janúar 27, 2003

Mugabe og Harry Potter

Í dag eru 23 ár liðin síðan Róbert Mugabe snéri aftur til Rhódesíu, sem síðar varð Zimbabve. Hann náði völdum í landinu í mars 1980 og hefur ráðið þar síðan. Á þessum tíma sagði hann m.a.: "We will not seize land from anyone who has a use for it. Farmers who are able to be productive and prove useful to society will find us co-operative."
Áður fyrr var honum lýst sem marxískum terrorista og var í útlegð í 10 ár. Í dag verður honum vart lýst öðruvísi en sem einum versta einræðisherra álfunnar. Marxisti og ekki marxisti, honum hefur allavega tekist að skapa alræði öreiganna, því honum hefur tekist að gera alla landsmenn að öreigum (nema örfáa flokkshesta) og sveitir stuðningsmanna hans hafa algjört alræði, ræna, drepa og nauðga þeim sem taldir eru óvinveittir forsetanum.

Dýr væri Harry allur - Fifth Potter book 'too pricey' for US libraries
Agust skrifaði 27.01.03 09:37

Flokkun: Afríka , Menning , Meðmæli , Stjórnmál