janúar 06, 2003

Sjónvarpið hefur svikið mig!

Núna er ég fúll. Ég var búinn að bíða eftir að æsispennandi Profiler-þáttur byrjaði í Nátthrafna-prógrammi Skjás(e)ins en nei nei - lokaþátturinn var í gær! Hvað gerist svo?? Tókst að freima Rachel fyrir morðið á Joel Marks og hvað varð um gaurinn sem drap hann?? Hver verða afdrif deildarinnar?? Hvað gerist?? Já - hvað gerist???
Mjög spennandi og helvítis kapítalistarnir hjá NBC ákváðu að framleiða ekkert fimmtu seríuna! Las á einhverri fan-síðu að: "Mistreated by NBC, low ratings and fan betrayal got Profiler canceled". Ég er ekki sáttur. Í leit minni að endinum (á internetið - sem tókst skiljanlega ekki þar sem endirinn var aldrei framleiddur!!) sá ég að flestir virtust vera sammála því að fjórða seasonið hafði verið mjög gott (1. seasonið er sagt gott líka) en ég man bara hvað 2. eða 3. serían var ömurlega leiðinleg - svona X-Files-wannbe. Og þar sem ég horfði aldrei á X-Files (*æl*) þá höfðuðu þættirnir ekki til mín en ég horfði á þátt fyrir tilviljun (af Profiler) í endursýningu núna um jólin og horfði á hverju kvöldi eftir það - mjög skemmtileg afþreying. Melrose Place-gellan Jamie Luner góð sem "prófælerinn" Rachel Burke og gamla Bond-illmennið Robert Davi fínn sem Bailey Malone.
Þættirnir eru uppfullir af (sjálfsagt misréttum) kenningum um hugarheim morðingja og eru nokkuð sannfærandi í því hvernig morðingjarnir eru "prófæleraðir". Engir lögfræðingar sem fá frávísun á grundvelli stafsetningarvillu og lítið um action. Frekar hægir þættir en spennandi, einsog ég segi, mjög fín afþreying. En bévítans skrópagemlingar hjá NBC framleiddu ekkert endinn sem ég beið (bíð) spenntur eftir :-(
Agust skrifaði 06.01.03 01:44

Flokkun: Menning