst sem ég hugsaði var auðvitað, hver er PNB? Þannig ég fór á Politiken.dk og fann þessa frétt: Z-politiker dømt for racisme. Þar segir bl.a.:
Peter Neerup Buhl er udover at være folketings-kandidat for Fremskridtspartiet også styrelsesmedlem i Den Danske Forening.Refsingin er "skærpet fra seks til tyve dagbøder af 500 kroner."
I en artikel på Den Danske Forenings hjemmeside fra oktober omtales blandt andet Peter Neerup Buhls forslag om koncentrationslejre og repatriering af muslimer som »videnskabelig oplysning om islams farlighed og uforenelighed med vort samfundsgrundlag« og »saglige debatoplæg om, hvordan vi undgår denne trussel«.
Það sem mér finnst skondið er að varaform. Flokks framfarasinna er ekkert að útskýra nánar hvaða ráðstefna þetta var. Gaman væri að heyra það. Óli Gunnarr lætur nægja að segja frá menntun Péturs Neerups og að hann sé "skarpur, árvökull, yfirvegaður og í raun hið mesta sómamenni".
Uppfært: Óli Gunnarr sendi mér skýringu (sem ég mátti birta):
Við það tækifæri sem ég hitti hann var það ekki á ráðstefnu, ég sagði fund og fundur var það. Það viðurkennist alveg að þar var það Dansk Folkeparti og Framfaraflokkurinn í Noregi sem þar komu að. Meðal annars var ég þar í boði Peter Neerup Buhl, sem var mjög almennilegur í allri sinni framgöngu við allt og alla, svo að ég sæi til í það minnsta.Þar með er því komið á framfæri.
desember 05, 2002
Barbabrellur
Einar Oddur er nú að tala um stærstu barbabrellu lýðveldissögunnar í umræðu um fjárlögin. Reyndar er hann ekkert að tala um fjárlögin beint, heldur Hafrannsóknarstofnun.Einar Oddur er einn allra skemmtilegasti ræðumaður sem situr nú á þingi. Hann hefur alveg yndislega framsögu. Eina góða við prófkjörið í NV-kjördæmi var að hann hélst inni. Það hefði verið mikill sjónarsviptur að horfa á eftir honum af þingi.
Annars voru þeir Sverrir Hermannsson að hnýta í hvorn annan áðan. Þar voru tveir snillingar í ræðustóli á ferð, datt inn í þetta fyrir tilviljun og sá bara seinni lotuna en þetta var skemmtilega kurteisar móðganir sem gengu á milli þeirra, enda báðir mjög skemmtilegir menn.
ps. Þetta er einhver sú fyndnasta (real life) saga sem ég hef heyrt :-) Hvernig er þetta hægt!?!
Walk Like A Statistician
Jæja, þá er ég búinn að fara yfir alla tölfræðina. Nú kemur í ljós hvort þetta gangi. Merkilegt, þetta er á köflum alveg þrælskemmtilegt fag og þegar ég reikna dæmin hérna heima gengur þetta svo vel. Svo kem ég í prófin í þessu og þá kúka ég alveg á mig! Ég virðist alltaf gera eitthvað smá vitlaust... slysast til að nota téið á einu stað í stað zetunar og fæ þá ranga útkomu - sem er ekki gott í krossum. Svo hef ég líka verið að klúðra stóru dæmunum, þ.e.a.s. þegar ég hef haft tíma til að reikna þau almennilega. Fokkaði síðast upp gjörsamlega 15 stiga dæmi (gleymdi einum lið í helv. formúlunni og var ekki með hana á formúlublaði), 1,5 fokinn á einu bretti. *andvarp* En nú skal Eyjólfur hressast og ég líka! Vandamálið hefur verið leti og æfingarleysi. Ég hef aldrei lært neitt af þessu áður og það er ekkert sniðugt að opna bókina tveimur dögum fyrir próf - og svo næst tveimur dögum fyrir næsta próf. Nú tel ég mig þá hafa verið duglegan undanfarið, það hlýtur að skila sér... vonandi.Ég er bara nokkuð bjartsýnn. Reyndar var tekin ákvörðun um það á síðustu stundu að við mættum hafa bókina með í prófið, sem leggst mjög illa í mig. Ég tók einu sinni svoleiðis próf hjá Svövu í 6. bekk í Verzló og fékk 1,0! Jón Bjarni fékk 1,5 - meðaleinkunnin var um fimm, í bekk þar sem meðaleinkunnin var venjulega "bara" 8-8,5 í stærðfræði (þar sem við Jón Bjarni héldum henni niðri).
Æi, það var þá. Svo rúllaði ég stærðfræðinni upp í fyrra - svoleiðis - stóð mig m.a.s. bærilega í níðþungu lokaprófi. Vonandi að það verði ekki aftur svona níðþungt próf - maður sér það á hversu margar gráta undan því á eftir. Í fyrra miðannarprófinu voru það tvær. Vonandi þarf engin að gráta í þetta skiptið, ekki einu sinni í hljóði.
En nú er ég að hlusta á My Way með Frank Sinatra, það er góðs viti. Byrjaði daginn á Eye of the Tiger. Já, ég er skrítinn.
Allavega, ég er farinn að sofa.
Statistics show that of those who contract the habit of eating, very few survive. -George Bernard Shaw
desember 04, 2002
desember 03, 2002
Obbobobb
„Obbobobb“, Guðni kann skýringuna á þessu: Matvöruverðið er kaupmönnunum að kenna og bændurnir eiga framtíðina fyrir sér, enda gefur náttúra landsins og menningarlegt uppeldi búfénaðarins af sér bestu afurðir í heimi. Verst að það eru ekki allir búnir að fatta það ennþá ...„en þetta kemurr!“Pistill dagsins á Frelsi.is - mæli með honum ;-)
Creative Accounting?
Tekjuáætlun fjárlaga 2003 hækkar um 7½ milljarð (mbl)Ætli þetta sé það sem á ensku kallast "creative accounting"?
desember 01, 2002
1. des.
Ég komst að því að fullveldisdagurinn er í dag þegar ég sá frétt um hátíðardagskrá á vegum stúdenta við Háskóla Íslands. Ég veit ekki hvort ég á að skammast mín fyrir að hafa ekki kveikt á þessu.Af myndunum að dæma voru u.þ.b. 20 manns utan sérlegra boðsgesta sem sátu hátíðardagskrá í hátíðarsal Háskólans (hvað eru mörg há í því?) enda svosem ekki skrítið.
Dagurinn er mikilvægur í sögu ríkisins en meðal þjóðarinnar hefur hann orðið sáralitla skírskotun nema meðal eldra fólks.

