janúar 20, 2003

Anti-Íslendingur

Við Þórir vorum að diskútera það sem ég skrifa hér fyrr í kvöld. Hann lætur líka skoðun sína í ljós á síðunni sinni. Ég vil benda Þóri á eitt atriði í viðbót (án þess að ég nenni að eyða meira púðri í þetta umræðuefni), við vorum komnir í rökræður um sjálfstæðismál Færeyinga og Grænlendinga áður en ég kom þessu atriði að: Þórir virðist kjósa að einblína á orðið Íslendingur í fullyrðingunni (hans orð, ekki mín) "Íslendingar eru ömurlegir". Pointið er frekar það að til þess að fá þessa niðurstöðu þarf að gefa sér: x er ömurlegt -> Íslendingar eru x -> Íslendingar eru ömurlegir (frekar mikil einföldun). Í stað þess að einblína á síðasta atriðið ætti Þórir að skoða það fyrsta. Þá sér hann kannski að við erum ekkert svo ósammála... jú reyndar :-)
Ef menntamálaráðherra Frakklands hefði sagt það sem Tómas Ingi Olrich sagði, finndist mér það jafn hallærislegt.
Ef ég sæi fréttir í Noregi af norskum áhættuleikara í nýjustu Scorsese-myndinni, þá væri það jafn hallærislegt í mínum augum.
o.s.frv.
Reynum að halda okkur á jörðinni :-)
Agust skrifaði 20.01.03 22:19

Flokkun: Ísland