janúar 10, 2003
Gettu betur
Gettu betur hefst í kvöld. Þá keppa m.a. Verzló og Borgarholt. Það verður spennandi keppni.Aldrei þessu vant (líklegast í fyrsta skipti síðan '98) verð ég ekki meðal áhorfenda, upptekinn við annað (nema eitthvað breytist). Þetta er líka í fyrsta skipti síðan '98 sem ég hef ekki einu sinni hitt allt liðið!
Æji, ég veit það ekki, segir það ekki sitt um þróunina að spurningarnar þetta árið koma úr spurningabanka MR? Ef Gettu betur væri á Lengjunni væri stuðullinn 0,9 fyrir það lið.
Ef þetta á að verða skemmtileg keppni (fyrir utan MR-viðureignirnar sem verða ekki skemmtilegar án "tæknilegra mistaka" - fyrir utan MR-Borgarholt 2001) þá er vonandi að nýr dómari spyrji um eitthvað skemmtilegt. M.v. bakgrunninn ætti hann að vera með þessar "klassísku" Gettu betur spurningar sem er ágætt. Sjálfum fannst mér Ármann fínn (en hann sló vissulega feilnótur) og Illugi var oft með skemmtilegar keppnir (utan ónefndan víðfrægan skandal í 3ju umferð þegar m.a. var spurt um kanadískan landbúnað). Ólína var hundleiðinleg og spurningar síðhærða dómarans höfðuðu ekki til mín. Gunnsteinn var sá slakasti að flestra mati held ég en lengra aftur þori ég ekki að muna. Logi Bergmann er áfram skilst mér (er það ekki annars?) og er það ágætt. Mér finnst hann fínn, svona kammó náungi. Ekki það að Davíð Þór var mjög skemmtilegur sem spyrill en Stefán Jón Hafstein var jafn leiðinlegur með kattarkrúsina sína og hann verður. Ómar var þarna fyrir einhvern misskilning en ekki man ég lengra aftur. Tímaverðir eru víst nauðsynlegir en ég get bara nefnt tvo með nafni, svo eftirminnilegir hafa þeir nú verið.
Stigavörðurinn þetta árið er ein af þessum útvarpsröddum sem manni finnst eiga að líta allt öðruvísi út. Mér fannst þetta alltaf vera kona um fimmtugt en svo er alls ekki.
En nóg af þessu nöldri.
Agust skrifaði 10.01.03 14:53
Flokkun: Daglegt líf , Ísland