janúar 20, 2003

Merkilega land

Einhver íslenskur jólasveinn vann við það í ítölsku kvikmyndaveri að vera áhættuleikari í kvikmyndinni Gangs of New York. Hann var einn af tvöhundruð og fimmtíu!

Í gærkvöldi sýndi Stöð 2 Golden Globe verðlaunahátíðina, sem er einu leveli fyrir ofan Edduna, í beinni útsendingu. Í kvöld er hún endursýnd á besta tíma. Hver horfir eiginlega á þetta!

Og að lokum, og líklegast það sem er mest hneykslanlegt, HÍ kennir ekki einn einasta kúrs í þróunarhagfræði (economic development). Það breytir því ekki að HÍ er vitanlega eini háskólinn á Íslandi sem verðskuldar titilinn rannsóknarháskóli/University hér á landi (lesið bara miðopnuna í Mogganum í dag) - a.m.k. ef maður spyr spekingana vestur við Suðurgötu.

Mikið fer þessi þjóð í taugarnar á mér.

Og nú ætla fjórir fræknir spekingar að analæsera hvað Íslendingar eru frábærir í handbolta í Kastljósinu. Ég sá einu sinni þátt um íþróttir um víða veröld. Þar var m.a. alltaf tekin fyrir ein "furðuíþrótt" í hverjum þætti, t.d. tennis sem spilaður er í Asíu án tennisspaða (en fæturnir notaðir til að sparka boltanum yfir netið). Nema hvað, í einum þættinum var tekin fyrir furðuíþróttin "handball" og Rússar sagðir helstu spilarar hennar, auk Þjóðverja. Þetta er eina íþróttin sem Íslendingar geta spilað (yfirleitt) skammlaust. Já, og stangastökk kvenna, þ.e.a.s. þangað til aðrar þjóðir fóru að æfa það sport. Þá hættu Íslendingar að sjást á verðlaunapalli fyrir stikkdjömpið.

*dæs*
Agust skrifaði 20.01.03 19:40

Flokkun: Ísland