janúar 08, 2003
Ferðin til tunglsins
Í gærkvöldi horfði ég á frönsku "heimildamyndina" Ferðin til tunglsins á vídjói. Ég verð að viðurkenna að ég hef sjaldan verið jafn ráðvilltur eftir að horfa á sjónvarpsþátt og í gær. Hvað hafði ég eiginlega verið að horfa á??Það sem mér fannst óþægilegast var að sumt var einum of sannfærandi. Sumt var alveg gjörsamlega ósannfærandi, t.d. þetta með að kvikmyndaiðnaðurinn hafi fengið "einn af sínum" sem forseta (Reagan). Þó það sé ekki tilviljun hvaða fylki fengu verkefni í geimferðaáætluninni (Kalifornía, Texas og Flórída), þá var það varla vegna viðskipta Bush-feðga. Þannig vissi maður að ýmislegt var byggt á frekar langsóttum samsæriskenningum en... plottið með að taka upp "back-up upptöku" af tunglendingunni virkaði mjög sannfærandi á mig. Kannski ekki að Kissinger hafi verið andandi ofan í hálsmálið á Kubrick allan tímann en svo framarlega sem maður getur ekki hrakið ýmislegt, einsog þetta með myndavélina í Barry Lindon, 2001... ýmislegt gæti vel staðist í þessari sögu.
Þegar sagt var að fyrrv. yfirmaður CIA hafi fengið hjartaáfall nóttina áður en hann ætlaði að veita frönskum sjónvarpsmönnum viðtal vegna Appóló-áætlunarinnar og aðildar CIA að henni... sýnd var frétt úr IHT... ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að taka því.
Allavega, ég var ansi ringlaður, þessi "heimildarmynd" ruglaði ansi mikið í kollinum á mér... ekki það að ég hef lengi vel verið mjög móttækilegur fyrir þeirri kenningu að sjónvarpsefnið af tunglendingunni hafi ekki endilega allt verið tekið upp á (rétta) staðnum.
Eðvarð Jón Bjarnason skrifar pistil um þáttinn á Deiglunni í gær.
Agust skrifaði 08.01.03 09:53
Flokkun: Menning