janúar 09, 2003

Hlemmur

Á laugardaginn var fór ég á heimildarmyndina Hlemm með Þóri og Jóni Svan.
Við fórum í 10-bíó og þó það væri laugardagskvöld þá voru greinilega nokkrir tilbúnir til að fara á heimildarmynd um fólkið á Hlemmi.
Myndin er í stuttu máli yndisleg. Einhverjum kann að finnast það skrítinn dómur um mynd um þau málefni sem hún fjallar um. Mér finnst hún hinsvegar yndisleg, því hún segir sögu og fjallar um fólk án þess að reyni að fegra eða ritskoða nokkuð eða afsaka. Hún segir bara frá því sem fyrir augu ber og er ekki með neinn þul heldur eru það þeir sem kom við sögu sem segja frá.
Ég gæti útskýrt þetta betur með dæmum en ég held að myndarinnar sé best notið þegar farið er á hana án þess að vita nokkuð hvað mun fyrir augu bera - einsog var í mínu tilfelli.
Stjörnur: þrjár
Í miðasölunni bað hver á fætur öðrum um "einn miða á Hlemm" duttu mér í hug svona 12 fimmaurabrandarar en náði að bæla aulahúmorinn niðri. Þegar Þórir Strætóstrumpur bað hinsvegar um "uh, einn miða á... uh, Hlemm" gat ég ekki setið lengur á mér og bætti við "Þórir, ertu ekki með Græna kortið?"... já, ég er með aulalegan húmor.
Agust skrifaði 09.01.03 14:34

Flokkun: Menning , Ísland