janúar 14, 2003

Albínóar

Maður vissi að albínóar hefðu það slæmt í Afríku en eitt fannst mér stinga í augun í þessari frétt, Albinos hit by Zimbabwe's race divide: "These are the more than 15,000 blacks with albinism [in Zimbabwe]".
Ég vissi ekki að þetta væri svona algengt. Þjóðin telur ekki nema 11,4 milljónir manna og þýðir það, að m.v. sama hlutfall séu albínóar á Íslandi um 370! Nú þekki ég ekki hvað veldur þessu nákvæmlega og hvort albínismi sé algengari í Zimbabve eða óalgengari. Mörg börn sem fæðast með albínisma eru borin út í Afríku o.fl. sem spilar inn í. En gefum okkur að þessi tala (370) sé ekki fjarri lagi, þá verð ég að segja að það finnst mér rosalega há tala - m.v. að ég hef aldrei (mér vitandi) vitað um/hitt/séð albínóa hér á landi.
Auðvitað spilar mikið inn í að albínóar eru jú hvítir og hvar finnur maður hvítara fólk en norður við heimskautsbaug? Við með keltneska blóðið náum því líklegast að vera næst því að vera með líka húð og albínóar (þó hárið sé fjarri því að vera hvítt í okkar tilfellum). Albínói sker sig því aldeilis meira úr fjöldanum í löndum svartra en bleikra.
Núna rifjast reyndar upp fyrir mér að ég sá einu sinni strák á förnum vegi sem var alveg hvíthærður og svona fölbleikur í andliti. Má vera að hann hafi verið albínói - hver veit.
Annars er eftirminnilegasti albínóinn þessi sem elti bókasafnsfræðinginn Goldie Hawn á röndum í Foul Play.
Og talandi um föla fólkið. Alltaf jafn skondin staðreynd að Ítalir voru sameinaðir af hinum rauðhærða Garibaldi. Og Vivaldi var ekki kallaður "rauðhærði klerkurinn" fyrir ekki neitt.
Agust skrifaði 14.01.03 14:47

Flokkun: Afríka , Mannlíf á jörðu