janúar 02, 2003
Bad English can mean bad business
Talandi um ensku. Núna ætla malasísk stjórnvöld að breyta menntakerfi landsins á þann hátt að stærðfræði og raunvísindi verði kennd á ensku frá barnaskólaaldri.Þetta hefur vakið upp deilur milli mismunandi þjóðarbrota, t.d. Kínverja sem eru 1/4 þjóðarinnar (Malæjar eru aðeins 3/5 þjóðarinnar) og andstæðingar breytinganna segja að þetta setji börn í dreifbýli, þar sem foreldrarnir tala enga ensku, sjálfkrafa aftarlega á merina.
Forsætisráðherrann, Dr Mahathir Mohamad, segir hinsvegar á móti að þetta sé nauðsynlegt eigi Malasía að vera á meðal vel menntaðra þjóða og geta boðið samkeppnishæft starfsfólk á alþjóðavettvangi.
Agust skrifaði 02.01.03 16:07
Flokkun: Development , Fréttir , Hnattvæðing/Globalisation , Mannlíf á jörðu