janúar 02, 2003
Hetja ársins
Þó ég hafi lofað sjálfum mér að gera ekki "lista ársins", þá finnst mér ekki rétt, fyrst ég var að minnast á nokkra titla á annað borð að sleppa "hetju ársins" sem er auðvitað Stefán Karl.Honum hefur tekist að beina athygli að einelti í þjóðfélaginu, ekki bara meðal krakka, heldur líka fullorðinna, á vinnustöðum o.fl.
Ég veit líka að hann er að vinna óeigingjarnt starf utan sviðsljóssins (þegar glansstjörnurnar og Séð&Heyrt-ljósmyndararnir eru farnir) og lætir þannig gott af sér leiða.
Ég sá í einhverju bæjarblaðinu að Stefán Karl var valinn "Hafnfirðingur ársins". Stundum get ég ekki annað en hlegið að Hafnfirðingum, þeir eru svo egócentrískir. Í sama blaði var viðtal við Davíð Þór, leikara og fyrrv. ritstjóra (en umfram allt ofursöngvara), þar sem hann var látinn afsaka þann viðurstyggðarglæp að búa í Reykjavík. Kom þá í ljós að Davíð Þór er eftir allt alls enginn Hafnfirðingur (þrátt fyrir Káta pilta og Fúsa froskagleypi) heldur KRingsræfill úr vesturbænum (þ.e.a.s. í Reykjavík, ekki Vesturbænum í Hfj).
Ekki það að Davíð Þór sagði Hafnfirðingsstimpilinn vera alls ekki slæman fyrir hann sem skemmtikraft en benti á leigubílakostnað búsetu sinni til stuðnings.
Agust skrifaði 02.01.03 15:29
Flokkun: Ísland