janúar 26, 2003

Einstaklingsframtak dagsins

Þetta finnst mér alveg magnað! Bjarni&Unnur endurheimtu debet/kreditkortin hennar og það sem var stolið af henni sólarhring fyrr. Þjófurinn var svo vitlaus að panta sér pizzu með kreditkortinu hennar og var því hægt að hafa upp á heimilisfangi þjófsins.
Þetta hlýtur að vera einstaklingsframtak dagsins :-)

Annars finnast mér sögur af heimskum þjófum stórskemmtilegar oft á tíðum. Keypti mér um daginn heila bók um heimsku þjófa (og reyndar í sumu tilfellum venjulegs fólks) sem hefur leitt það til dauða (eða gert það óhæft til að fjölga sér).
Darwin verðlaunin verðlauna bara þá sem drepa sig eða stórslasa. Þjófar þurfa þess ekki endilega til að sýna óbærilega heimsku. Mér finnst t.d. sagan af þjófunum sem brutust inn í ljósmyndavöruverslunina um hánótt ógrímuklæddir mjög fyndin. Þeir tóku myndir af sér á Polaroid-vél við innbrotið en föttuðu ekki að það tekur myndina smá tíma að framkallast. Skyldu því myndina og vélina eftir þegar þeir fóru með góssið með sér. Lögreglan var því ekki í vanda með að hafa upp á þeim með þessa fínu tækifærismynd í höndunum.
Agust skrifaði 26.01.03 17:47

Flokkun: Fréttir , Internetið