janúar 05, 2003
Puma Føroyar
Stefán skóþjófur Pálsson segir frá spariskónum sínum.Ég horfði á Áramóta-Silfrið aftur í dag (að hlusta af því allavega), þar sem ég náði ekki að halda mér vakandi yfir öllu saman á gamlársdag (það er svona þegar menn fara á fætur fyrir allar aldir klukkan 10 og æða um allan bæ í útréttingum). Stebbi var einn af álitsgjöfum Egils og lét sig m.a. dreyma um almennilega ríkisstjórn sem gerði eitthvað í því sem mest er aðkallandi fyrir þjóðina: að reka herinn úr landi (!) - en það var ekki það sem var merkilegt, enda heldur Stefán úti sérstakri heimasíðu fyrir SHA, heldur fannst mér dulítið fyndið að hann skartaði peysu með stóru Puma-merki framan á.
Nú á ég engin Puma-föt en svo segir mér hugur að peysan sé Made in Indonesia eða jafnvel Made in Vietnam. Mér finnst nokkuð fyndið að anti-global-Stebbi skuli fyrir það fyrsta ganga í svona sweatshop-peysu og svo skarta henni m.a.s. í sjónvarpi. Hingað til hefur hann mætt í sínum stuttermabolum, yfirleitt með einhverri vel valinni áletrun.
Það sem var hinsvegar enn meira ógnvekjandi var að þegar ég lá fyrir framan sjónvarpið á gamlársdag og hlustaði (horfði ekki) á Silfrið heyrðist mér fyrst að Flosi Eiríksson væri að óska sér almennilegrar ríkisstjórnar. Ég hafði aldrei tekið eftir því áður hve líkt þeir fyrrum Allþýðubanndalagsmenn (berist fram með Ólafs Ragnars-áherslum) hljóma.
Þess má geta, í þessu samhengi, að peysan sem ég er í núna var framleidd í Sameinuðu arabísku furstadæmunum - líklegast af pakistönskum eða indónesískum verkamönnum.
Agust skrifaði 05.01.03 22:46
Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation