janúar 12, 2003
BeeGees
BBC greinir frá því að Maurice Gibb sé látinn, 53 ára gamall. Hann var, einsog allir vita, hluti af BeeGees ásamt tvíburabróður sínum Robin og Barry stóra bróður.Hann hafði sigrast á alkahólisma fyrir nokkrum árum eftir að hafa lifað sukksömu líferni. Andy, yngsti bróðirinn sem gerði það gott með tónlist sinni (en var aldrei hluti af BeeGees), lést fyrir aldur fram 1988 af hjartaáfalli (eftir að hafa dópað og drukkið ótæpilega í mörg ár). Maurice lést nú úr því sama, þ.e.a.s. hann fór í aðgerð á meltingarvegi en fékk þá hjartaáfall og lést eftir stutta legu.
BeeGees eiga sér langa sögu, enda byrjuðu þeir bræður kornungir í bransanum. Þeir áttu vinsælasta lagið í Ástralíu (þangað sem fjölskyldan flutti '58) 1966, þá tæplega tvítugir. 1968 höfðu þeir bæði náð inn á vinsældalista Bretlands og Bandaríkjanna. Tónlistarferillinn spannaði því fjóra áratugi.
Mér er sama hvað hver segir, BeeGees eru ein besta hljómsveit tónlistarsögunnar. Aðeins Abba myndi vera sambærileg frá svipuðu tímabili. Ég hef, einsog svo margir aðrir, tekið út algjört ofnæmi fyrir þessari tónlist en séð að mér. Því hvort sem manni líkar það betur eða verr, þá er það á valdi sárafárra að búa til tónlist sem þeirra og hvað þá í slíku magni sem þeir gerðu (þó auðvitað hafi þeir gert líka algjört drasl). Það sem er líka merkilegt við BeeGees er að þeir sömdu sína eigin tónlist (rétt einsog Abba, Bítlarnir o.fl.), og sömdu m.a.s. fyrir aðra tónlistarmenn með góðum árangri, ólíkt því sem að flestar stórstjörnur dagsins í dag gera.
Á myndinni sjást BeeGees-bræður, (f.h.) Maurice, Barry og Robin fagna ásamt Andy, bróður þeirra, afmæli þess síðastnefnda, þegar þeir voru líklegast frægustu bræður tónlistarheimsins.
Agust skrifaði 12.01.03 14:50
Flokkun: Fréttir , Menning