janúar 28, 2003

Líbanir og bílprófslausir

Skemmtilegur pistill um fræga Líbani hjá SP. Ég hefði reyndar viljað sjá nokkur selebrití í viðbót á listanum. Líbanir eru nefnilega alveg ótrúlega klárir í að verða annaðhvort rosalega frægir eða rosalega ríkir, nema hvorttveggja sé.
Frægir Líbanir sem ég sakna af listanum hjá SP eru t.d.: Carlos Ghosn forstjóri Nissan, Jacques Nasser sem áður stjórnaði Ford, Rony Seikaly sem var center hjá Miami Heat þegar ég fylgdist ennþá með NBA, Jamie Farr sem margir þekkja sem Klinger í M*A*S*H, leikarinn F. Murray Abraham (aldrei skilið hvað er málið með þetta F.), Keanu Reeves (reyndar bara fæddur í Beirút en ekki ættaður þaðan), Antoine Zinni "special envoy" í Palestínu, George Mitchell sem var foringi meirihluta demókrata í öldungadeildinni fyrir nokkrum árum og sjálfur Frank Zappa! Auk þess mætti nefna óteljandi mis(ó)frægir bissnissmenn og pólitíkusar (aðallega í nokkrum fylkjum í USA). Ok ég viðurkenni að þessir sem ég nefndi eru ekki svakalega frægir - en að sleppa Frank Zappa er algjör óþarfi, sem margir halda að sé Tékki, sem er misskilningur.
Líbanir eru mjög öflugur minnihlutahópur (a.m.k. m.v. stærð líbönsku þjóðarinnar) í USA og einnig t.d. í Mexíkó og Ástralíu auk þess sem þeir stjórnuðu a.m.k. áður fyrr demantaviðskiptum í V-Afríku. Þeir voru líka einna frægastir í viðskiptum af Aröbum á Vesturlöndum, en oft vísað til þeirra sem e.Levantine(s). Þrátt fyrir aðeins þriggja milljóna þjóð heima fyrir eru Líbanir búsettir víðsvegar um heiminn taldir 6-9 milljónir til viðbótar við þá sem búa í landinu litla.

Á einkaveitu SP er svo að finna þennan texta:
Í gær skutlaði ég manni sem ekki hefur bílpróf. Hann skellti bílhurðinni svo fast að bíllinn ætlaði sundur að ganga. Hvers vegna er þetta einkenni á fólki sem ekki ekur bíl sjálft? Var virkilega kennt í ökuskólanum hvernig skella eigi bílhurð? Alveg var ég búinn að gleyma því...
Undir þetta tek ég fullkomlega, hafði bara ekki spáð í þetta fyrr. Aftur á móti veit ég um einn ónefndan einstakling sem er annálaður fyrir miskunnarlausar bílhurðaskellingar, þrátt fyrir ökuskýrteini í vasanum. "Afsökunin" sem maður fær þegar maður hvæsir á viðkomandi fyrir umgengnina er "Hvað er þetta, þetta er ósjálfrátt, við áttum Lödu þegar ég var krakki. Það þurfti alltaf að skella fast á henni". Maður skyldi ætla að þetta "af-vendist" með auknum þroska, en nei, greinilega ekki.
Agust skrifaði 28.01.03 17:39

Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation , Mannlíf á jörðu , Meðmæli