janúar 27, 2003

Gæslan

Addi Kidda Gauj (Guðjón A. Kristjánsson) þingmaður Frjálslynda flokksins fór fram á utandagskrárumræðu um Landhelgisgæsluna í dag. Hann kvartar undan því að aðeins séu þrjú varðskip hjá Landhelgisgæslunni. Óðinn, sem er bundinn við bryggju, feyskinn og fúinn og farinn og lúinn og brotinn og búinn að vera. Úthaldið hefur verið circa 6 mán. en úthaldið á Tý og Ægi hefur verið um 9 mán. Nú á að dubba þá upp og koma þeim upp í 10-11 mán. úthald.

Hvað um það, mér finnst fólk vera að gleyma einu; fjórða skipi Gæslunnar, Baldri.
Baldur er tæplega 12 ára gamall, 18m. álbátur, 64 brúttótonn með 326 hp Caterpillarvél. Hann var smíðaður á Seyðisfirði 1991.
Agust skrifaði 27.01.03 16:46

Flokkun: Ísland